Fréttablaðið - 21.02.2011, Page 28
FASTEIGNIR.IS10 21. FEBRÚAR 2011
Auglýsingasími
Albert Bjarni Úlfarsson
Löggiltur fasteignasali
[+354] 821 0626
albert@domusnova.is
albert.domusnova.is
Ágætu viðskiptavinir / kaupendur og seljendur
það er mér sönn ánægja að tilkynna ykkur að ég
hef hafið störf á Domusnova fasteignasölu...
Við seljum fyrir þig !
Hringdu í 821 0626
Turninum 12 hæð - Smáratorgi 3 - 201 Kópavogi - Axel Axelsson - Löggiltur fasteignasali - www.domusnova.is
Fyrir nokkru birti Seðlabankinn greiningu á þróun í efnahags- og
peningamálum þar sem
bankinn telur að fasteigna-
verð eigi eftir að lækka
eitthvað á þessu ári og
húsnæðisverð nái lágmarki
á seinni hluta þessa árs en síðan
taki við hægfara bati.
Í greiningu bankans kemur jafn-
framt fram að lækkun íbúðarverðs
hafi orðið minni en Seðlabankinn
hafi spáð áður. Nýleg spá Íslands-
banka gerir á hinn bóginn ráð
fyrir 10% hækkun fasteignaverðs
á árinu.
Þessi munur á spám um fast-
eignaverð byggir á mismunandi
forsendum og niðurstöður verða
þ.a.l. ólíkar. Vitaskuld er þarna um
spár að ræða en spár bankanna
hafa oft illa gengið eftir enda oft
erfitt að ráða í fasteignaverð og
þróun þess.
Hver er á hinn bóginn staðan
á fasteignamarkaði nákvæmlega
núna og síðustu vikur? Fasteigna-
salar eru almennt sammála að fast-
eignamarkaðurinn hafi verið mjög
líflegur, mikil eftirspurn og sala hafi
verið langt umfram það sem hefur
verið undanfarin ár. Þessi viðskipti
koma á hinn bóginn ekki inn í opin-
berar tölur fyrr en allt að 4-
6 vikum eftir að kauptilboð
er gert. Þetta byggir á að
fyrst er kauptilboð gert en
talsverður tími líður síðan
þangað til kaupsamningur
er gerður og honum
þinglýst, þá fyrst kemur
fjöldi samninga fram hjá
hinu opinbera þ.e. Þjóðskrá Íslands.
Opinberar tölur munu á næstu
vikum sýna fram á verulega fjölgun
frá þvi sem verið hefur.
Þær breytingar sem hafa orðið
undanfarnar vikur á eftirspurn og
sölu fasteigna virðist Seðlabank-
inn ekki taka tillit til í sinni spá
enda ekki fyrir hendi opinberar
tölur. Fasteignasalar sem eru með
púlsinn á markaðinum merkja á
hinn bóginn umtalsverðar breyt-
ingar á fjölda samninga, en eins
og gefur að skilja skiptir eftirspurn
miklu fyrir verðþróun fasteigna.
Vitaskuld er erfitt að segja
nákvæmlega hvert fasteignaverð
muni þróast en ef eftirspurn mun
verða eins og undanfarnar vikur
og fjöldi kauptilboða einnig þá
er hæpið að frekari lækkun fast-
eignaverðs sé fram undan eins og
Seðlabankinn telur.
Grétar Jónasson hdl. og lgf.,
framkvæmdastjóri Félags fast-
eignasala
Spár um fasteignaverð
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi
eða fengið sendan daglegan tölvupóst
með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU