Fréttablaðið - 21.02.2011, Page 40

Fréttablaðið - 21.02.2011, Page 40
 21. febrúar 2011 MÁNUDAGUR24 sport@frettabladid.is ARON KRISTJÁNSSON var um helgina rekinn sem þjálfari þýska úrvalsdeildarfélagsins Hannover-Burgdorf. Liðið er í þriðja neðsta sæti deildarinnar en með því leika fjórir Íslendingar – Hannes Jón Jónsson, Vignir Svavars- son, Ásgeir Örn Hallgrímsson og Sigurbergur Sveinsson. KÖRFUBOLTI KR batt um helgina enda á 20 ára bið eftir bikarmeist- aratitli með sigri á Grindavík, 94- 72, í úrslitum Powerade-bikar- keppni karla. Eftir jafnan fyrri hálfleik gerði KR fljótlega út um leikinn í þeim síðari með öflugum sóknarleik sem Grindavíkurvörnin lenti í miklu basli með. „Ég er ótrúlega ánægður með strákana,“ sagði Hrafn Kristj- ánsson, þjálfari KR. Hann stýrði einnig kvennaliði KR í hinum úrslitaleik dagsins en þá tapaði liðið fyrir Keflavík. „Þetta var þó alla vega góður endir á deginum,“ bætti hann við og brosti. „Það sem mér finnst fyrst og fremst gaman er að þeir sýndu í dag hver þeir allra sterkasta hlið er. Það er að dreifa álaginu, láta mannskapinn rúlla og eiga þannig inni kraftinn fyrir seinni hálfleik- inn þegar við þurfum á honum á halda,“ sagði Hrafn. Grindvíkingurinn Þorleifur Ólafsson meiddist í fyrri hálfleik og segir Hrafn að það hafi breytt miklu fyrir þá. „Það munar strax um einn leikmann upp á að halda mannskapnum ferskum. Þegar upp var staðið áttum við meira inni.“ KR-ingum gekk vel að hitta í seinni hálfleik og flest gekk þeim í hag þegar þeir fóru að síga fram úr. „Það er erfitt eftir svona leik fyrir þjálfara að hugsa um hvort allt hafi gengið upp eða hvað. Ég lít frekar á það þannig að við höfum lagt mikla vinnu í okkar leik og þegar þannig er þá fylgir heppnin líka með,“ sagði Hrafn. Helgi Jónas Guðfinnsson, þjálf- ari Grindavíkur, segir að sínir leikmenn hafi ekki gert neitt af því sem lagt var upp með fyrir síð- ari hálfleikinn. „Sá varnarleikur og sú barátta sem var til staðar í fyrri hálfleik var skilin eftir inni í klefa fyrir þann síðari. Þetta má einfaldlega skrifa á slæmt hugar- far. Menn komu ekki einbeittir til leiks og allt það sem við höfum æft í vetur fór út um gluggann.“ Ómar Örn Sævarsson, leikmaður Grindavíkur, tók í svipaðan streng. „Þetta eru háspennuleikir og liðið sem er betur stemmt vinnur leik- inn. Ég tel ekki að það sé taktík- in sem skiptir mestu máli í svona leikjum heldur frekar hausinn og hjartað,“ sagði hann. „Þegar þeir komust yfir og fengu sjálfstraust fóru þeir að taka sín skot og hittu úr þeim. Við hittum ekki úr okkar. Svona er þetta stundum.“ Grindavík hefur átt erfitt upp- dráttar á síðustu vikum og tapað fjórum leikjum í röð í Iceland Express-deild karla. „Þetta kemur allt í hæðum og lægðum. Jafnvel bestu liðin tapa nokkrum leikj- um í röð og við eigum eftir að ná okkur aftur á strik. Það er bara svekkjandi að við gerðum það ekki í dag.“ Pavel Ermolinskij er fyrsti leik- maðurinn í sögu úrslitaleik bik- arkeppninnar sem nær þrefaldri tvennu og það kom fáum á óvart þegar hann var valinn maður leiksins. „Ef það er einhver leikur þar sem maður hugsar ekki um eigin afrek þá er það þessi. Ég hefði kvittað undir það að gera mig að fífli í leiknum með skammar- legri frammistöðu hefði það engu að síður þýtt sigur í dag. Þetta er minn fyrsti stóri titill og er mér mjög létt að hafa unnið leikinn. Ég var stressaður fyrir leikinn en maður ímyndar sér aldrei að tapa fyrir fram og því er ég feginn að þetta tókst í dag.“ eirikur@frettabladid.is Strákarnir sýndu sína sterkustu hlið KR varð um helgina bikarmeistari karla í körfubolta á ný eftir 20 ára bið eftir sigur á Grindavík, 94-72. Pavel Ermolinskij fór á kostum og náði fyrstur allra í sögu keppninnar þrefaldri tvennu í úrslitaleiknum. MAÐUR LEIKSINS Pavel Ermolinskij, leikmaður KR, fór á kostum og var valinn maður leiksins. Hér er hann með bikarinn góða. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Sögulegt afrek Pavels Pavel Ermolinskij, leikmaður KR, varð um helgina fyrstur til að ná þrefaldri tvennu í úrslitaleik bikarkeppni karla. Pavel Ermolinskij KR 2011 21 stig - 11 fráköst - 11 stoðsendingar Aðrir sem hafa komist nálægt því: Damon Johnson Keflavík 2003 (-2) 27 stig - 13 fráköst - 8 stoðsendingar George Byrd Hamar/Selfoss 2007 (-2) 24 stig - 15 fráköst - 8 stoðsendingar Hlynur Bæringsson Snæfelli 2008 (-3) 23 stig - 18 fráköst - 7 stoðsendingar Jakob Sigurðarson KR 2009 (-3) 15 stig - 7 fráköst - 10 stoðsendingar Justin Shouse Stjörnunni 2009 (-3) 22 stig - 8 fráköst - 9 stoðsendingar Brenton Birmingham Njarðvík 1999 (-4) 26 stig - 10 fráköst - 6 stoðsendingar Valur Ingimundarson Njarðvík 1995 (-4) 18 stig - 9 fráköst - 7 stoðsendingar Brenton Birmingham Njarðvík 2002 (-4) 25 stig - 9 fráköst - 7 stoðsendingar Matt Sayman Njarðvík 2005 (-4) 18 stig - 9 fráköst - 7 stoðsendingar Ég hefði kvittað undir það að gera mig að fífli í leiknum með skammarlegri frammistöðu hefði það engu að síður þýtt sigur í dag. PAVEL ERMOLINSKIJ LEIKMAÐUR KR Powerade-bikar karla KR - Grindavík 94-72 (40-39) Stig KR: Brynjar Þór Björnsson 23, Pavel Ermo- linskij 21 (11 frák., 11 stoðs.), Hreggviður Magnús- son 13, Fannar Ólafsson 11, Marcus Walker 9, Finnur Atli Magnússon 8, Jón Orri Kristjánsson 5, Ágúst Angantýsson 3, Ólafur Már Ægisson 1. Stig Grindavíkur: Kevin Sims 18, Ólafur Ólafsson 17 (9 frák.), Ryan Pettinella 12, Ómar Örn Sæv- arsson 10, Páll Axel Vilbergsson 8, Björn Steinar Brynjólfsson 3, Helgi Björn Einarsson 2, Mladen Soskic 2. Powerade-bikar kvenna KR - Keflavík 62-72 (33-30) Stig KR: Paige Morris 19 (13 frák.), Signý Her- mannsdóttir 14 (12 frák.), Hafrún Hálfdánardóttir 10, Hildur Sigurðardóttir 9 (7 stoðs.), Margrét Kara Sturludóttir 6, Helga Einarsdóttir 2, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 2. Stig Keflavíkur: Jacquline Adamshick 19 (14 frák.), Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 14, Bryndís Guðmundsdóttir 12 (10 frák./6 stoðs.), Pálína Gunnlaugsdóttir 9, Ingibjörg Jakobsdóttir 8, Marín Rós Karlsdóttir 4, Marina Caran 3, Hrund Jóhannsdóttir 3/6 fráköst. N1-deild kvenna HK - ÍBV 30-24 (13-10) Grótta - Fylkir 16-31 (6-14) Fram - FH 40-18 (20-7) Haukar - Stjarnan 21-40 (10-17) Valur - ÍR 37-20 (20-7) Markaskorara má finna á Vísi. Enska bikarkeppnin 4. UMFERÐ, SÍÐARI LEIKIR Chelsea - Everton 1-1 1-0 Frank Lampard (104.), 1-1 Leighton Baines (119.). Everton vann í vítaspyrnukeppni, 4-3. Manchester City - Notts County 5-0 1-0 Patrick Vieira (37.), 2-0 Vieira (58.), 3-0 Carlos Tevez (84.), 4-0 Edin Dzeko (89.), 5-0 Micah Richards (90.). 5. UMFERÐ Stoke - Brighton & Hove Albion 3-0 1-0 John Carew (14.), 2-0 Jonathan Walters (22.), 3-0 Ryan Shawcross (41.). Birmingham - Sheffield Wednesday 3-0 1-0 Jean Beausejour (6.), 2-0 Obafemi Martins (17.), 3-0 David Murphy (53.). Manchester United - Crawley Town 1-0 1-0 Wes Brown (28.). Fulham - Bolton 0-1 0-1 Ivan Klasnic (18.). Leyton Orient - Arsenal 1-1 0-1 Tomas Rosicky (53.), 1-1 Jonathan Tehoue (89.). NÆSTU LEIKIR West Ham - Burnley í kvöld kl. 20.00 Everton - Reading 1. mars Manchester City - Aston Villa 2. mars Arsenal - Leyton Orient 2. mars FJÓRÐUNGSÚRSLIT Stoke - West Ham/Burnley Man. City/Aston Villa - Everton/Reading Birmingham - Bolton Manchester United - Leyton Orient/Arsenal Leikirnir fara fram 12. og 13. mars. ÚRSLIT

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.