Fréttablaðið - 21.02.2011, Síða 42
21. febrúar 2011 MÁNUDAGUR
9. HVER
VINNUR!
ÞÚ SENDIR SMS SKEYTIÐ
ESL KILL Á NÚMERIÐ 1900.
ÞÚ FÆRÐ SPURNINGU.
ÞÚ SVARAR MEÐ ÞVÍ AÐ SENDA
SMS SKEYTIÐ ESL A, B EÐA C
Á NÚMERIÐ 1900.
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
VILTU VINNA PS3
+ KILLZONE 3
+ SHARPSHOOTER?
GEGGJAÐIR
AUKAVINNINGAR
Killzone 2 PS3
DVD myndir
Tölvuleikir
Fullt af gosi!
AÐA
LVIN
NIN
GUR
:
VINNINGAR VERÐA AFHENTIR Í ELKO LINDUM, KÓPAVOGI.
MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB.
149 KR/SMS-IÐ. ÞÚ FÆRÐ 5 MÍN TIL AÐ SVARA SPURNINGU. LEIK LÍKUR 4. MARS 2011
KÖRFUBOLTI Keflavík fagnaði
um helgina sínum tólfta
bikarmeistaratitli frá upphafi er
liðið bar sigurorð af KR í úrslitaleik
Powerade-bikarkeppninnar, 72-
62.
Eftir jafnan fyrri hálfleik þar
sem KR hafði forystu, 33-30, tók
Keflavík öll völd í síðari hálfleik og
vann leikinn á öflugum varnarleik
og sterkri liðsheild.
„Ég held að það hafi verið vörnin
í síðari hálfleik sem skóp þennan
sigur,“ sagði Keflvíkingurinn
Bryndís Guðmundsdóttir eftir
leikinn. „Í fyrri hálfleik ætluðu
allir að gera eitthvað upp á sitt
einsdæmi en það komst enginn
í gegnum þvöguna og ekkert
gekk upp. Við náðum svo aðeins
að slappa af í hálfleik og þegar
við fórum að tala betur saman
í þeim síðari fór þetta að rúlla
betur hjá okkur. Þegar við spilum
vörn sem lið þá kemur sóknin
með. Við erum góðar í að spila
varnarleikinn maður á móti manni
en svæðisvörnin er að koma mjög
sterk inn hjá okkur og það hjálpar
okkur mikið.“
Þjá lfar i nn Jón Ha l ldór
Eðvaldsson var á sama máli. „Þetta
er stærsti leikur ársins og það er
eðlilegt að það komi smá hökt á
svæðisvörnina þegar maður fær 1-
2 körfur á sig. En svo small þetta
hjá okkur. Við höfum æft þetta vel
og unnið í þessu lengi og það er að
skila sér núna.“
Hann hrósaði einnig liðsheildinni
í liði Keflavíkur. „Það var enginn
einn leikmaður að bera uppi okkar
leik. Liðið mitt er mjög gott þegar
það vinnur saman og það sýndi sig
í dag. Við vorum rólegri í seinni
hálfleik, spiluðum okkar leik og þá
gekk þetta mun betur hjá okkur.“
Jón Halldór hafði fjórum
sinnum farið með Keflavíkurliðið
í bikarúrslit sem þjálfari en þetta
var hans fyrsti sigur í keppninni.
„Auðvitað er þetta persónulegur
sigur fyrir mig en mér finnst þetta
miklu flottara fyrir stelpurnar
en nokkru sinni mig sjálfan. Það
má alltaf segja að það hafi verið
erfitt fyrir mig að landa þessum
bikar í höllinni en ég hef áður
unnið aðra titla hér og nú er
þessi kominn líka. Menn
geta því verið rólegir,“
sagði hann í léttum dúr.
Birna Valgarðsdóttir
var valinn maður
leiksins en hún var að leika sinn
níunda bikarúrslitaleik á ferlinum.
Marín Rós Karlsdóttir, liðsfélagi
hennar, var að leika sinn tíunda á
ferlinum.
„Birna er algerlega óborganlegur
leikmaður. Hún var á annarri
löppinni í dag og samt að dekka
einn besta leikmann KR. Það er
líka mjög dýrmætt að geta gripið
í leikmann eins og Marín Ósk
sem hefur verið að berjast við
meiðsli í allan vetur og er í raun
enn meidd. Hún kom inn, skoraði
fjögur stig og skilaði sínu. Það
er einfaldlega nauðsynlegt
að vera með leikmenn í
liðinu sem þekkja þetta og
vita hvað þarf til.“
Hrafn Kristjánsson,
þjálfari KR, segir að
liðið sitt hafi ekki
brugðist rétt við í
seinni hálfleik. „Við
misstum aðeins
hausinn. Við vorum
búnar að tala um
að við þyrftum að
bregðast rétt við
þegar þær myndu
veita okkur svona
högg. Keflavík er með
frábært lið og skorar
oft í kippum. En við
náðum ekki að gera það
þegar þær tóku sprettinn í
þriðja leikhluta og var það
sárt.“
eirikur@frettabladid.is
Vörn og sterk liðsheild
Keflavík varð um helgina bikarmeistari kvenna í körfubolta í tólfta sinn í sög-
unni eftir sigur á KR í úrslitaleik. Þetta var fyrsti bikarmeistaratitill þjálfarans
Jóns Halldórs Eðvaldssonar sem hafði tapað þremur úrslitaleikjum í röð.
SIGURDANS Keflvíkingar fögnuðu titlinum vel og innilega í Laugardalshöllinni um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÉIL
FRJÁLSAR A-lið ÍR varð á laugar-
daginn bikarmeistari innan-
húss en bikarmót FRÍ fór fram
í Laugardalnum. ÍR-ingar hlutu
samtals 133 stig og voru með
talsverða forystu á næstu lið –
Norðurland og HSK sem bæði
hlutu 103,5 stig. Norðurland var
með fleiri sigurvegara og fékk því
silfurverðlaunin.
ÍR fékk 63 stig í karlakeppninni
en FH kom næst með 56 stig og
svo Norðurland með 54. ÍR fékk
einnig flest stig í kvennaflokki,
alls 70, en HSK varð í öðru sæti
með 57 stig og Norðurland í því
þriðja með 49,5.
Kristinn Torfason, FH, stökk
7,77 metra í langstökki og var
aðeins fimm sentimetra frá
Íslandsmeti Jóns Arnars Magn-
ús sonar í greininni. Þar með náði
hann lágmarkinu fyrir Evrópu-
meistaramótið innanhúss sem
fer fram í París fyrstu helgina í
mars.
Þingeyingurinn Þorsteinn
Ingvars son stökk lengst 7,51 m
en lágmarkið er 7,75 m. Þorsteinn
varð reyndar fyrir því óláni að
meiðast í keppninni.
Kúluvarparinn Óðinn Björn
Þorsteinsson var einnig búinn
að tryggja sér þátttökurétt á EM
en svo gæti farið að ÍR-ingurinn
Kristín Birna Ólafsdóttir bættist
í þann hóp.
Kristín Birna var ekki langt
frá því að ná lágmarkinu í 60 m
grindahlaupi en þar sem hún þjóf-
startaði var hún dæmd úr leik.
Hún fær þó annað tækifæri í vik-
unni til að ná lágmarkinu fyrir
mótið í París. - esá
Bikarkeppni Frjálsíþróttasambands Íslands innanhúss fór fram um helgina:
ÍR-ingar báru sigur úr býtum
NÁÐI LÁGMARKINU Kristinn Torfason, FH, stökk 7,77 m í langstökki karla um helgina
og náði lágmarki fyrir EM í París. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
BESTI LEIKMAÐURINN
Birna Valgarðsdóttir var
valin maður leiksins en
hún skoraði fjórtán stig.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL