Barnablaðið - 01.05.1955, Side 6
Jesúm sáu þær ekki þar, en þær
sáu tvo engla í skínandi klæðum,
sem sögðu að hann væri upprisinn.
Síðan birtist hann einnig læri-
sveinum sínum og varð þá mikill
fögnuður rneðal þeirra. Sýndi hann
þeim hendur sínar og fætur með
naglaförum eftir krossfestinguna.
Hann neytti fæðu með þeinr og lét
þá þekkja sig, svo þeir gætu verið
vissir um, að hann væri sá hinn
sami sem hann var, áður en hann
var krossfestur. Hann lét þá sjá
sig í 40 daga og talaði við þá um
rnarga hluti, sem Guðsríki heyra
til.
Og hann bauð lærisveinum sín-
um að fara með gleðiboðskapinn út
um allan heiminn og prédika allt,
sem hann var búinn að kenna þeim.
Síðan lofaði hann að senda þeim
Heilagan Anda, sem hann sagði að
skildi leiða þá í allan sannleika, og
gefa þeim orðin, sem þeir áttu að
tala til fólksins. Eftir þetta blessaði
hann þá og fór til hinrna og settist
til hægri handar Guðs.
Svo úthellti Jesús sínum Heilaga
Anda yfir lærisveinana á Hvíta-
sunnudag, alls 120 manns og þeir
urðu allir fullir af Heilögum Anda
og töluðu tungum eins og Andinn
gaf þeim að mæla.
Sœmundur Sigfússon.
Þetta gaí hún.
Hadda var trúuð stúlka, en hún
átti enga peninga. Þó gat hún gefið
margt á einum degi og nú skuluð
þið heyra:
Hún gaf klukkustund til að líta
eftir litlu systur, sem var að taka
tennur. Hún bjó til færi og títu-
prjónsöngul lianda litla bróður,
sem langaði að fara í veiðileik.
Hún gaf Elínu, þjónustustúlkunni
klukkustundarfrí til að heimsækja
veika móður sína og vann verkin
hennar á meðan. Hún klæddi sig
sjálf og var svo góð og hjálpsöm,
að mamma hennar fylltist gleði er
hún horfði á dóttur sína. Hún
skrifaði pabba sínum, sem var á
ferðalagi, bréf, sem gerði hann
hamingjusaman. Hún las langa
sögu fyrir ömmu sína og kvaddi
hana með kossi, er hún fór, svo
garnla konan var bæði þakklát og
ánægð.
Af þessu sjáið þið, að Hadda gaf
sex dýrmætar gjafir á einum degi
og þó átti hún enga peninga. En
hún gaf það, sem hún átti, og gaf
það með gleði. Jesús vantar rnarga
drengi og margar stúlkur, sem
vilja gefa slíkar gjafir.
22 BARNABLAÐIÐ