Barnablaðið - 01.04.1994, Blaðsíða 4
4 BARNABLAÐIÐ
Óvenjuleg
gœludýr
Sigrún Hanna Ómarsdóttir
Það ríkti mikil eftirvænting í einni blokkinni í
Hafnarfirðir fyrir stuttu. Börnin sem áttu
heima þar voru öll samankomin í einni íbúð-
inni, heima hjá vinkonu sinni henni Sigrúnu
Hönnu. Það var nú svo sem ekkert óvenju-
Þegar mamma Sigrúnar
Hönnu kom heim fóru öll börnin
í blokkinni, bæði lítil og stór, út í
dyr til að taka á móti henni. Þau
hoppuðu og hrópuðu af spenn-
ingi. Mamma hélt á stórum,
brúnum pappakassa með loki.
Börnin hópuðust í kringum
hana. Úr kassanum heyrðust
undarleg hljóð sem líktust tísti.
- Hvað er í kassanum?
spurði Sigrún Hanna forvitin.
legt. Þau voru vön að leika sér heima hjá
henni og hvert heima hjá öðru. En núna var
eitthvað alveg sérstakt að gerast. Mamma
hennar Sigrúnar Hönnu var að sækja svolítið
leyndarmál. Hvað skyldi það hafa verið?
Krakkaskarinn elti hana inn í
íbúðina. Þau toguðu í kápuna
hennar og reyndu að fá hana til
að opna kassann. En mamma
sagði þeim að nú yrðu þau að
vera stillt því þeir sem væru í
kassanum yrðu annars mjög
hræddir.
Nú lagði mamma kassann á
stofuborðið og opnaði hann
varlega. Öll börnin störðu stór-
eyg ofan í kassann. Hann var
Hún teygði sig upp í kassann
og reyndi að kíkja í gegnum lítið
gat. Þá kom hún auga á eitt-
hvað gult, sem hreyfðist.
- Hvað er þetta? spurði hún
og augun urðu risastór.
- Má ég líka sjá, sagði Þór-
hallur vinur hennar. Hann var
mjög spenntur.
En mamma Sigrúnar Hönnu
leyfði engum að sjá. Hún var
mjög leyndardómsfull á svipinn.