Barnablaðið - 01.04.1994, Blaðsíða 5

Barnablaðið - 01.04.1994, Blaðsíða 5
BARNABLAÐIÐ 5 fullur af litlum ungum. Þeir voru ósköp hræddir og horfðu líka stóreygir á öll þessi börn. - Hvar erum við nú? spurðu þeir hver annan. - Má ég halda á einum unga, spurði Kalli, frændi Sigrúnar Hönnu. Mamma lét alla krakkana setjast á gólfið og rétti þeim hverju um sig einn unga. Krakkarnir tóku varlega á ung- unum. Þeir voru svo litlir og umkomulausir. - Ég ætla að láta þennan unga heita Daníel, sagði Sigrún Hanna og strauk litla unganum sem hún hélt á. - Má ég gefa einum unga nafn, spurði Perla, vinkona Sig- rúnar Hönnu. - Já, sagði Sigrún en hún átti ungana. - Ég ætla að láta þennan heita Rósu. Krakkarnir gáfu ungunum nafn. Ungarnir voru tólf og það var erfitt að þekkja þá í sundur þegar þeir voru alJir komnir aftur ofan í kassann. Nú kom Sandra Dögg, litla systir hennar Sigrúnar Hönnu. Hún hafði verið steinsofandi en nú vaknaði hún við öll lætin. Hún varð heldur en ekki undrandi þegar hún sá alla litlu ungana. Hún vissi ekkert hvað þetta var, en svo áttaði hún sig. - Bíbí! hrópaði hún og benti með litlu mjúku puttunum sín- um á fuglana. Mamma tók einn ungann og ætlaði að leyfa Söndru að klappa honum. En Sandra var svo lítil að hún vissi ekki að maður má bara klappa laust. Hún vildi halda á unganum. En mamma þorði ekki að leyfa henni það. Hún var svo hrædd um að unginn mundi meiða sig í höndunum á litlum óvita. En hún leyfði Söndru að setjast á gólfið og passa ungann litla stund. Sandra varð mjög hrifin. Nú leyfðu krakkarnir ung- unum að labba á stofuborðinu. Þeir kúkuðu á borðið. - Uss, sagði mamma og bað krakkana að setja alla ungana aftur í kassann. Nú komu fleiri krakkar að skoða ungana. Það voru Sif og Agnes. Þær fengu líka að halda á þeim og gefa þeim nöfn. Litlir ungar eru fljótir að stækka. Miklu fljótari en börn. Nokkrum dögum seinna, þegar Sigrún Hanna fór að athuga ungana, voru þeir komnir með svolitla vængi og farnar að vaxa á þeim fjaðrir. Hún sýndi mömmu sinni og pabba breyt- inguna sem orðið hafði á ung- unum. Þau voru alveg hissa og veltu fyrir sér hvernig ungar gætu stækkað svona hratt. En þau vissu að Guð gefur þeim vöxtinn. Allir litlir ungar vaxa og stækka. Bæði börn mannanna og dýranna. Er það ekki kraftaverki líkast? Texti og myndir: Ella

x

Barnablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.