Barnablaðið - 01.04.1994, Blaðsíða 14
14 BARNABLAÐIÐ
Kristbjörg
Hæ, Lambi
Mig langar til að spyrja þig
spuminga?
1) Hvað heitir mamma þín?
2) Hvenær áttu afmæli í maí?
3) Hvað heitir pabbi þinn?
4) Hefur þú meitt þig og hvað
mörgum sinnum?
Nú verð ég að hætta. Bæ, bæ.
Frá pennavinkonu þinni
Sólveigu, 5 ára
Grundarfirði
Sólveig sendir mynd með:
Þetta er Sóldrífa, lambið mitt.
Hún er svört og hvít.
Kæra Sólveig,
Þakka þér fyrir bréfið.
Hér koma svör við spurningum
þínum:
1) Mamma mín heitir Snjóhvít.
2) Ég á afmæli 20.maí.
3) Pabbi minn heitir Hrólfur.
4) Ég er óttalegur hrakfallabálkur.
Ég hef varla tölu á því hvað ég hef
meitt mig oft, enda hafa það alltaf
verið litlar skrámur. Mér er minni-
stæðast þegar ég meiddi mig einu
sinni á snoppunni. Ég get verið
svo forvitinn. Eg var að þefa af
einhverju drasli sem var á gólfinu,
þegar einhver maður steig beint á
snoppuna mína. Snoppan var ból-
gin og blá í marga daga á eftir.
Það er samt allt batnað núna.
Hér koma nokkrar spurningar:
1) Ferðu í skóla í haust?
2) Er langt að fara í skólann eða
getur þú gengið þangað sjálf?
3) Hvað ætlar þú að gera í sumar?
Mikið áttu fallegt lamb. Mér finnst
Sóldrífa vera mjög fallegt nafn. Ég
bið kærlega að heilsa Sóldrífu. Ég
gæti best trúað því að hún sé
frænka mín. Hún hefur sama
sauðasvipinn og ég!
Vertu nú sæl og skrifaðu fljótt
aftur.
Þinn vinur Lambi
Halló Lambi
Ég er nýbúin að vera með hlaupa-
bóluna. Það er alveg hræðilegt
að vera með hana.
Ég er komin í páskafrí og ég
byrja aftur í skólanum 6. apríl.
Hér koma nokkrar spurningar:
1) Færðu mörg páskaegg? Ég
fæ eitt númer 4.
2) Hvert langar þig að fara ef þú
mættirfara til útlanda?
Nú koma svör við þínum
spurningum:
í mínum bekk höfum við búið til
t.d. hótel og ferðaskrifstofu.
Hótelið heitir „Hótel Töfrar" og
ferðaskrifstofan „Dúndur Skutla".
Eftir páska búum við til útvarp-
sþátt. Ég held að hinir bekkirnir
geri ekkert svona. Ég veit ekki
hvað eru margir nemendur í
öllum skólanum en við erum 14 í
bekknum mínum. Það er sun-
nudagaskóli hér. Ég fer alltaf.
Getur þú skrifað mér heim til
mín? Ef svo er, viltu gera það?
Skrifaðu fljótt.
Bless, bless
þín vinkona Helga.
P.S Hverju safnar þú?
Helga Valbjörnsdóttir
Skólavegi 82 a
750 Fáskrúðsfirði
Kæra Helga
Mikið var gaman að fá bréf frá þér.
Það hlýtur að vera mjög skemmti-
legt í skólanum þínum. Þið fáið að
gera svo margt óvenjulegt. Nú er
. ^ t \ 4 t K S ÓLPafKt
W Clv
^ Wl/VT