Barnablaðið - 01.04.1994, Blaðsíða 12

Barnablaðið - 01.04.1994, Blaðsíða 12
12 BARNABLAÐIÐ Foreldraþáttur Barn á þroskabraut Er hægt að verða góður upp- alandi með því að lesa sér til? Sumir hafa mikla trú á fræði- legri þekkingu aðrir yppta öxl- um. Allir vilja þó gera það sem rétt er og gott. Við horfum á börnin okkar og finnum hve dýr- mæt þau eru okkur. Við viljum öll gefa þeim hið besta vega- nesti sem völ er á. En hvernig förum við að því? Hvað eigum við að gera? Margir foreldrar hafa áhuga á því að ala börnin sín upp í krist- inni trú og siðgæði. Foreldrar lítilla barna velta gjarnan fyrir sér spurningum eins og þess- um: - Hvenær eru börn nægi- lega gömul til þess að skilja og meðtaka kristna trú og hvernig á ég að kenna barninu? Á ég að hafa áhrif á skoðanir barns- ins míns? Ef foreldrar eru hræddir við að hafa áhrif á skoðanir barna sinna er nóg af öðrum sem til- búnir eru til þess. Barnið kemst ekki hjá því að verða fyrir áhrif- um. Við berum ábyrgð á upp- eldi barnanna. Þess vegna er það okkar að hafa áhrif á skoð- anir þeirra. Getur verið að for- eldrar sem ekki vilja hafa áhrif á skoðanir barna sinna geri þau hrædd við að mynda sér skoð- anir síðar? Göngum við kannski svo hrædd í gegnum lífið að við þorum ekki að mynda okkur sjálf skoðanir eða viðurkenna þær? Hvenær er rétt að byrja að kenna börnunum um Krist og að trúa á hann? Jesús lét sér annt um börnin og mat þau mikils. Hann sagði: Leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeim það ekki, því slíkra er Guðsríki. Þegar lærisveinar hans spurðu hann hver væri mestur í himnaríki, kallaði hann til sín lítið barn og sagði: Sannlega segi ég yður: Nema þér snúið við og verðið eins og börn, komist þér aldrei í himnaríki. Nýlega kom út bók sem ber nafnið „Barn á þroskabraut11. Bókin er skrifuð af þekktum uppeldisfræðingum, Dag Hallen og Oddbjörn Evensaug. Þetta er eina bókin sinnar tegundar sem gefin hefur verið út hér á landi og fjallar hún um börn og barnauppeldi með sérstakri áherslu á trúaruppeldi. Bókin er skrifuð fyrir foreldra. í henni er leitað svara við ýmsum spurn- ingum um trúarlegt uppeldi barna. Þar er talið rétt að for- eldrar biðji með barninu frá fyrstu tíð. Ársgömul börn finna vel að bænin er eitthvað alveg sérstakt. Þau gera sér grein fyrir að foreldrið er ekki að tala við það. Þau finna helgina og friðinn sem fylgir bæninni. Mælt er með því að biðja stuttra bæna með litlum börnum og jafnvel fara alltaf með sömu bænina. Börn vilja endurtekn- ingu. Það gefur þeim aukið ör- yggi að vita hvað er „næst á dagskrá“. Það er hollt að byrja og enda hvern dag alltaf á sama hátt. Við getum sungið morgunvers með barninu á með- an við klæðum það. „Nú er ég klæddur og kominn á ról.“ Á kvöldin getum við farið með kvöldbænina áður en barnið fer að sofa. Sé byrjað snemma á þessu verður þetta ómissandi þáttur í lífi barnsins. í bókinni er einnig góður kafli um sorg og sorgarviðbrögð barna. Hvernig ræðum við um dauðann við börn? Hvað skilja þau? Eigum við að hlífa þeim við sorginni? Þegar náinn ættingi deyr segj- um við börnunum að hann hafi farið til Guðs. Það er gott að gefa barninu þá hugsun að hinn látni sé ekki endanlega horfinn, heldur hjá Guði. Það er þó ekki gott að segja barni, að hinn látni sé hjá Guði ef það er það eina sem barnið fær að vita um Guð. Guð verður þá í augum þess eins og maðurinn með Ijáinn. Er rétt að gefa barninu þá mynd af Guði? í bókinni Barn á þroskabraut er leitast við að gefa svör við spurningum á borð við þessar auk ýmiss fróðleiks sem að gagni má koma við uppeldi barns- ins. Á eftir hverjum kafla eru nokkrar spurningar til umhugs- unar fyrir foreldra svo þeir geti í sameiningu fundið út hvað þeim finnst best hæfa sínu barni. Kær kveöja Elín Jóhannsdóttir

x

Barnablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.