Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1886, Page 2

Sameiningin - 01.04.1886, Page 2
vors, alla hópa íslendinga í þessu landi, sem kristnir vilja vera. þaS minnir oss fljdtt og vel á það, hvað gjöra hefði mátt fyrir liingu kristilegri kirkju til iífs og tryggingar víðsvegar um byggðarlög þau í þessu landi, þar sem stœrri eða minni hdpar Islendinga eiga heima, ef þegar í upphafi liefði verið hugsað um þarfir ókomna tímans. Nú, það getr verið, og það er líklega vafalaust, að í flestum byggðarlögum fólks vors hefir á liðinni tíð talsvert verið hugsað' urn ókomnar kirkjulegar þarfir. En hugsaninni verðr að fylgja einhver framkvœmd, ef duga skai. Og það er einmitt þetta, sem hefir vantað. Menn hafa nálega alls ekkert gjört til að búa í haginn fyrir komandi tíð að því, er snert- ir kirkju og kristindóm á sínum eigin stöðvum, svo að víðast hvar þarf nú að byrja frá upphafi, nærri því eins og allt vort fiilk væri alveg ný-komið að heiman. Auðvitað er það, að íslendingar hafa all-oft orðið að hrekjast úr einum stað í annan síðan vestr kom. íslenzkar nýlendr þrifust ekki fyrst í stað, og sumar, eins og sú í Nýja-Skotlandi, eyddust með öllu. All-margir hafa svo að segja lengst af „búið í tjöldum", ekki ósvipað Israelsmönnum í ara- bisku eyðimörkinni forðum. Svo það er ekki nema skiljanlegt, ]>() lítið hafi orðið af framkvæmdum kristilegri kirkju til upp- byggingar fyrir mörgum meðan svona stóð. Iteglulegir söfnuðir geta eðlilega ekki komizt á og því síðr haldizt meðal þess fólks, sem hvergi heldr kyrru fyrir. En á hinn bóginn hafa ýmsar ís- lenzkar nýlendur myndazt, sem þegar hafa staðið ekki svo fá ár, og sem fyrir löngu mátti um segja hér um bil fyrir víst að hlyti að verða blómlegar framtíðarstöðvar fyrir þá, er þar byggi. Og þar getr oss eigi annað sýnzt en byrja hefði mátt fyrir löngu á því að draga saman steina til musterisins, gjöra undirbúning til þess að sýnilegri kristilegri kirkju yrði sem fyrst verulega komið á fót og haldið uppi. Vitanlega er guðs ríki eklci matr né drykkr, ekki peningar eða neitt því líkt. En svo lengi sem vér berum þennan jarðneska dauðans líkama, er oss eigi unnt að komast af, jafnvel eigi með kirkju vora, án peninga eða pen- inga-ígildis. ]>aö þarf hver mannfiokkr, sem kristinn ætlar sér í alvöru að vera, að hafa sérstaka starfsmenn til að halda jafnt og stiiðugt fyrir sig uppi prédikan guðs orða, veita mönnum sak- ramenti drottins, hafa umsjón á kristindómsfrœðslu barna og ungmenna, og yfir hiifuð stýra vinnu manna, sameiginlegri og einstaklegri, fyrir málefni sáluhjálparinnar í rétta átt. An slíkra sérstaklegra starfsinanna er eigi til þess hugsanda, að

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.