Sameiningin - 01.04.1886, Blaðsíða 7
■23-
lokið, var það, að Esra tók sig upp með þeirn hóp, er honum
t'ylgdi (457). En 12 árum þar á eftir (445) íekk Nehemías, tig-
inn Gyðingr við hirð Artaxerxes Persakonungs, leyti konungs til
að leggja á stað frá Súsan, höfuðborg Persaveldis, til Jerúsalem
og taka þar við landstjórn, hinni hart-að-þrengdu þjóð sinni til
viðreisnar. Hann lét víggirða Jerúsalem lýðnum til varnar gegn
hinum fjandsinnuðu nábúaþjóðum. Esra hafði komið því til
leiðar, að Gyðingar hættu að ganga í hjónabönd með heiðingj-
unum í nágrenni þeirra. Hefði það haldið áfram, var feðra-
trúin í veði. Og báðir tóku þeir Esra og Nehemías höndum
saman í því að fœra trúarlíf þjóðarinnar í lag. Eftir að Nehemías
hafði verið 12 ár landstjóri í Gyðingalandi í umboði Persa-
konungs, kom hann aftr til Súsan á konungs-fund (Neh. 13,6),
en fékk svo aftr fararleyfi til Gyðingalands og starfaði þar enn
um óákveðinn tíma.
Konungarnir í Persaríki næst á eftir Sýrus, sem dó árið
529 f. Kr., voru þessir : Kambyses, sonr hans, til 522, Gómates,
er sveikst til valda og lézt vera Smerdes, bróðis Kambysess,
er hann (Kamb.) hafði drepa látið,—að eins 7 mánuði, Daríus
llystaspes-son, höfuðmaðrinn í samsæri þeirra, er drápu Gómates,
til 485, Xerxes, sonr hans, til 464, Artaxerxes, sonr hans, hinn
„handlangi“, til 425.—Konungar Persa eftir það snerta varla
neitt sögu Gyðinga, enda þótt Gyðingaland væri eins og hvert
annað persneslct skattland ríki þeirra háð allt til þess er því var
kollvarpað af Alexander mikla árið 330 f. Kr. Yér nefnum
þó einnig þessa Persakonunga hér að eins á nafn: Daríus 2.,
Artaxerxes 2., hinn „minnugi", Artaxerxes 3., Daríus Kodo-
mannus.—-Enginn þessara síðustu konunga er nefndr í biblíunni,
nema hinn allra síðasti, því að öllum líkindum er hann sami
maðrinn og sá, sem í Neh. 12, 22 er nefndr „Daríus hinn pers-
neski“. þó getr það ekki verið nema því að eins að því versi í
Neh., þar sem þessi maðr er nefndr, hafi verið bœtt við löngu
eftir daga Nehemíasar, sem annars er höfundr þessarar bókar,
enda er það alls ekki ólíklegt; að öðruin kosti hlýtr „Daríus
hinn persneski" að vera Daríus 2.—Af hinum fyrri Persakon-
ungum eftir Sýrus eru í biblíunni að eins tveir, þeir Daríus og
Artaxerxes, nefndir með hinu almenna nafni sínu. En hinir
allir virðast þó greinilega að vera nefndir líka. I 4. kap. Esra-
bókar eru tveir konungar nefndir, Ahasverus (í 6. v.) og Arta-
xerxes (í 7. v.), á tímabilinu milli ríkisstjórnar Sýrusar og Daríus-