Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1886, Page 10

Sameiningin - 01.04.1886, Page 10
—26— haldin þanri dag í dag árlega utn allan heim meðal Gyðinga, og það út af fyrir sig sýnir til fulls, aS atburðrinn, sem hún er hald- in til minningar um, efnið í Estersbiík, hefir í sannleika átt sér stað. Orðið PÚRIM er hebreskt fleirtölu orð (í eintölu PÚR) og þýðir hlutkesti. Hamau kastaði hlut um daginn, sem ákveðinn var til þess að dauðadómrinn dyndi yfir lýð Gyðinga. Og svo gáfu Gyðingar hátíðinni, sem síðar var haldin til minningar um það hvernig þeir frelsuðust frá þeim voða, þetta nafn.—Estersbók ætti eiginlega að heita Esterarbók á íslenzku, eins og Rutsbók ætti að heita Rutarbók. Spádómsbók Malakíasar er eins og kunnugt er seinust allra spá- uiannabókanna og seinasta rit hinna kanonisku bóka gamla test- ainentisins; og þó að varla neitt sé með vissu kunnugt um æfi þessa spámanns, þá er það þó víst, að hann var uppi í Gyðingalandi síð- ar en Haggaí og Sakarías, að öllum líkindum á síðari landstjórn- arárum Nehemíasar. Hann refsar í drottins nafni þjóð sinni fyrir liið sama, sem Nehemías var að berjast á móti, en hann flytr mönn- um jafnframt fagnaðarboðskapinn um drottin komanda með hjálp- ræðið þeim til handa, er óttast nafn hans. Nafn spámannsins merkir : minn sendiboð'i. Er því líklegt, að spámaðrinn með- fram líti til sjálfs sín, þá er hann í 1. v. 3. kap., upphafi lexíu vorrar, í nafni guðs segir: „Sjáið, eg sendi minn engil (sama sem sendiboða), sem greiða skal veginn fyrir mér“. það er eðlilegt, að hann skoði hinn spámannlega boðskap sinn undirbúning undir komu drottins til dóms. Annars er „engill drottins“ oft sama sem drottinn sjálfr. Hins vegar heimfœrir frelsari vor þennan spádóm upp á Jóhannes skírara (Matt. 11, 10 og 11; 17, 10-13; saman ber líka Matt. 3, 10-12, og Lúk. 1, 17).— Spádómr Malakíasar er líklega fram fluttr nálægt 115 árum eftir lausn Gyðinga úr babylonsku útlegðinni, um 420 áruin fyrir fœðing Krists. LEXÍURNAR FYRIR LÍFID. Hin 9. lexía fyrsta árstjórðungs leiðir Nehemías fram fyrir oss, þá er hann, harmsfullr og grátandi út af fregninni, sem hann fékk um eymdarhag þjóðar sinnar, snýr sér til guðs biðjandi fyr- ir henni í hinu bága ástandi hennar. Hagr sjálfs hans við hirð konungs var liinn bezti, en hann horfði ekki í að sleppa þeirri þægilegu stöðu, ef hann fengi orlof af konungi til að hverfa til

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.