Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1886, Síða 6

Sameiningin - 01.08.1886, Síða 6
—86— aS kenning Únítara náSi skjótum framgangi í Ný-Englands- ríkjunum snemma á þessari öld. En sú skjóta ritbreiðsla hefir hætt fyrir löngu, og á yfirstandanda tíma er Unítaraflokkrinn sú trúardeild, er einna minnst allra fœrir sig út; hann stendr nálega grafkyrr aö því er tölu áhanganda hans snertir. það, sem fremr öllu einkennir trúarlífið í Vestrheimi nú á tímum, er starfs- íjör það, er kemr fram hjá öllum kristnum kirkjudeildum, smá- vaxandi tilhneging þeirra tii meiri einingar í trúnni og til þess að vinna hver við annarrar hliS án tillits til flokkaskiftingarinn- ar. Framfarirnar innan kirkjunnar í Ameríku eru jafnt og stöðugt í kristilega átt. Tala stúdenta, sem heyra kristnum söfn- uðum til, á hinum hærri skólum, eykst á ári hverju meir en því svarar, sem stúdentalýðrinn fjölgar. Evangeliskr kristin- dómr þokar sér á ári hverju inn á þaS, sem áðr var svæði vantniarinnar. A Indlandi má jafnvel enn skýrar sjá, hvert allt stefnir. þ»ar sem áðr enginn kristindómr átti heima, þar er nú tala krist- inna manna svo að hundruSum þúsunda skiftir. Sú önnur trú.- artegund, er þar keppir á fram, er kennd við Bramo Somaj. það er heiðindómr, sem er að nálgast kristindóminn, og gæti í raun- inni kallazt eins konar Unítara-kristindómr. þaö er eingyðistrú, sem hafnar allri skurðgoðadýrkan, aShyllist Jesúm sem spámann, kennir hreinan siðalærdóm og segist vilja þýðast allt, sem gott sé í öðrum trúarbrögöum. þegar þessi frjóangi sprettr upp irr rotnun og dauða Brama-heiðindómsins, þá ætti vissulega að skoða það sem sönnun fyrir því, hver áhrif kristindómrinn hefir haft á hinn þarlenda lýð, en ekki sem sönnun fyrir því, að kristindómr- inn sé að hnegjast nær vantrúnni. En þó sýnir ekkert eins vel, að evangeliskr kristindómr er í uppgangi í heiminum á vorri tíð, eins og það, hvernig vantrri- in sjálf hefir breytzt í seinni tið frá því, er áðr var. Jafnvel vantrúin hefir lyfzt upp—nauðug viljug—frá því stigi, er hún fyr um stóð á. það er lítið nú til af hinni hrottalegu vantrú síðustu aldar. Fáir visindamenn nú á dögum neita tilveru órannsakanlegs stórveldis, er alheimrinn lifi og hrœrist í. það er litið á Jesúm með virðing og jafnvel með aðdáan og ást svo sem mikinn siðbœ|j; og margir svo kallaðir skynsemistrúarmenn ganga svo langt, að telja hann í sínum fiokki. Og í seremoníur þær, sem hinir kristindómslausu flokkar fylgja á samkomum sínum, eru jafnvel orð og hugmyndir af kristnum uppruna kom-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.