Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.08.1886, Side 10

Sameiningin - 01.08.1886, Side 10
—90— að þeir losni við einstaka syndabletti, sem þeir verSa fyrir sí og æ eftir því sem þeir ferðast áfram gegn um hinn vanheilaga heim. ])cir þurfa allir að þvost. Allt þarf að verða nýtt. Komdu, syndari, og leyfðu drottni að þvo þig. þú skilr, ef til vill, ekki nú það, sem drottinn gjörir við þig, þegar hann kemr til þín eins og lítilmótlegr þjónn og býðr sig fram þér til hjálpar; en seinna meir munt þú skilja það. Eitt ættirðu að skilja nú þegar: það að þú ert svo veikr, breyskr, óhreinn, syndugr, og að fyr eða síðar hefst þín ganga út í Getsemane. Og hver fær þá stað- izt án guðdómlegs endrlausnara ? Réttu þá tafarlaust frsjui ekki að eins hönd þína eða fót, að Jesús fái það þvegið, heldr hjartað og höfuðiö íneð. Hryggr í anda. tekr Jesús það fram viö lærisveinana þegar eí’tir að fótaþvottinum var lokið, að einn þeirra myndi svíkja sig. 8. lexían byrjar með því. Lærisveinarnir litu hver upp á annan, og enginn hafði í bráðina hug til að segja neitt. það varð dauðaþögn í kvöldmáltíðarsalnum ofr-litla stund. En brátt fær sá lærisveinninn, sem næstr var brjósti Jesú við borðið, bend- ing frá Pétri um að spyrja meistara þeirra, við hvern hann ætti, og þessi lærisveinn, Jóhannes, hallaði sér nær Jesú og spyr, ugg- laust í hálfum hljóðum: „Herra, hver er það ? “ Jesús gefr hon- um ákveðið merki þess, við hvern hann hafi átt. Svo fer Júdas út, en áðr en hann fœri, segir Jesús við hann, þafmig, að allir gátu lieyrt: „það, sem þú gjörir, það gjör þú skjótt". þó skildu þeir ekki þessi orð Jesri þá, því þeir höfðu ekki heyrt það, sem hann rétt áðr hafði sagt Jóhannesi um Júdas. þegar svikarinn er farinn út í náttmyrkriö, talar Jesús um dýrð. sína eins og þegar byrjaða. það er stórkostlegt, að sjá eintóma guðs dýrð, þeg- ar verið er að ganga út í píslir og dauða. En svipuð sjón blasir ávallt við, þá er trúað guðs barn leggr sig undir kross lífsins og kross dauðans. En dýrð drottins á ekki að eins að koma fram í píslarsögu frelsarans og í krossburði lærisveina hans, heldr og í öllu samlííi þeirra, sem á hann trúa, hvort sem meðlæti eða mótlæti er yfir þeim. því leggr Jesús lærisveinum sínum nú svo ríkt á hjarta, að þeir verði að elska hver annan það á á öllum tímum að sýna, hvort menn eru lærisveinar frelsarans eða ekki. Kærleikr milli brœðra og systra—þaö er hið guödómlega merki, setn á að blakta í blíðu og striðu yíir öllum kristnum söfnuðum og heimilum. Ef þetta merki er ósýnilegt, hvar er þá

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.