Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1887, Blaðsíða 3

Sameiningin - 01.05.1887, Blaðsíða 3
—35— indómr, svo þeir söfnuðir geti verið skólar til eilífs lífs og and- legrar blessunar fyrir þá, sem komnir eru og koina munu, fyr- ir alda og óborna. það er eitt í hinni kirkjulegu starfsemi safnaða vorra hér, sem cirwia mesta áherzlu þarf á að íeggja, til þess að vér í and- legu tilliti getum komið œskulýð vorum, þeim, sem hér er upp að vaxa, og þeim, sein frá Islandi kemr, til hjálpar. ])að er sunnudagsskólinn. það er óþekkt atriði til uppbyggingar í kirkjunni á íslandi, en hér oss alveg ómissanda. Sunnudags- skólinn heíir ekki það fyrir sitt aðal-mark og mið að „hlýða' unglingum „yfir“ hinn svo kallaða kristna barnalærdóm, heldr liitt að koma þeim, sem á skólann ganga, til að hugsa um það guðs orð, sem numið er eða numið hetír verið, gjöra það að sinni eigin andlegri eign, opna hjartað fyrir boðskap kristindómsins, rótfesta guðs orð þar, til þess að menn geti því betr haft and- leg not af heyrn þess og lestri, fái helgazt í sannleikanum, eða með öðrum orðum : vaxið að vizku og náð hjá guði og mönn- um. Slíkr skóli hefir það fram yfir vanalega prédikan guðs orðs, að þar er engin saman hangandi rœða, heldr nokkurs kon- ar samtal milli kennaranna og hinna einstöku lærisveina, og við slíkt samtal verðr það guðs orð, sem að inönnum er haldið, algjörlega persónulegt fyrir hvern og einn. þeim, sem á sunnu- dagsskóla ganga, gefst þar svo ágætt tœkifœri til að koma fram með sínar eigin hugsanir og tilfinningar út af guðs orði; menn læra þar svo vel að leggja mælikvarða kristindómsins við sína eigin lífsreynslu og andlegu stefnu; menn tala um synd og náð eins náttúrlega eins og hvert annað atriði, sem mœtir í hinu daglega lífi. Og svo hljóta menn þá að hafa yndi af þeim sann- leik, sem kristindómrinn hefir meðferðis, þar sem menn rneira og meira læra að skoða hann og tala saman um hann eins og sína persónulega eign, en ekki eins og nokkuð fyrir utan sig langt í burtu. I sunnudagsskólanum fá kennendrnir svo ágætt tœkifœri til að kynnast lærisveinum sínum, læra að þekkja veikleika þeirra og styrkleika, og því lengr sem samvinnu læri- sveina og kennara á sunnudagsskóla er haldið áfram, því betr verða kennendrnir fœrir um að gefa hverjurn einstökum af lærisveinunum áríðandi bendingar fyrir lífið. það er vitaskuld að hver sunnudagsskólakennari verðr í anda að vera snortinn af efni því, sem um er að rœða, það er að segja : hinum kristi-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.