Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1887, Síða 15

Sameiningin - 01.05.1887, Síða 15
—47— kenndr af stjórninni, þá eru þessi lög alþingis frá 1885 hrein og bein handarskömni, þar sem konungr samkvæmt þeim getr neitaS staðfesting á hverjum utanþjóðkirkjupresti sem er, hve lengi sem honum, eSa réttara þeim, er vilja konungs ráSa, lízt, og sífelldri kúgan má þannig beita viS þá, sem utan þjóSkirkj- unnar standa; og þaS væri óhœfa, ef alþing 1887 léti hjá líSa að um snúa þessum heimskulegu harSstjórnarlögum, er þó voru til búin í þeim tilgangi aS stySja eSlilegt samvizkufrelsi manna, í þá átt, aS þaS fáist, sem upphatiega var til ætlazt aS fengist meS lögum þessum. —Lausn frá prestskap hafa fengið séra Jón Sveinsson aS Mælifelli og séra þorvaldr Ásgeirsson í Steinnesi.—Séra Jón Eiríksson, uppgjafaprestr aS Stóra-iNúpi, er látinn. —Séra Friðrik J. Bergmann fermdi 42 ungmenni um pásk- ana í söfnuðum sínum á GarSar, Mountain og Hallson. SíSan hefir hann ferðazt suSr til hinnar íslenzku byggSar umhverfis Minneota í Lyon Co., Minnesota, í þeim erindum að stySja aS kirkjumálum fólks vors þar. Hr. Níels Steingrímr þorláksson, sem stuudað hefir scuðfrœSisnám um nokkur undan farin ár viS háskólann í Kristjanía í Norvegi, fékk, sem kunnugt er, köll- un til prestskapar frá fólki í þessari íslendingabyggS síðast liS- iS sumar, og liefir hann ákveSiS, ef heilsa og aðrar vtri ástœður leyfa, aS verða viS þeirri áskoran og koma vestr um haf í sum- ar til sarnvinnu með þeirn, cr hér berjast fyrir kristindómi þjóS- flokks vors. —Bitstjóri „Sameiningarinnar“ hefir lengst af veriS heilsu- lasinn í vetr, en seinast í Marzmánuði varS hann aS hætta að prédika, og hefir legiS í rúminu síðan í vikunni fyrir páska. Engar íslenzkar prédikunar-guSsþjónustur hafa því í síSustu tíS veriS hér í Winnipeg. —Séra Magnús Andrésson, prófastr, á Gilsbakka í Borgar- firði, lét í ljósi í haust, að hann væri eigi ófús aS koma hingað til vor og starfa meS oss fyrir kirkju Islendinga hér. Ut af því ályktuSu söfnuðirnir í Argyle hér vestr í Manitoba aS senda honum köllun til prestskapar; en þegar til kom, gat hann af gildum ástœSum, því miðr, eigi þegið boSiS.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.