Sameiningin - 01.06.1887, Side 6
3 fermdir gengiS á skóla. þetta að svo tiltölulega fáir unglingar
hér hjá oss haldaáfram með sitt kristindómsnám eftir að þeir eru,
fermdir má nú svona áþreifanlega sýna með tölum. En hitt
verðr ekki eins skýrt sýnt, enda þútt það sé víst, að þeir eru sorg-
lega margir, sem hér hjá oss hafa áðr en langt leið frá ferining-
unni með tilliti til trúar eða lífernis horfið frá kristindóminuin og
suinir jafnvel algjörlega dregið sig út úr kirkjunni. Fermingin
þýddi þó einmitt það, að þeir með henni gengi guðikristinna manna
á hönd, sœrist með henni inn í kirkju drottins, cn svo lcemr hitt
fram, að eftir ferminguna eru böndin, sem áttu að binda þá við
drottin, óðum að slitna, þar til ekkert er eftir lengr.
það að svona fer fyrir mörgum eftir að hann hefir fermdr
verið liggr nú eflaust yfirhöfuð að tala í hinni rótgrónu röngu
skoðan á ferrningunni hjá, oss liggr við að segja, öllum þorra al-
mennings þjóðar vorrar. það er svo afar-lítil álierzla á það lögð
í almenningsálitinu, hvað unglingrinn, sem fermdr er, gjörir
sjálfr í fermingunni; því er nærri því alveg gleymt, að unglingr-
inn sjálfr staðfestir þá trú, er hinn kristni söfnuðr játar og sem
hann á órnálga aldri helir verið skírðr upp á, leggr með eigin
munni fram hátíðlega játning um þá trú, er hann vilji lifa og
deyja upp á, vitnar sjálfr um það að kristindómr safnaðarins sé
hans lífsakkeri. Vér segjum að þessu liggi í almenningsálitinu við
að vera alveg gleymt; en hinu halda menn föstu, og á annað virð-
ist varla litið, að prestrinn staðfesti unglinginn, svo fermingin
verðr eftir þessu í raun og veru prestsins verk, en ekki unglings-
ins. Og svo v’ilja menn þá að börn sín sé fermd til þess að þau
þar með fái eins konar andlega innsigling frá kirkjunni upp á það
að þau sé nú orðin fullkomlega kristnir menn. Eftir að ferming-
arinnsiglið er fengið er þá líka eðlilega litið svo á, að öllu kristin-
dómsnámi sé lokið. þetta er herfileg hjátrú, og hana þarf sem
fyrst að brjóta niðr hjá oss. Betra er að öll ferming sé af tekin
hjá oss en að menn fermist upp á þessa hjátrú. Og vér segjurn, að
kirkja vor geti ekki með góðri samvizku haldið fermingarsiðnum,
ef hún sér engin ráð til þess að halda öllum þorra þeirra ung-
menna, er hún lætr ferma, á vegum lifanda kristindóms eftir ferm-
inguna. það verðr litið svo á, og það engan veginu ástœðulaust,
af mótstöðumönnum kirkjunnar, að ferming só að miklu leyti
ekki annað en yiirskotseiðr, syndsamlegr og siðum spillandi, ef því
heldr áfram, að svo og svo stór hópr þeirra, er fermdir eru, rcynist