Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.06.1887, Qupperneq 13

Sameiningin - 01.06.1887, Qupperneq 13
—61 — annars nærri eingöngu um þaö, þegar beöið er um líkamleg eða jarðnesk gœði, en segir þó, að vér eigum að kosta kapps um að „biðja e i n u n g i s um andlegar blessanir, ánþess þóað leggja höft á þörf vora til að biðja um hvað sem vera skal“! Hann trúir því ekki, að bœnin geti haft nein áhrif á guð. En á öðrum stað, í ritgjörð sinni í „Heimskringlu“ nr. 19 gegn ritdómi vorum á hinum tveim áðr út komnu rœðum hans, heldr hann því þó fast fram, að bœn í Jesú nafni liafi áhrif á guð og komi honum til að veita oss það, er oss vanhagar um. Svona lendir hann aftr og aftr í mótsögn við sjálfan sig einmitt á meðan hann er að draga kirkjuna í sundr í háði fyrir henn- ar „mótsagnir". Hann leggr ákaflega mikla áherzlu á hið svo kallaða náttúrulöginál guðs, og eigi verðr betr séð en að hon- um virðist guði alveg ofvaxið að ráða við það, úr þvi hann einu sinni er nú búinn að hleypa því á stað. „Hegning synd- arinnar er náttúrulöginál, eins og líka umbun dyggðarinnar", segir hann. Eftir „náttúrulögmálinu" ætti nú sá maðr, sem kýs sér syndina og forherðir sig móti guði óhjákvæmilega að sökkva æ dýpra og dýpra og eilífr dauði að liggja opinn fyrir, því eftir skoðan Jansons getr guð ekki upp hafið „náttúrulög- mál“ sitt. þessi ályktan ætti þannig að leiða til trúarinnar á eilífa fyrirdœming; en henni neitar hann nú einmitt og kemst þannig enn á ný í mótsögn við sjálfan sig, eða með öðrum orð- um neitar því að draga rétta ályktan af sínum fyrri setningum. 1 stað þess grípr hann nú til guðs kærleika, sem þannig á end- anurn ryðr „náttúrulögmálinu" á burtu, svo syndarinn snýr við og frelsast. Að Jesús Kristr kennir skýlaust, að til sé eilíf fyr- irdœming, þarf ekki að sanna hér. Guðspjöllin bera þess órœk- an vott. Og leggi maðr frjálsræði mannsins til grundvallar fyrir skoðan sinni, þá hlýtr náttúrleg hugsan heilbrigðrar skyn- semi að komast til sömu niðrstöðu. En gangi inaðr aftr á móti út frá hugmyndinni um kærleik guðs, þá rís hugsan mannsins. svo framarlega sem hrin að öðru leyti tekr ekki tillit til þess, sem um þetta efni er opinberað í guðs orði, öndverð á móti eilífri fyrirdœming. Eftir skoðan Jansons ræðr guð ekkert við sína heims- maskínu, hér í tímanum að minnsta kosti, annað en láta hana ganga eftir sínum óbreytanlegu náttúrulögum. Maðrinn kvelst, andvarpar, biðr, og það hefir engin áhrif á guð. Guð getr ekki

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.