Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1887, Blaðsíða 1

Sameiningin - 01.11.1887, Blaðsíða 1
Mánað'arrit tii stuðnings lcirkju og kristindómi íslendinga, gefið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi ísl. í Vestrheimi. RITSTJÓRI JÓN BJARNASON. 2. árg. WINNIPEG, NÓYEMBER 1887. Nr 9. Ritlingr einn, nýlega út kominn í Kaupmannahöfn, og út gefinn af „nokkrum Islendingum", um „launalög og launaviðbœtr'”, hefir borizt oss í hendr, sem vér getum ekki leitt hjá oss að benda á, þó að hann, eins og fyrirsögn hans ber með sér, sé beinlínis hvorki kirkjulegs né kristindóms- legs efnis. Vér bendum á hann af því hann flytr þjóð vorri svo átakanlega hugvekju um það, á hverju stigi hin opinbera réttlætistilfinning stendr nú i) á íslandi, nú, þegar hallæri krepp- ir svo mjög að alþýðu, að hungrdauði stendr fyrir dyrunum hjá mörgum, nú, þegar landslýðrinn er að flýja þúsundum saman hingað vestr um haf til þess að bjarga lífinu. Höfundrinn sýn- ir með ómótmælanlegum rökum, að það er alveg öfugt hlutfall á milli efnaástœðna landsins og þess, hvernig vissum flokki meðal embættismannanna eða hinna opinberu starfsmanna þjóð- arinnar er launað fyrir hina embættislegu frammistöðu þeirra. Island er svo fámennt og svo fátœkt land, sem allir vita, og hefir þó fleiri embættismenn tiltölulega en líklega nokkurt land í heimi, og nokkur hluti þessara embættismanna hefir tiltölu- lega langt um hærri laun en til svarandi embættismenn nálega 1) Ritgjörð þessi er til orðin áðr en fréttir komu hingað vestr frá aljángi Jiví, er haldið var í sumar, sem leið, og þess er vert að geta, að þetta síðasta þing heíir ekki verið nærri því eins fúst til að fita einstaka menn á opinberu fé eins og mörg undan farin þing.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.