Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1888, Blaðsíða 7

Sameiningin - 01.03.1888, Blaðsíða 7
—<3— drukkið hinn deyfanda, kvala-stillanda drykk um leiðog þeir voru krossfestir, og þannig aS öllum líkindum ekki eins sárt fundiö tii kvalanna, sem krossfestingin olli, eins og þeir annars hefði gjört. Einn, og það er Jesús, haföi engan slíkan drykk drukkið, svo líkamskvalirnar hafa þá efiaust, og sjálfsagt þá einnig sálar- kvalirnar, orðið honum lang-tilfinnanlegastar. Nú skulum vér hugsa oss þrjá menn bundna við alveg sams konar kross í hinu almenna mannlífi eins og það er hér hjá oss. Allir kannast við orðið húskross. Húskrossinn getr nú vitaalega verið með ýmsu móti. það var einu sinni móðir, sem átti dóttur, er kvaldist—þunglega—af djötlinum. það var húskross, ein- liver þyngsti húskross, sem hugsazt getr. Slíkr húskross er enn til, og það þarf ekki langt að fara til að leita að viðlíka hús- krossi. það var einu sinni maðr, sem missti allar eigur sínar í einu. það lit af fyrir sig var þuugr húskross, sérstaklega þeg- ar það er haft í huga, að inaðrinn var áðr stór-ríkr; en svo ruissti hann öll börnin sín, efnileg og elskuleg börn, rétt á eftir—tvöfaldr liræðilegr húskross ; og svo er hann í tilbót sviftr heilsunni allt i einu, og yfir hann látinn koma viðbjóðs- legr og kveljandi, seigpínandi sjúkdómr, og svo, þegar þar er komið, koma vinir lians, sem verið höfðu, til að hugffa liann, en “O orðin, sem þeir tala við hann, eru ekki til annars en særa hann enn þá meira. það er meira en þréfaldr húskross þetta. Hugs- um oss nú þetta ekki allt í einu liggjanda á einum og sama aum- ingja, heldr í þrennu eða fernu lagi. Nóg er samt. Slíkir hús- krossar eru ekki heldr mjög langt í burtu frá neinum nú. Tökum nú einhvern slíkan húskross, eða þó ekki væri nema brot af einhverjum slíkum húskrossi, og þrjá menn þar við bundna ; það er alveg sama mótlætið, sem á þá alla er lagt. þér stendr á sama, við hvern þessara þriggja krossa þú værir bundinn, ef svo yrði endilega að vera. En nú er að líta til hinna þriggja, sem krossfestir hangaá Golgata : Tveir taka deyf- anda, hálfsvæfanda drykk um leið og þeir stíga upp á krossinn til þess að finna ekki eins sárt til. Einn drekkr ekki og hefir svo sína fullkomnu tilfinning. Viltu svæfa tilfinning hjarta þíns, maðr, þegar þú átt að mœta þínum húskrossi ? það gjöra óneitanlega sumir, og svo er eins og þeim standi á sarna, á hverju gengr. það eru tii þeir foreldrar, sem sjá, að þeir eru að rnissa

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.