Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1889, Blaðsíða 9

Sameiningin - 01.04.1889, Blaðsíða 9
„Menningaríe)ags‘!-aiKli, sem gaus upp í einu af vorum ís- lenzku byggðarlögum hér t landinu f'yrir skömmu, Qg lét svo mikiö yfir sér, þóttist mundu geta fœrt mönnum heim sanninn um þaö, að kristindómrinn væri elcki annað en gamalt æfintýri, — var liann, vildi eg spyrja, nokkuð ann- að en sami alvöruleysis-andinn og sá, er sterkast réð hjá Heródesi ? Var það kannske alvarleg rannsókn um œðsta velferðarmál mannlegrar sálar, er þar réð ? Eg ímynda mér ckki, aö neinum heilvita ínanni detti það fyrir alvöru í hug. — Jiað þarf nú lítið um þetta að tala; hvorttveggja þetta liggr fjær oss en það, er eg nú vil ininnast á. Hvorttveggja þetta er að mestu fyrir utan kirkjuna. En það, sem eg vildi nefna helzt í þessu samhandi, er í kirkj- unni sjálfri, meðal vors eigin kirkjulýðs. það vita allir um liið sorglega skrípatrúar-kristniboð, sem hér er grundvallaö í bœnum fyrir Islendinga og lialdið í gangi í náfni pres- liyteríönsku kirkjunnar. Allir safnaðarlimir vorir og fjölda- margir utan safnaðar vors og nálega allir annarra þjóða menn, sem um það vita, viðrkenna, að það sé háðung og Imeyksli. Hvernig stendr þá á því, að vort fólk, safnaðar- limir vorir eigi síðr en aðrir, þyrpist á þá trúarhoðsfundi vilcu eftir viku og mánuð eftir mánuð ? Hvernig víkr því við, að svona lagaðir trúarhoðar hafa sí og æ fullt liús ? Eg vildi )i ver einstakr yðar gjörði sér það ómak aö tinna skynsamlegt svar upp á þessar spurningar. Eg heíi verið að hugsa um þessa ráðgátu, og eg get ekki leyst hana með neinu öðru en þessu: Heródes Antípas er enn með fullu lífi í þessu voru íslenzka mannfélagi. Heródes Antípas er um jiessar mundir staddr í Jerúsalem. Andi þessa Heró- desar á heima, hetir undarlega sterkt ríki, í þessum söfn- uöi. það er samskonar forvitni, sem smalar vorum safn- aðarlimum á þessar skrípatrúarsamkomur eins og sú, er Heródes Antípas var svo fullur af og sem fyllti hann svo lijartanlegri kæti, j-egar hann fékk að sjá hinn nafnfræga handingja leiddan til sín. Til hvers koma þeir menn, sem álíta hinar umtiiluðu trúarboðssamkomur lineyksli og tál, á þær samkomur ? Ekki getr það veriö til þess að upp- byggjast andlega, ekki til þess að biðja, ekki til þess að

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.