Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1890, Blaðsíða 13

Sameiningin - 01.09.1890, Blaðsíða 13
—109— flokki vorura í landi þessu og bera framí'arir hans og raenn- ing fyrir brjósti, eru sjálfsagðir fulltrúar og tíutningsmenn vorrar fyrii-buguðu skólastofnunar. Winnipeg, 5. Sept. 1890. , Fr. J. Bergmann, Jón Bjarnason, Hafsteinn Pétrsson, Fr. Friffrikssov, Atagnús Pálsson. Síðasta kirkjuþing fól forseta kirkjufélagsins að tiltaka einhvem vissan sunnudag á þessu ári, þá cl' þess skyidi hátíðlega íninnzt við opinberar guðsþjónustur safnaðanna, að árið 1540 eignaðist ] jóð vor fyrst nýja testamentið á sinni eigin tungu og að nú í ár eru þannig rétt 350 ár liðin síðan sá þýðingartnikli atburðr gjörðist í hinni íslenzku kirkjusogu. Hið nefnda ár kom nefnilega út í Hróarskeldu í Danmörku hiri íslenzka þýðing nýja testainentisins eftir Odd Gottskálksson. Með nýja testamentinu á íslenzku er Lúterdómrinn andlega grundvallaðr hjá þjóðinni. því sýn- ist bezt við ciga, að vér setjum endrminninguna um þessa fyrstu útkomu nýja testamentisins á vorri tungu í sam- bandi við daginn, sem talinn er byrjunardagr lútersku trú- arbótarinnar, daginn ]>á er Marteinn Lúter sló hiuum trú- arlegu yflrlýsingum sínum í drottins nafni upp á kirkjuhurð- ina í Wittenberg, sem leiddi til þess, að hin göfuga kirkju- deild vor, lúterska kirkjan, varð til. Sá dagr er 31. Október. það er í ár föstudagr. Og» annaðhvort næsti sunnudagr á undan eða eftir þeim degi er þá í rauninni sjálfkjörinn til þess við guðsþjónusturnar í söfnuðum vorum að minnast fyrstu útkomu nvja testamentisins á vorii tungu. Af því að Lúterdóinrinn náði ekki hið ytra fullkominni festu á Islandi fyr en nokkrum árum eftir að nýja testamentið kom út á íslenzku, hefir mér sýnzt við eiga að velja heldr hinn fyrra sunnudaginn. x Og svo auglýsi eg þá liér með þá ályktan, að þessa merkisatburðar í kirkjusögu þjóðar vorrar, útkomu hins nýja testamentis á íslenzku, verði í prédikunum prestanna m'nnzt við opinberar guðsþjóuustur í söfnuðum kirkjufélags vors sunnudaginn 26. Október, sem er 21. sd. eftir trínitatis. En með því að flestir prestar kirkjufólagsins þjóna fleirum söfn-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.