Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1891, Blaðsíða 7

Sameiningin - 01.07.1891, Blaðsíða 7
—71— þinginu grein fyrir því og biðja um afsökun þess. Tillagan fer einnig fram á, að bœtt sé aftan við 6. grein: „Komi þaS fyrir, að einhver söínuðr sendi ekki er- indsreka á kirkjuþingið, verðr söfnuðrinn samt að senda þinginu álitsmál og önnur skilríki fyrir það ár“. Nefndin sér ekki ástœðu til að lengja greinina með þessari viðbót. Að sá eða þeir söfnuðir, sem ekki senda menn á kirkjuþing gjöri einmitt það, sem tillagan fer fram á, liggr algjörlega í hlutarins eðli. Nefndin finnr sérstaka ástœðu til að taka það fram, að hún álítr það mjög óheppilegt, að einlægt sé verið að breyta grundvallarlögum kirkjufélagsins. Auðvitað er langt frá, að þau sé svo fullkomin, að ekki sé unnt að bœta þau. En hversu ófullkomin sem þau eru, standa þau eng- an veginn í sinni núverandi mynd fyrir félagsþrifum. Si- felldar breytingar á grundvallarlögum eru að eins til að mynda los og rugling á félagshugmyndinni og þess vegna ætti að forðast þær á því stigi, sem félagsskapr vor nú stendr. II. Játningarmálið. Nefndin ræðr þinginu til að samþykkja eftirfylgjandi játning, sem undirskriíuð sé af prestum og erindsrekum safnaðanna þegar eftir setning hvers kirkjuþings: Vér undirskrifaðir prestar og kirkjuþingsmenn endrtök- um liér með hina lúterslcu trúarjátning safnaða vorra, er vér sem meðlimir hinnar lút. kirkju áðr höfum gjört, og skuldbindum oss hátíðlega til að starfa á þessu kirkju- þingi og heima í söfnuðum vorum að þeim málum, sem hér verða samþykkt, samkvæmt grundvallarlögum lcirkju- félags vors og tilgangi þeirra. Fr. J. Bergmaun, Jón Bjarnason, Fr. Frið'rilcsson. Nefndinni, er íhuga skyldi ársskýrslu forseta, falið á hendr að veita móttöku kirkjuþingsmálum og raða þeim á dagskrá. Séra Hafsteinn Pétrsson flutti því næst fyrirlestr um eilífa ófarsœld. Að honum enduðum skýrði forseti frá, að þeim séra Magnúsi Skaftasen og Unítara-trúboðanum Birni Pétrssyni hefði af sér og þeim hinum prestum kirkjufélags- ins upp á væntanlegt samþylcki þingsins verið gefinn kostr á að taka þátt í umrœðum fit af fyrirlestrinum, upp á það, að að eins tveir menn töluðu fyrir hönd kirkjunnar. þessi ráðstöfun viðvíkjandi umrœðunum var mótmælalaust samþykkt af kirkjuþinginu, og voru þeir séra Steingrímr

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.