Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.07.1891, Qupperneq 13

Sameiningin - 01.07.1891, Qupperneq 13
—77— Nefndin ræSr þinginu til aS sarnþykkja eftirfyigjandi ályktaair: 1. það er vitanlegt, að séra M. J. Skaftasen hóf að kenna gagnstœtt trúarjátning kirkjufélagsins meðan hann enn þá var meðlimr þess og prestr lúterskra safnaða. Með því hefir hann eigi aðeins hrotið móti móti þessum söfnuð- um heldr og gegn kirkjufélaginu í heild sinni, þar sem hann hefir rofið það heit, er hann vann um leið og hann ritaði undir lög kirkjufélagsins. Með tilliti til trúarjátningar var það heit að eins endrtekning þess prestaeiðs, er hann vann við prestsvígslu sína. Slík aðferð er gagnstœð anda krist- indómsins og kirkjulegri reglu. 2. þegar séra M. J. Skaftasen tilkynnir forseta kirkju- félagsins úrgöngu sína úr félaginu, þá fœrir hann alls enga ástœðu fyrir þessari breytni sinni. þessi aðferð Sýnir skort á virðing fyrir þeirri kirkju, sem hann hafði svarið trú og hollustu. 3. A kirkjuþingi þessu hélt séra M. J. Skaftasen þannig vörn uppi fyrir máli sínu, að það kom ijóslega fram, að hann ekki að eins neitar kenning kirkjunnar urn fyrirdœminguna, heldr og guðlegum áreiðanlegleik heilagr- ar ritningar. Trúarneitun hans leiðir til neitunar á frið- þægingarlœrdómnum og inn á vantrúarskoðanir Únítara. þetta hefir hann sýnt í verkir.u með, því t. d. að prédika um þessar mundir á opinberri samkomu Únítara hér í Winnipeg. 4. Af þeim söfnuðurn séra M. J. Skaftasens, sem hafa gengið úr kirkjufélaginu, hefir Árnessöfnuðr einn gjört tilraun til að fœra ástœðu fyrir úrgöngu sinni. Og ástœð- an er þessi: Að söfnuðrinn hafi samið við séra M. um prests- þjónustu áðr en hann hvarf frá trúarjátning kirkjunnar, og gangi því söfnuðrinn úr kirkjufélaginu. þessi ástœða fellr algjörlega, þar sem það samkvæmt 10. gr. grundvall- arlaga kirkjufélagsins er skylda hvers kristins safnaðar að segja þeim presti upp þjónustu, sem kennir gagnstœtt trú- arjátning safnaðarins. 5. Breiðuvíkr- og Gimli-söfnuðr fœra enga ástœðu fyrir úrgöngu sinni. En það var siðferðisleg og kristileg skylda þeirra. 6. Yfirlýsingin um úrgöngu Víðines-safnaðar er ógild, þar sem nokkur hluti safnaöarins hefir iýst því j’fir, að hann standi í kirkjufélaginu; og er það því til sönnunar, að söfnuðrinn hefir sent erindsreka á kirkjuþing þetta. Yíðines-söfnuðr stendr því enn þá í kirkjufélaginu. Nefndin finnr sér skylt í tilefni af þessu að taka það fram, að þar sem eins stendr á, þá heldr sá hluti safn-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.