Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.07.1891, Side 15

Sameiningin - 01.07.1891, Side 15
—79— S. Bardal) um $105.16. Útistandandi skuldir við blaðið aftr á móti $300.00 fyrir 5. árg. og (á pappírnum) $560.00 fyr- ir eldri árganga. Nefndin í prestleysismálinu kom aftr með álit sitt, og réð hún þar til þess, að þingið feli forseta, að hafa hréfa- viðskifti við guðfrœðinga á Islandi um prestaskort vorn, og að öðru leyti skyldi með það mál farið samkvæmt bendingum í ársskýrslu forseta. En sérstaklega tók nefnd- in fram, að nauðsynlegt væri, að prestar félagsins gjörði við og við á þessu ári ferðir til Nýja íslands til þess að hjálpa kristindómsmálinu þar við út af sundrungar-ástand- inu, sem þar væri rní. Nefndarálitið samþykkt. Um útgáfu „Sameiningarinnar" var næst rœtt all-mikið. Síðan kosin nefnd til að standa fyrir útgáfu blaðsins fyrir næsta ár. þessir voru kosnir: séra Jón Bjarnason, Páll S. Bardal, séra Friðrilc J. Bergmann, séra Hafsteinn Pétrsson Sigurðr Kristofersson, H. Hermann og Jóhann Briem. Málið um útgáfu barnablaðs ályktað að láta bíða til næsta kirkjuþings. Samþykkt, að ágrip af gjörðabók þessa kirkjuþings skyldi geíið út í „Sam.“ eða í auka-nr.i. með því blaðb kostuðu úr kirkjufélagssjóði, eftir því sem ,,Sam.“-nefnd- inni sýndist. 9. fundr, sama dag, kl. 8 e. m. Rœtt málið frá séra Steingr. þorlákssyni um meðul til aff afla fjár til safnaffarþarfa. Tekið frain meðal annars, að rangt væri að hafa danssamkomur og tombólu til að aíia slíks fjár með. — Málinu eftir nokkrar umrœður frest- að til næsta kirkjuþings. Næst vcru umrœður um bindindismál, en afráðið, að fresta því líka til næsta kirkjuþings. Trúboð Runólfs Runólfssonar í TJtah rœtt. þær um- rœður enduðu með því, að samþykkt var, að leitað skyldi ofr-lítilla samskota til stuðnings nefndum trúhoða í söfnuð- unum, og það fé, sem þannig kœmi inu, skyldi gegnum forseta sent manninum. Yíkr-söfnuðr, Garðar-söfnuðr, Yídalíns-s. og Pembína-s. buðu hver um sig að næsta kirkjuþing yrði haldið hjá sér. Ályktað, að þiggja tilboð Garðar-safnaðar.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.