Sameiningin - 01.04.1898, Blaðsíða 12
—28—
Jón biskup Vídalín segir um sama efni á einum staS í postillu
sinni. l>a?S er í prédikaninni á sunnudaginn eftir miðföstu (5.
sd. í föstu) út af hinu gamla guðspjalli fyrir þann dag : Jóh. 8,
46—59. En þessi eru orð Vídalíns, sem hér er við átt:
„þar voru nokkrir spekingar í fyrndinni, er kölluðust
Stóicí. þeir vildu derripa eina tilhneiging með annarri og setja
þær svo í iag. En það ev langsamt nokkuð og vinnst aldrei
vel; því höfuðin á þeirri Iiyclra, syndum spilltri náttúru,—þau
spretta jafnskjótt upp aftr, þó þau sé smámsaman af höggvin.
[Ilydra var einn vatnsormr með mörgum höfðum, svo setn
skáldin dikta. þó eitt væri af liöggvið, vóx það aftr; en
Iíerkúles hjó á hálsinn, svo þau uxu aldrei s'ðan.*] Elskan til
guðs er einn andlegr Herkúles, sá er hálsinn á skrímslinu sundr
brýtr, svo þau ná ekki svo fljótt að vaxa. Hún setr tilheiging-
arnar bezt í lag,—ekki að hún taki þær burt eins og Stóicí
vildu gjöra,—heldr þvingar hún þær til að gjöra sína skyldu og
temr þær með frjálslegum og inndælum þrældótni. Hún kennir
elskunni að elska guð alleina og ekkert annað, reiðinni að
vandlæta í guðs stað, öfundinni að keppast sem hæst í Kristí
skóla, örvæntingunni að vona einkis góðs af heiminum, von-
inni að þo!a og bíða, gleðinni að hafa sína unaðsemd í drottni,
hryggðinni að angrast sinna synda vegna, hræðslunni að óttast
guð, dirfskunni að óttast ei mennina, sem ekki kunna nema
líkamann að deyða.“
Trúarsamtalsfundir.
Seint í Marzmánuði voru tveir slfkir fundir haldnir í
norðrlduta íslendingabyggðarinnar í Norðr-Dakota, í presta-
kalli séra'JónasaijA. Sigurðssonar. Annar þeirra var haldinn í
hinni nýju kirkju Pétrssafnaðar föstudaginn 25. Marz, en liinn
næsta dag á eftir, laugardaginn 26., í kirkju Hallson-safnaðar,
sem lika er nýreist—eins og um er getið í Nóvemberblaði
„Sam.“ fyrir síðast liðið ár. Yeðr var ekki sem notalegast um
það leyti. það blés kaldr vindnæðingr báða dagana. En engu
að síðr voru fundirnir b'iðir býsna vel sóttir, einkum hinn síðar
nefndi. A fyrra fundinum voru af prestum kirkjufélagsins
auk séra Jónasar viðstaddir: séra Friðrik J. Bergmann, séra
*) Neðanmáls grein í postillunni,