Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.01.1900, Page 1

Sameiningin - 01.01.1900, Page 1
itmdntngin. MúnaSarrit til stuffnings kirkju og lcristindómi íslendinga. gefið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi ísl. í Vestrheimi. RITSTJÓRI JÓN BJARNASON. 14. árg. WINNIPEG, JANÚAR 1900. Nr. 11. Kirkjulefí bylting í Reykjavík. Stórtíöindi mega ]?aö heita, sein nú uin áramótin bárust hingað vestr frá Islandi, að þar í höfuðstaðnum, Reykjavík, sé myndaðr fríkirkjusöfnuðr upp á þúsund manns eða rúmlega það. þetta hefir víst komið flatt upp á lang-flesta. Menn bjuggust eflaust alls ekki við því, að neitt þvílíkt myndi koma fyrir, — allra sí/.t svona bráðlega. það var að vísu farið að kvisast í Reykjavík í September-mánuði sfðastliðnum, að ein- hver samtök væri þar byrjuð í þessa átt. En að svona mikið myndi úr þeim samtökum verða, að svona mikill útstraumr myndi nærri því allt í einu verða úr þjóðkirkjunni þar í bœn- um, það grunaði naumast neinn þá. Samtökin hófust eftir því, sem sagt var, út af óánœgju hjá ýmsum Reykvíkingum með afskifti síðasta alþingis af lögum landsins um gjaldskyldu manna í kirkjulega átt. Sú breyting, sem þingið vildi gjöra á áðr gildandi lögum þeirrar tegundar, þótti koma hart niðr á nokkrum hluta bœjarbúa. þetta var sú orsök samtakanna, sem næst lá. En hin vaxandi óánœgja almennings á íslandi með þjóðkirkju-fyrirkomulagið, sú sannfœring, sem nú upp á síðkastið hefir óðum náð sér niðri í huga rnargra þar heima, að það fyrirkomulag á stjórn kirkjunnar sé kristindómslífinu til hindrunar og tjóns, — það er alveg vafalaust aðal-orsök

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.