Sameiningin - 01.01.1900, Síða 12
Er kirkjan þar nýbyggð, mjög snotr og hin eina kirkja í því
prófastsdœmi, sem hituð ér með ofni. Má telja ]?að stór-
framför. —• Kirkjurnar á Islandi þurfa að verða heitari en nú
eru þær, jafnvel í fleirum en einum skilningi. Kirkjurnar hið
ytra hafa tekið miklum framförum í síðustu tíð, ]?ó telja megi
víst, að kirkjulífið hið innra hafi á sama tíma verið í aftrför.
Blönduós-kirkjan er eitt slíkt framfara-tákn. Hver, sem ber
hana saman við kirkjuna á Hjaltabakka, sem er lögð niðr,
en stendr þó enn, og tilheyrði ninum yngri kirkjum og var
af timbri gjör, hlýtr að sjá framför, menningarvott að minnsta
kosti. Auk þess mun sú kirkja sótt í betra lagi, enda lögðu
sóknarmenn á sig aukagjald til þess að byggja kirkjuna, og er
]?að spor í rétta átt. En hinu má ekki gleyma, ]?ó smáatriði
megi virðast, að einn ofn í heilu prófastsdœmi er ónógr. —
Hver kirkja á íslandi þarf að eignast ofn og vera eldtryggð.
Hversu harðar og háar kröfur,sem gjöra má til prestanna,geta
]?eir aldrei komið í stað þeirrar hitavélar; — ]?eir hafa að jafn-
aði nóg með að hita upp prédikunarstólinn — og hjörtun, þó
söfnuðrinn hiti réttilega kirkjuna.
Sýnishorn af endrskoðan íslenzku biblíuþýðingarinnar,
sem nú er verið að vinna að, kom út snemma í sumar, sem
leið, í Reykjavík. það er ,,Fyrsta bók Móseii, ásamt smá-
brotum af 2. og 3. bók Mósesar, sínu úr hvorri af ]?eim bók-
um ; — alls ellefu hálf-arkir í 8 bl. broti. Formáli er með
eftir Hallgrím biskup Sveinsson. I endrskoðunarnefndinni eru
auk biskups ]?eir séra þórhallr Bjarnarson, forstöðumaðr
prestaskólans, og Steingrímr Thorsteinsson, yfirkennari við
latínuskólann. En Haraldr Níelsson, guðfrœðis-kandídat, er
sá, sem vinnr aðal-verkið við endrskoðanina, til ]?ess ráðinn af
stjórnarnefnd ísl. biblíufélagsins. Hr. Haraldr hefir um tíma
í sumar, sem leið, dvalið á þýzkalandi til þess að auka þekk-
ing sína á hebresku í því skyni að verða því fœrari til að eiga
við þýðing gamla testamentisins. Síðar fór hann til Kaup-
mannahafnar og hafðist þar við um hríð í sama tilgangi.
Búizt líka við, að hann í vetr bregði sér til Englands og dvelji