Fréttablaðið - 23.12.2010, Page 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Fimmtudagur
skoðun 22
23. desember 2010 FIMMTUDAGUR
1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Lokaverkefni útskriftarnema Förðunarskóla Snyrtiakademíunnar:Vetrarævintýri í förðun
Ú tskriftarnemar Förðunar-skóla Snyrtiakademíunnar unnu lokaverkefnin sín undir þemanu „vetrarævintýri“. Alls útskrifuðust 17 nemendur nú fyrir jólin undir handleiðslu Svanhvítar Valgeirsdóttur, en hún tók við skólastjórastöðu Förðu
Kate Moss hefur ýjað að því að hún geti í framtíðinni
hugsað sér að stofna fyrirsætuskóla. Þetta kom fram í viðtali
sem birtist í tímaritinu Company.
F Á K A F E N I 9 - - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0
O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6
Skór & töskur í miklu úrvaliwww.gabor.is
Sérverslun með
Jólagjöfin hennar
Minnum á vinsælu gjafakortin okkar.
Tilboð til jóla 40% afsl
áttur!
Tilboðsverð 5.850 kr.
þorláksm ssaFIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 20102 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Þorláksmessa
veðrið í dag
23. desember 2010
301. tölublað 10. árgangur
dagur til jóla
Opið til 23 í kvöld
1
Fréttablaðið er nú með 187%
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18–49 ára.
Könnun Capacent í ágúst til október 2009 og 2010.
MORGUNBLAÐIÐ
20
09
29
,3%
74,7%
26%
20
10
20
09
71
,4% 20
10
Allt sem þú þarft...
FRÉTTABLAÐIÐ
meiri lestur en Morgunblaðið.
Búist við þátttökumeti
Þorláksmessusund Garpa
haldið í tuttugasta sinn.
tímamót 26
MATUR Borgarbúar keyptu á fjórða
hundrað kíló af skötu í fiskbúðinni
Hafrúnu í Skipholti í gær. Þá eru
ótalin tonnin sem seld voru á veit-
ingastaði. Þetta segir Einar Ósk-
arsson fisksali. Í dag er Þorláks-
messa og þá má gera ráð fyrir að
skötulykt leggi yfir flest hverfi
borgarinnar venju samkvæmt.
„Þetta er svipað og hefur verið
undanfarin ár,“ segir Einar. Mjög
líflegt sé í fiskbúðinni daginn fyrir
Þorláksmessu og aldrei meiri upp-
grip fyrir fisksala. „Það er lang-
mest innkoman af því að það er
orðið svo hátt verð á þessu,“ segir
hann. Fisksalar keppi um sköt-
una, enda hafi veiðin dregist nokk-
uð saman á undanförnum árum.
„Menn eru strax byrjaðir að safna
fyrir næstu jól,“ segir hann.
Einar segir að skatan sem
Hafrún hefur til sölu sé mest-
megnis í sterkari kantinum þótt
einnig sé hægt að fá hana minna
kæsta. „Þótt þeir hafi ekki endi-
lega lyst á að renna henni niður
þegar þar að kemur þá biðja allir
um þá sterkustu.“ - sh / sjá síðu 12
Fisksalar eru þegar farnir að safna skötunni eftirsóttu fyrir næstu jól:
Skötu sporðrennt í tonnavís í dag
VEL KÆST Einar segir að sterka skatan sé alltaf vinsælli en sú minna kæsta. Borgarbúar keyptu á fjórða hundrað kíló af þess-
um umdeilda hátíðarmat í fiskbúðinni Hafrúnu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þótt þeir hafi ekki
endilega lyst á að
renna því niður þegar þar að
kemur þá biðja allir um það
sterkasta.
EINAR ÓSKARSSON
FISKSALI Í HAFRÚNU
FÓLK „Ég hef verið heppinn, verið
réttur maður á réttum stað. En
svo snýst árangur fyrst og fremst
um vinnusemi, og að vera trúr
sjálfum sér
og viðfangs-
efninu,“ segir
Kristinn Sig-
mundsson
söngvari sem
er staddur hér
á landi. Krist-
inn, sem er far-
sælasti klass-
íski söngvari
Íslands, hefur í
nógu að snúast á
nýju ári. Þrátt fyrir annir reyn-
ir hann alltaf að koma heim yfir
jólin. „Það hefur eiginlega alltaf
tekist,“ segir Kristinn sem hafn-
aði eitt sinn hlutverki í Metropo-
litan-óperunni í New York til að
komast heim um jólin.
- sbt / sjá síðu 18
Kristinn Sigmundsson:
Tekur íslensk
jól fram yfir
Metropolitan
KRISTINN
SIGMUNDSSON
HVASST SYÐST Í dag verða austan
8-15 m/s S- og V-til en annars hæg-
ari. Éljagangur syðra en annars víða
úrkomulaust. Frost víða 0-10 stig.
VEÐUR 4
-1
-3
-5
-9
-8
Topp tíu listinn klár
Það er ljóst hverjir eru í tíu
efstu sætunum í kjörinu á
Íþróttamanni ársins 2010.
sport 42
Fyrirburar fá húfur
Priscilla Magnúsdóttir
ætlar að afhenda vökudeild
Barnaspítala Hringsins 600
prjónahúfur.
fólk 36
DÝRALÍF Það hefur verið staðfest
með erfðafræðirannsóknum að
í Afríku lifa tvær tegundir fíla.
Afríski skógarfíllinn er önnur
og afríski gresjufíllinn er hin.
Þessar tegundir eru mjög líkar
og voru til skamms tíma taldar
sem ein tegund. Gresjufíllinn er
nokkuð stærri en skógarfíllinn.
Vísindamenn frá Harvard-
háskóla í Bandaríkjunum og
samstarfsmenn þeirra við York-
háskólann í Bretlandi hafa sýnt
fram á þetta.
Samkvæmt niðurstöðum rann-
sókna þeirra eru tegundirnar
fjarskyldir ættingjar sem hafa
lifað sem aðskildar tegundir í
tvær til sjö milljónir ára.
Athygli vakti að tegundirnar
tvær eru ekki skyldari en Asíu-
fíllinn og loðfílar, eða mamm-
útar, sem eru taldir hafa dáið út
fyrir um tíu þúsund árum. - shá
Erfðafræðin staðfestir grun:
Tvær tegundir
fíla í Afríku
MENNING „Við sjáum engin
merki þess að bókasala sé
að minnka,“ segir Kristj-
án B. Jónasson, formað-
ur Félags íslenskra bóka-
útgefenda, um söluna í ár.
Gert er ráð fyrir því að
velta bókaársins verði í
samræmi við síðustu ár,
í kringum 4,7 til 4,8 milljarðar
króna.
„Í ár koma út miklu fleiri bækur
en í fyrra. Ég veit til dæmis að hjá
Forlaginu voru gefnar út sextíu
nýjar kiljur á árinu. Það er mjög
mikil aukning frá árinu 2009, í
öllum útgáfum. Það var til dæmis
kvartað undan því í fyrra að það
væri lítið af barnabókum, bæði
innlendum og þýddum. Þetta sner-
ist alveg við núna,“ segir Kristj-
án.
Aldrei hafa verið gefin út jafn
mörg íslensk skáldverk og í ár.
Tvær og hálf milljón bóka
eru keyptar hér á landi
ár hvert, sem jafngildir
um átta bókum á hvern
Íslending.
Kristján segir met-
sölubækur hafa selst í
mjög stórum upplögum
fyrir jólin. „Menn þurfa
að hafa farið vel yfir fimm þús-
und eintök til að komast inn á topp
tíu. Þessar efstu bækur hafa allar
farið yfir tíu þúsund eintök. Arn-
aldur, að mér skilst á Forlaginu,
hefur aldrei selst jafn vel og
Yrsa ekki heldur.“ Bók Arnaldar
Indriðasonar hefur selst í tæplega
þrjátíu þúsund eintökum og Yrsu
Sigurðardóttur í sextán þúsund
eintökum. Bækurnar sem koma
á eftir söluhæstu bókunum seljast
í sjö til níu þúsund eintökum.
„Það eru kannski fimmtán titlar
allt í allt sem fara yfir fimm þús-
und eintök. Það er í sjálfu sér rosa
fínt og gefur ástæðu til ákveðinn-
ar bjartsýni,“ segir Kristján.
Hann segir alltaf sveiflur í
smekk fólks á bókum. „Í fyrra
voru mikið áberandi sjálfshjálp-
arbækur, þær eru ekki í tísku í ár
en í staðinn koma kannski mat-
reiðslubækur. Við sjáum þrjá,
fjóra titla ganga mjög vel og það
ber mikið á þeim. Þessar hnakka-
bækur, eins og Gillz og Tobba,
eiga líka upp á pallborðið núna,“
segir Kristján.
„Bókin sem vara höfðar til mjög
breiðs hóps, ekki bara einhverrar
elítu sem les bækur, kaupir bækur
og gefur bækur. Það var það sem
alltaf bjó að baki, að breikka vöru-
úrvalið, að fá fleiri lesendur og fá
bækur sem höfða til sem flestra.
Að það skuli vera að takast er
frábært. Ég sé fullt af jákvæðum
teiknum í þessari vertíð.“ - þeb
Bækur seljast fyrir
fimm milljarða í ár
Engin merki eru um minnkandi bókasölu á þessu ári og talið er að heildarvelta
verði rétt undir fimm milljörðum króna. Metsölubækur seljast í stórum upplög-
um. Matreiðslu- og „hnakkabækur“ eru í tísku í ár en ekki sjálfshjálparbækur.
8 bækur að með-altali á
hvern Íslend-
ing á ári.