Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.12.2010, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 23.12.2010, Qupperneq 2
2 23. desember 2010 FIMMTUDAGUR SAMFÉLAGSMÁL Hátt í tuttugu þús- und Íslendingar fá aðstoð við að halda jól þetta árið, er mat tals- manna hjálparsamtaka. Sjö þús- und manns hið minnsta leituðu til samtakanna á síðustu dögum. Stór hópur þarf aðstoð en þiggur hana ekki, af ýmsum ástæðum. Tvenn hjálparsamtök standa að matar- og gjafaúthlutun fyrir jólin. Annars vegar Hjálparstarf kirkj- unnar, Mæðrastyrksnefnd Reykja- víkur, Rauði krossinn í Reykjavík og Hjálpræðisherinn sem standa að sameiginlegri úthlutun undir merkjum Jólaaðstoðar 2010. Hins vegar er það Fjölskylduhjálp Íslands. Reynir Sigurbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Jólaaðstoðar 2010, telur að 4.500 manns hafi leit- að sér aðstoðar eins og áætlanir gerðu ráð fyrir og að hópurinn sé eins samsettur og í fyrra. Þá voru 43 prósent umsækjenda öryrkjar, tuttugu prósent voru á atvinnu- leysisskrá en fimmtán prósent á vinnumarkaði. Sextíu prósent umsækjenda eru konur. „Margar úthlutanir hjá okkur eru til einstæðinga en einnig eru margir sem hafa fjölskyldur að baki sér, þrjá eða fleiri,“ segir Reynir. Fjölskyldusamsetningu metur Jólahjálpin út frá stærð matarpakkana sem er úthlutað. Ásgerður Jóna Flosadóttir, for- maður Fjölskylduhjálpar Íslands, telur það ekki á rökum reist að ein- staklingar stundi það í stórum stíl að leita aðstoðar á tveimur stöð- um. Dæmi séu um slíkt en það sé í undantekningartilfellum. Nákvæm skráning útiloki jafnframt að fleiri en tveir frá sama heimili fái mat- arpakka. Þá sé erfitt eða útilok- að fyrir einstakling sem ekki er í sárri þörf að fá úthlutun. Til Fjölskylduhjálparinnar leit- uðu rúmlega 2.500 manns; um 1.900 á höfuðborgarsvæðinu og 300 á Akureyri og í Keflavík. „Aukningin á þeim átta árum sem Fjölskylduhjálpin hefur starf- að er mikil. Ég gæti trúað að það séu helmingi fleiri sem koma núna en fyrir hrun. Ég held, miðað við nýskráningar núna fyrir jólin, að árið 2011 verði það versta sem við höfum séð.“ Bæði Ásgerður og Reynir taka undir að töluverður fjöldi fólks þiggi ekki aðstoð þrátt fyrir að þörfin sé fyrir hendi. Fyrir því séu ýmsar persónulegar ástæður. „En þetta eru þung spor sem margir treysta sér ekki til að stíga,“ segir Reynir. Meðalfjölskyldan á Íslandi er 2,7 einstaklingar að mati Hagstofunn- ar. Það viðmið bendir til að matar- gjafir nái til hátt í tuttugu þúsund manns. Það eru 7,5 prósent mann- fjöldans á Íslandi. svavar@frettabladid.is Hátt í 20 þúsund fá aðstoð við jólahaldið Sjö þúsund einstaklingar leituðu til hjálparsamtaka síðustu daga. Þörfin fer stigvaxandi á milli ára. Talið er að 7,5 prósent mannfjöldans hafi gengið þau svipugöng að þiggja mat til jólahaldsins en margir þurfandi sitja þó heima. SVIPUGÖNG Svörtustu spár hjálparsamtaka fyrir þessi jól virðast hafa ræst og aldrei hafa fleiri leitað aðstoðar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SPURNING DAGSINS SUÐUR-KÓREA, AP Suður-Kóreuher hótaði Norður-Kóreu hörðum refsingum geri her norðanmanna árás í framhaldi af heræfingum sunnanmanna í gær. Mikil spenna hefur tengst her- æfingum Suður-Kóreu síðustu vikurnar, sérstaklega eftir að Norður-Kóreuher gerði harða árás á eyjuna Yeonpyeong í beinu framhaldi af heræfingum þar fyrir mánuði. Árásirnar kostuðu fjögur mannslíf og ollu bæði skelf- ingu íbúanna og miklum eigna- skemmdum á eyjunni. „Við munum algjörlega refsa óvininum ef hann ögrar okkur aftur eins og með sprengjuárás- unum á Yeongpyeong-eyju,“ sagði Ju Eun-sik, yfirmaður í suður- kóreska hernum. Suður-Kóreuher hefur haldið 47 heræfingar á þessu ári, en æfingin í gær átti að vera sú stærsta sem nokkru sinni hefur verið haldin. Löndin tvö eiga tæknilega enn í stríði, þótt Kóreustríðinu hafi lokið með vopnahléi fyrir meira en hálfri öld. - gb Mikil spenna vegna heræfinga Suður-Kóreu við landamæri Norður-Kóreu: Suður-Kórea hótar öllu illu TÍNIR OSTRUR Á YEONGPYOENG-EYJU Daglegt líf gekk sinn vanagang meðan undirbúningur að heræfingum stóð yfir á herskipunum fyrir utan. NORDICPHOTOS/AFP „Lilja, er fornleifafræði á leið á safnið?“ „Nei, við söfnum liði og látum ekki leggja hana á hilluna.“ Lilja Björk Pálsdóttir er formaður félags íslenskra fornleifafræðinga. Fjárveitingar til fornleifarannsókna hafa skroppið mikið saman á undanförnum misserum og fornleifafræðingar hafa áhyggjur af framtíð greinarinnar. HJÁLPRÆÐISHERINN Gistiheimili Hjálp- ræðishersins við Kirkjustræti. HJÁLPARSTARF Tvær hjálparstofnan- ir, Samhjálp og Hjálpræðisherinn, bjóða þeim sem lítið hafa umleikis að snæða hjá sér um hátíðarnar. Kaffistofa Samhjálpar í Borgar- túni verður opin frá tíu til tvö frá deginum í dag og fram á jóladag. Á hádegi alla dagana verður boðið upp á heitan mat. Sama fyrir- komulag verður á gamlársdag og nýársdag. Þess á milli verður opið frá tíu til fjögur og heitur matur framreiddur klukkan þrjú. Hjálpræðisherinn verður venju samkvæmt með veglegan kvöld- verð á aðfangadagskvöld klukkan sex. Þá verður einnig boðið upp á mat klukkan tvö á jóladag. Hægt er að skrá sig í matinn í afgreiðslu gistihúss Hjálpræðishersins. - sh Samhjálp og Herinn: Matur í boði fyrir þurfandi SAMFÉLAGSMÁL Afsláttur sundlauga Reykjavíkur fyrir eldri borgara verður frá áramótum miðaður við 70 ár í stað 67 ára áður. Til þessa hóps teljast nú nær fjögur þúsund manns á höfuðborgarsvæðinu, sem munu því þurfa að greiða fullan aðgangseyri, eða 450 krónur, eftir að þessi aldurshópur hafi um árabil verið undan- þeginn gjaldi. Samkvæmt nýrri fjárhagsáætlun borgarinnar er aðeins gert ráð fyrir að velferðarsvið niðurgreiði strætisvagnafargjöld og gjald á sundstaði fyrir 70 ára og eldri. Í svari borgaryfirvalda við fyrirspurn Frétta- blaðsins segir að gert sé ráð fyrir að þessi niður- skurður spari borginni um 20 milljónir króna á ári. Ekki verður hreyft við aldursmörkum í annarri þjónustu borgarinnar við aldraða. Sigurður Einarsson, framkvæmdastjóri Félags eldri borgara í Reykjavík, segist óánægður með þessa breytingu og að borgaryfirvöld séu þar á villigötum. „Það er erfitt fyrir fólk að setja beint út á hækk- anir þegar maður veit að staðan er erfið, en það er ekki sama hvernig það er gert. Þegar það er gert með því að ákveða að eldri borgarar séu ekki komnir í þennan hóp, finnst mér það alveg fárán- legt.“ - þj Hluti ellilífeyrisþega mun þurfa að greiða fullt gjald á sundstöðum borgarinnar: Þúsundir missa afslátt í sund FRÁ VESTURBÆJARLAUG Sundlaugar Reykjavíkur hafa hækkað viðmiðunaraldur vegna afsláttar eldri borgara upp í 70 ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM MENNTUN Magnús Árni Magnús- son, rektor Háskólans á Bifröst, hefur óskað eftir að láta af störf- um um áramótin. Bryndís Hlöðversdóttir, dósent og deildarforseti lagadeildar við skólann, hefur verið ráðin rektor í hans stað. Rektorsskipti verða formlega 5. janúar. Magnús Árni mun snúa sér að kennslu og rannsóknum við skól- ann og mun gegna stöðu dósents. Jafnframt á að efla skólann sem sjálfstæðan háskóla og horfið frá hugmyndum um sameiningu. - þeb Rektorsskipti á Bifröst: Magnús hættir sem rektor SAMGÖNGUR Borgaryfirvöld árétta að með samþykkt borgarráðs í síðustu viku um að utanríkisráðu- neytið og flugmálayfirvöld hlutist til um að takmarka umferð her- flugvéla til Reykjavíkurflugvallar er ekki lagst gegn því að erlendir þjóðhöfðingjar komi í heimsókn til landsins. „Kjósi þeir hins vegar að koma í herflugvél er það ósk borgar- yfirvalda að flugmálayfirvöld beini þeim til lendingar á Kefla- víkurflugvelli sem er alþjóða- flugvöllur,“ segir í tilkynningu. Á Keflavíkurflugvelli sé öll aðstaða til lendingar fyrir herflugvélar og gætt fyllsta öryggis sem felst í því að þeim er lagt í sérstakt stæði langt frá öllu farþegaflugi. - shá Þjóðhöfðingjar í herflugi: Vilja fyrirmenni til Keflavíkur Útlendingar veiða minna Afli erlendra ríkja við Ísland var tæp ellefu þúsund tonn árið 2009 miðað við tæp 59 þúsund tonn 2008. Færey- ingar stunduðu aðallega veiðar hér við land á síðasta ári. SJÁVARÚTVEGUR Mótmæla hækkun á raforku „Verði af fyrirhuguðum 8,3 prósent hækkunum á gjaldskrá Rarik munu þær koma harðast niður á íbúum sem hafa ekki aðra hitunarmöguleika en raforku,“ segir sveitarstjórn Skaga- strandar sem mótmælir hækkuninni harðlega. „Sveitarstjórn telur slíkar hækkanir algerlega óásættanlegar og því verri þar sem í fjárlögum er gert ráð fyrir lækkun á niðurgreiðslu til húshitunar.“ SKAGASTRÖND SJÁVARÚTVEGUR Það eru afar jákvæðar fréttir að heildar- vísitala þorsks mældist 20 pró- sent hærri nú en í fyrra,“ að mati Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmda- stjóri LÍÚ, um niðurstöð- ur haustralls Hafrannsókna- stofnunarinn- ar sem kynntar voru á þriðju- dag. Hann segir mikilvægt að vísitölur fyrir árgangana frá 2008 og 2009 mældust þær hæstu frá því að stofnmælingar að hausti hófust árið 1996. Þessir árgangar koma inn í viðmiðunarstofninn 2012 og 2013. Friðrik segir vísbendingarnar um árgangana frá 2008 og 2009 afar mikilvægar eftir sjö lélega árganga þar á undan. - shá Góðar fréttir af þorski: Mikilvægt eftir sjö mögur ár FRIÐRIK J. ARNGRÍMSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.