Fréttablaðið - 23.12.2010, Blaðsíða 4
4 23. desember 2010 FIMMTUDAGUR
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
dæmdur í átta mánaða fangelsi
eftir að hann braust inn í sum-
arbústað í maí síðastliðnum. Úr
bústaðnum stal maðurinn einkum
vínföngum en einnig átján karata
gullhring.
Maðurinn játaði sök greiðlega.
Í dómnum kemur fram að hann
sé fjögurra barna faðir, sem sé
hættur vímuefnaneyslu og búinn
að fara í meðferð. Hann er í fastri
vinnu nú.
Maðurinn rauf skilorð með inn-
brotinu í sumarbústaðinn, sem
er í Árnessýslu. Í ljósi þess var
honum gert að afplána dóminn
sem gera samtals átta mánuði. - jss
Fjögurra barna faðir:
Átta mánuðir
eftir innbrot
NEW YORK, AP Ein af byggingum
höfuðstöðva Sameinuðu þjóð-
anna í New York var rýmd á
miðvikudags vegna óþefs, sem
virtist stafa af gasleka.
Framkvæmdastjórn Samein-
uðu þjóðanna hefur haft aðset-
ur í húsinu, en vegna vinnu við
endurbætur á húsi öryggisráðs
samtakanna og væntanlegri
vinnu við endurbætur á húsi
allsherjarþingsins var búið að
ákveða að bæði öryggisráðið og
allsherjarþingið yrðu þarna til
húsa tímabundið.
Öryggisráðið hefur hist þar á
fundum undanfarið, en allsherj-
arþingið hefur ekki enn verið
flutt. - gb
Bygging SÞ í New York:
Rýmd vegna
óþefs af gasi
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
16°
5°
0°
-2°
1°
7°
-1°
-1°
21°
1°
15°
3°
19°
-14°
0°
11°
-5°Á MORGUN
Stíf A-átt allra syðst
annars hægari.
LAUGARDAGUR
Vaxandi SA-átt.
8-5
-7
-9
-8
-8
0
-10
-3
-3
1
-1
12
8
15
10
13
3
4
3
8
7
-3
-4
-5
0
0
-2 -3
-1
2
1
HVÍT JÓL VÍÐA Það
eru nokkuð góðar
líkur á hvítum jól-
um víða um land
en horfur eru á élja-
gangi víða á suður-
helmingi landsins
á morgun og má
búast við éljum
í höfuðborginni
annað kvöld. Vind-
ur verður fremur
stífur syðra en best
verður veðrið fyrir
norðan.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
DÓMSMÁL Karlmaður um þrí-
tugt hefur verið ákærður fyrir
Héraðsdómi Norðurlands vestra
fyrir fjölmörg brot, þar á meðal
fyrir að stela sautján lyfseðlum
af heimili læknis. Lyfseðlarnir
voru ætlaðir til útgáfu lyfseðils-
skyldra lyfja.
Maðurinn er ákærður fyrir all-
mörg innbrot, flest í apótek. Þá
framvísaði hann nokkrum fölsuð-
um lyfseðlum. - jss
Ákærður fyrir mörg brot:
Stal lyfseðlum
og braust inn
NEMANDI Menntamálaráðuneytið vinnur nú að endur-
skoðun á samningi við Hraðbraut en segir að framtíð
nemenda sé tryggð, hvernig svo sem fer.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ALÞINGI Jón Bjarnason, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra,
skrifaði í gær undir reglugerð
um hámarks-
magn trans-
fitusýra í mat-
vælum.
Samkvæmt
reglugerðinni
er óheimilt
að markaðs-
setja matvæli
sem inni-
halda meira
en tvö grömm
af transfitusýrum í hverjum
hundrað grömmum af heildar-
fitumagni.
Þessar reglur gilda um fitu og
önnur matvæli sem innihalda
fitu. Þetta á bæði við um inni-
haldsefni og afleiðingar fram-
leiðsluferlis. Reglugerðin gildir
hins vegar ekki um transfitu-
sýrur sem eru í dýrafitu. - þeb
Landbúnaðarráðherra í gær:
Reglugerð um
transfitu í gildi
JÓN BJARNASON
MENNTAMÁL Menntamálaráðuneytið endurskoð-
ar nú framtíð samstarfsins við Menntaskólann
Hraðbraut, en þjónustusamningur við skólann
rennur út sumarið 2011.
Elías Jón Guðjónsson, aðstoðarmaður mennta-
málaráðherra, segir engar ákvarðanir hafa
verið teknar innan ráðuneytisins hvað varðar
framtíð Hraðbrautar, en hagsmunir nemenda
skólans séu hafðir í fyrirrúmi.
„Nemendur skólans munu hafa áframhald-
andi tækifæri til þess að ljúka námi sínu,“ segir
Elías. „Við erum að skoða samningana við Hrað-
braut og endanlegar ákvarðanir munu liggja
fyrir fljótlega eftir áramót.“
DV fjallaði um málið í blaði sínu í gær, þar
sem fram kom að Hraðbraut myndi loka og
ráðuneytið hefði nú þegar ákveðið að endur-
nýja ekki þjónustusamninginn. Elías segir DV
fara með rangt mál, engar ákvarðanir hafi verið
teknar í málinu.
Er þetta í ljósi skýrslu Ríkisendurskoðunar og
menntamálanefndar Alþingis um fjármál skól-
ans, þar sem fram kom að eigendur höfðu greitt
sér út arð fyrir rekstur, þrátt fyrir að skólinn
hafi aldrei skilað hagnaði. Þá hafi ráðuneytið
ofgreitt eigendum skólans og ekki gert úttekt á
fjölda nemenda. - sv
STJÓRNMÁL Útgjöld ríkisins til til-
tekinna velferðarmála verða hærri
á næsta ári en var árið 2007.
Samanburður sem gerður var í
fjármálaráðuneytinu á fjárlaga-
frumvörpum áranna 2007 og 2011
leiðir þetta í ljós. Í honum er ekki
tekið tillit til breytinga sem urðu á
frumvörpunum í meðförum þings-
ins.
Um er að ræða útgjöld til líf-
eyristrygginga, sjúkratrygginga,
atvinnuleysistrygginga, framhalds-
skóla og háskóla.
Í fjárlagafrumvarpi ársins 2007
námu útgjöld til þessara málaflokka
tæplega 90 milljörðum króna. Var
það 6,84 prósent af vergri lands-
framleiðslu þess árs.
Í frumvarpi næsta árs voru rúm-
lega 126 milljarðar ætlaðir til áður-
greindra málaflokka. Það eru 7,76
prósent af landsframleiðslu.
Sé fjárhæðin frá 2007 núvirt
nemur hún 120 milljörðum króna.
Útgjöld til allra málaflokkanna
hafa hækkað nokkuð í krónum
talið en standa svo að segja í stað sé
miðað við hlutfall af vergri lands-
framleiðslu. Mesti munurinn er á
útgjöldum til atvinnuleysistrygg-
inga en þau hafa hækkað um 20
milljarða milli áranna.
Sem hlutfall af landsframleiðslu
hafa útgjöld til sjúkratrygginga og
háskóla hækkað en lækkað til líf-
eyristrygginga og framhaldsskóla.
Verg landsframleiðsla árið 2007
var 1.308 milljarðar króna en er
áætluð 1.628 milljarðar á næsta ári.
Vaxtagjöld ríkisins hafa vaxið
gríðarlega á milli áranna 2007 og
2011. Fyrrnefnda árið voru þau
tæpir sautján milljarðar króna, 1,28
prósent af vergri landsframleiðslu,
en á næsta ári munu þau nema 75
milljörðum króna og vera 4,61 pró-
sent af landsframleiðslu.
bjorn@frettabladid.is
GENGIÐ 22.12.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
208,2599
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
116,57 117,13
180,40 181,28
153,15 154,01
20,55 20,67
19,492 19,606
17,092 17,192
1,3955 1,4037
178,37 179,43
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
Síðasti hluti setningar sem höfð var
eftir Svandísi Svavarsdóttur umhverf-
isráðherra féll niður í umfjöllun um
drög að frumvarpi um breytingar á
náttúruverndarlögum í Fréttablaðinu
í gær. Setningin er svona: „Við höfum
ekki haft þær valdheimildir sem hefur
þurft til að grípa inn í slíkar fram-
kvæmdir þótt um sé að ræða svæði
sem eru vernduð samkvæmt lögum
eða eru á náttúruminjaskrá.“
LEIÐRÉTTING
Meira í velferðarmál
á næsta ári en 2007
Hærra hlutfalli af landsframleiðslu verður varið til velferðarmála á næsta ári
heldur en gert var 2007. Útgjöld til málaflokksins eru líka hærri í krónum talið.
2007 Árni Mathiesen lagði fram fjár-
lagafrumvarp ársins 2007. Við kynningu
þess sagði hann stöðu ríkissjóðs vera
að styrkjast. Það gæfi aukna möguleika
á að gera ýmsa hluti. Í frumvarpinu var
gert ráð fyrir 15,5 milljarða afgangi.
2011Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra lagði fram frumvarp næsta árs
í október síðastliðnum. Kallaði hann
frumvarpið hin eiginlegu hrunfjárlög. Í
því var gert ráð fyrir 36 milljarða króna
halla á ríkissjóði á næsta ári.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Ráðuneytið segir að óvíst sé með áframhaldandi samstarf við Menntaskólann Hraðbraut:
Námslok verða tryggð hjá nemendum
OPIÐ TIL
22.00
Í KVÖLD
AÐFANGADAG
10.00–12.00
– FULLT HÚS JÓLAGJAFA
REYKJAVÍK • AKUREYRI
ellingsen.is
Útgjöld til velferðarmála hafa aukist
2011
2007
%
■ Lífeyristryggingar
■ Sjúkratryggingar
■ Atvinnuleysistryggingar
■ Framhaldsskólar
■ Háskólar
0 1 2 3 4 5 6 7 8
0 1 2 3 4 5 6 7 8
2011
2007
%
■ Samtals
■ Vaxtagjöld
Ríkisútgjöld sem hlutfall af vergri landsframleiðslu
Vaxtagjöld og velferðarútgjöld sem hlutfall af vergri landsframleiðslu