Fréttablaðið - 23.12.2010, Page 6
6 23. desember 2010 FIMMTUDAGUR
STJÓRNMÁL Ekki hefur verið ein-
drægni í þingflokki VG um þrjú
veigamikil frumvörp ríkisstjórn-
arinnar.
Tveir, þrír og fimm þingmenn
hafa greitt atkvæði gegn þeim
málum og tveir og þrír greiddu
atkvæði með tillögu frá stjórn-
arandstöðu um að tveimur mál-
anna yrði vísað í þjóðaratkvæða-
greiðslu.
Í desember í fyrra voru greidd
atkvæði um Icesave-lög. Stein-
grímur J. Sigfússon, fjármála-
ráðherra og formaður VG, flutti
frumvarpið. Lilja Mósesdóttir
og Ögmundur Jónasson greiddu
atkvæði gegn því en málið var
samþykkt með 33 atkvæðum.
Þráinn Bertelsson, sem þá var
þingmaður utan flokka, greiddi
atkvæði með frumvarpinu.
Pétur Blöndal bar upp tillögu um
þjóðaratkvæðagreiðslu um málið.
Hún var felld. 30 voru með en 33 á
móti. Ásmundur Einar Daðason og
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir voru
samþykk tillögunni.
Í júlí í fyrra kom tillaga Össur-
ar Skarphéðinssonar utanríkis-
ráðherra um aðildarviðræður við
Evrópusambandið til atkvæða-
greiðslu.
Hún var samþykkt með 33
atkvæðum. 23 þingmenn stjórn-
arandstöðunnar sögðu nei, sem
og fimm þingmenn VG. Þrír þing-
menn Framsóknar, einn sjálf-
stæðismaður og Þráinn greiddu
atkvæði með tillögunni. Tveir
þingmenn greiddu ekki atkvæði,
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir var
annar þeirra.
Formaður og varaformaður
Sjálfstæðisflokksins báru upp til-
lögu um að málið færi í þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Hún var felld með
32 atkvæðum. Auk stjórnarand-
stæðinga sögðu Ásmundur Einar,
Guðfríður Lilja og Lilja Rafney
Magnúsdóttir já.
Sem kunnugt er sátu þrír þing-
menn VG, Atli Gíslason, Ásmund-
ur Einar og Lilja Mósesdóttir, hjá
við atkvæðagreiðslu um fjárlög í
síðustu viku. Fjárlagafrumvarpið
er lagt fram af fjármálaráðherra.
32 þingmenn sögðu já en 31 þing-
maður sat hjá.
bjorn@frettabladid.is
Alltaf einhver í VG á
móti í stórum málum
Tveir, þrír og fimm þingmenn VG hafa greitt atkvæði gegn þremur veigamikl-
um stjórnarmálum. Málin höfðu meirihluta. Tveir og þrír hafa greitt atkvæði
með tillögum stjórnarandstöðu um þjóðaratkvæði um veigamikil mál.
Icesave Samþykkt með 33 atkvæðum
sögðu nei
Tillaga stjórnarandstöð-
unnar um þjóðaratkvæða-
greiðslu um Icesave
Felld
sögðu já
ESB-viðræður Samþykkt með 33 atkvæðum
sögðu nei
Tillaga stjórnarandstöð-
unnar um þjóðaratkvæða-
greiðslu um ESB-viðræður
Felld
sögðu já
Fjárlög 2011 Samþykkt með 32 atkvæðum
sögðu nei
Atkvæði VG-þingmanna gegn stjórninni í veigamiklum málum
Fallegar
gjafaumbúðir
Hentar öllum
Gildir hvar sem er
Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is
Gjafakortið sem
gildir alls staðar
Þú velur upphæðina en viðtakandinn velur gjöfina.
ENDURVINNSLA Sjálfboðaliðarnir hafa
meðal annars kennt fólki að gera veski
úr notuðum mjólkurfernum. MYND/SEEDS
SAMFÉLAGSMÁL Tæplega 60
erlendir sjálfboðaliðar frá nítj-
án þjóðríkjum hafa starfað sem
sjálfboðaliðar við ýmis konar
mannúðarmál á aðventunni.
Þeir sem hafa átt leið um
Laugaveginn undanfarið hafa
eflaust rekist á sjálfboðaliðana,
sem hafa gefið köldum vegfar-
endum heitt súkkulaði og safn-
að um leið fé fyrir Rauða kross
Íslands. Búist er við mikilli ásókn
í heitu drykkina á Þorláksmessu.
Sjálfboðaliðarnir, sem eru hér
á landi á vegum sjálfboðaliða-
samtakanna SEEDS, hafa einnig
aðstoðað við matarúthlutanir, á
jólamarkaði Sólheima og víðar.
- bj
Sjálfboðaliðar frá 19 löndum:
Mannúðarmál
á aðventunni
Dómur fyrir kannabisræktun
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið
dæmdur í þriggja mánaða skilorðs-
bundið fangelsi í Héraðsdómi Reykja-
ness fyrir kannabisræktun. Hann hafði
í fórum sínum 80 kannabisplöntur og
um 37 grömm af kannabis.
LÖGREGLUMÁL
Fundu 90 kannabisplöntur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
stöðvaði kannabisræktun í iðnaðar-
húsnæði í Hafnarfirði um helgina. Við
húsleit fundust 90 kannabisplöntur
og ýmiss konar búnaður sem tengist
kannabisræktun. Karl á fertugsaldri
var handtekinn og játaði sök.
FÉLAGSMÁL Bjarki Steingrímsson,
stjórnarmaður í VR, segir Stef-
án Einar Stefánsson, siðfræðing
og forstöðumann Hins íslenska
Biblíufélags, nota skrifaðstöðu í
Hallgrímskirkju til sinna eigin
afnota.
„Óska ég eftir að háttvirtur bisk-
up Íslands hr. Karl Sigurbjörns-
son hlutist til um að settar verði
skýrar reglur um afnot starfsfólks
kirkjunnar á eignum okkar sókn-
arbarna. Að Hallgrímskirkja skuli
vera vettvangur lítils hóps aðila
sem undirbúa að fella sitjandi for-
mann VR og minnihluta stjórnar
félagsins er harmleikur,“ segir
Bjarki í bréfi til biskups.
Stefán Einar er bæði guðfræð-
ingur og siðfræðingur. Hann er
félagsmaður í VR og hefur að eigin
sögn undanfarið aðstoðað félagið
vegna ósættis innan stjórnar þess.
Nú er svo komið að hann segist
íhuga framboð til formanns stjórn-
arinnar á aðalfundi í vetrarlok.
Stefán segir grátlegt að Hall-
grímskirkja og biskupinn skuli
dregin inn í umræðuna um málefni
VR. „Ég er búinn að svara þessu
gagnvart biskupi og það er alveg
samhljómur milli okkar í þessu
máli,“ segir Stefán um notkunina
á skrifstofunni í Hallgrímskirkju.
„Ég kalla hingað oft til fund-
ar við mig fólk sem ég sinni ráð-
gjafaverkefnum fyrir. Ég kalla
líka hingað nemendur mína sem
ég kenni við háskólana tvo. Það
hentaði mér þennan dag að hitta
þar fólk sem hefur miklar áhyggj-
ur af þróun mála í VR. Mig reynd-
ar grunaði strax að óheilindafólk
myndi reyna að draga þetta inn
í umræðuna þannig að ég flutti
fundinn annað um leið og ég átt-
aði mig á þeirri hættu,“ segir Stef-
án Einar. - gar
Stjórnarmaður í VR sakar hugsanlegan formannsframbjóðanda um siðleysi:
Hafnar ásökun um misnotkun kirkju
STEFÁN EINAR STEFÁNSSON Forstöðu-
maður Hins íslenska Biblíufélags segist
sinna ýmsum ótengdum verkefnum á
skrifstofu félagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
BRETLAND Svartsýnin ræður enn
ríkjum meðal auðugustu þjóða
heims, en íbúar upprennandi
efnahagsvelda á borð við Kína,
Indland, Rússland og Brasilíu eru
hins vegar nokkuð bjartsýnir á
horfurnar.
Þetta kemur fram í nýrri
könnun, sem Gallup gerði meðal
64 þúsund manna í 53 löndum.
Breska útvarpið BBC skýrir frá
þessu á fréttasíðum sínum.
Að meðaltali telja 30 prósent
svarenda að næsta ár verði ár
velfarnaðar, 28 prósent telja að
ástandið versni, en 40 prósent
telja ástandið verða svipað. - gb
Upprennandi ríki bjartsýn:
Svartsýni ríkir
meðal auðríkja
DANMÖRK Troels Lund Poulsen,
skattamálaráðherra Danmerk-
ur, krefst nú upplýsinga um það,
hvaða embættismenn í ráðuneyti
hans vissu um ólöglegar skatt-
heimtur danskra sveitarfélaga.
Fyrir nokkrum vikum upp-
götvaðist að hundruð þúsunda
danskra húseigenda höfðu um
árabil borgað sveitarfélögunum
of háan eignarskatt. Sveitarfélög-
in höfðu ekki veitt skattgreiðend-
um þá frádrætti, sem þeim bar
lögum samkvæmt.
Ljóst þykir að endurgreiða
þarf um það bil milljarð danskra
króna til skattgreiðenda. - gb
Danskir skattgreiðendu:
Húseigendur fá
endurgreiðslu
Hreppsnefnd Hrunamannahrepps
mótmælir harðlega hvers konar
hugmyndum um gjaldtöku í formi
vegatolla á Suðurlandsvegi. Vegurinn
sé lífæð Suðurlands við höfuðborgar-
svæðið og hafi áhrif á allt mannlíf og
atvinnulíf á Suðurlandi.
HRUNAMANNAHREPPUR
Vegatollar sagðir valda tjóni
UMHVERFISMÁL Rangárþing eystra
hyggst setja upp útsýnispall ofan
og austan við Skógafoss. Jafnframt
á að koma fyrir göngutröppu við
Seljalandsfoss.
„Gróðurfar hefur látið stórlega
á sjá á undanförnum árum og með
útsýnispallinum skal reynt að draga
úr þeirri þróun um leið og ferða-
mönnum er gefið einstakt tæki-
færi til þess að upplifa þennan foss
ofan frá. Um leið er dregið úr þeirri
hættu sem í dag stafar frá svæðinu
og þá fyrst og fremst frá einstig-
um sem leiða fram á klettanibbur
við fossinn,“ segir í umsókn Rang-
árþings eystra til Umhverfisstofn-
unar.
Útsýnispallurinn á að rúma þrjá-
tíu til fjörtíu manns og snúa þannig
að hann sé í hvarfi þegar horft er
á Skógafoss neðan frá. Umhverf-
isstofnun samþykkti pallinn með
þessu skilyrði. Að auki á pallurinn að
vera þannig að hægt sé að fjarlægja
hann án sýnilegra ummerkja.
Sveitarfélagið vill einnig setja
upp göngutröppu við Seljalandsfoss.
Afgreiðsla þess erindis hefur ekki
borist sveitarstjórninni. Trappan á
að draga úr slysahættu.
- gar
Umhverfisstofnun samþykkir uppsetningu útsýnispalls ofan við Skógafoss:
Leyfa útsýnispall sem má ekki sjást
SKÓGAFOSS Hættuleg einstigi sem leiða fram á klettanibbur skapa hættu við Skóga-
foss segir sveitarstjórn Rangárþings eystra sem ætlar að byggja þrjátíu til fjörutíu
manna útsýnispall ofan við fossinn. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Fylgdist þú með
tunglmyrkvanum?
JÁ 59%
NEI 41%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Þekkir þú einhvern sem þurfti
að leita til hjálparsamtaka í
desember?
Segðu þína skoðun á visir.is
KJÖRKASSINN