Fréttablaðið - 23.12.2010, Side 12
23. desember 2010 FIMMTUDAGUR
Við afborgunarverð á farsímum bætist 250 kr. greiðslugjald á mánuði.
vodafone.is
Meiri jól,
meiri jól,
meiri jól
Flottur sími með 2 megapixla
myndavél, útvarpi með innbyggðum
FM móttakara og netvafra. Býður upp á
flýtileiðir á helstu vefsamfélög, m.a.
Facebook og Twitter.
LG Cookie Fresh
0 kr. útborgun
og 1.666 kr. á mán. í 12 mán.
Netið í símann, 100 MB,
fylgir með í 1 mánuð.
Staðgreitt: 19.990 kr.
Partý Alias er nú uppselt hjá okkur. Við
þökkum frábærar viðtökur og hvetjum
þá sem eiga spil hjá okkur að sækja
þau sem fyrst í næstu verslun
Vodafone. Við bjóðum áfram frábær
kjör á flottum símum.
Í dag er messudagur Þor-
láks helga Þórhallssonar,
verndardýrlings Íslands að
kaþólskum sið. Þorlákur
lést 23. desember 1193.
Þorlákur fæddist á Hlíðarenda í
Fljótshlíð 1133. Hann lærði fyrst
hjá Eyjólfi Sæmundssyni fróða
í Odda og varð djákni hjá Magn-
úsi biskupi Einarssyni í Skálholti
aðeins fimmtán ára. Ungur var
hann vígður til prests og þurfti að
fá undanþágu til vígslunnar þar
sem lágmarksaldur presta var 25
ár. Kom þar bæði til að Þorlák-
ur þótti hæfur mjög og ágætlega
lærður auk þess sem fátt var um
prestsefni á Suðurlandi á þeim
tíma.
Bónorðið ekki borið upp
Þorlákur stundaði prestskap í
nokkur misseri en hélt til náms í
Englandi og Frakklandi á árabil-
inu 1155-1160, að því að talið
er.
Eftir heimkomuna eggjuðu
frændur hans hann að biðja
sér virðulegrar ekkju, sem bjó
í Háfi í Rangárþingi. Þorlák-
ur hélt þangað en áður en
bónorðið var upp borið
birtist honum í draumi
maður sem mælti: „Veit
eg, að þú ætlar þér hér
konu að biðja, en þú
skalt það mál eigi upp
láta koma, af því að það
mun eigi ráðið verða,
og er þér önnur brúður
miklu æðri huguð, og
skaltu engrar annarrar
fá.“ Þorlákur bað ekki
ekkjunnar né annarrar
konu um ævina.
Lækningamáttur
Þorlákur var í sex vetur
prestur í Kirkjubæ á
Síðu en tók árið 1168 þátt
í að stofna Þykkvabæjar-
klaustur í Álftaveri. Var
hann þar príor í fyrstu
en síðar ábóti.
Hermt er að eftir
blessun Þorláks og
yfirsöngva hafi fólk
orðið heilbrigt og búfé
læknaðist af vatns-
vígslum hans.
Biskup
1174 var Þorlákur kjörinn
biskup á Alþingi. Var hann
vígður fjórum árum síðar í
Niðarósi.
Þorlákur var fylginn sér í
embætti, hann vildi efla
kirkjuvald og deildi um
það við veraldlega höfð-
ingja. Hann gekk ríkt
eftir siðferðismálum
og reyndi að bæta siðu
bæði presta og almenn-
ings. Þá bannaði kirkjan
í hans biskupstíð að goð-
orðsmenn fengju prest-
vígslu. (Goðorð var
stjórnsýslueining og
goðorðsmenn sátu
á Alþingi auk þess
að fara með fram-
kvæmdar- og dóms-
vald).
Dýrlingur
Í Þorláks sögu hinni
elstu er sagt frá daglegum
háttum Þorláks. Var hann
vanafastur mjög og söng til
dæmis sömu sálmana við
daglegar athafnir eins og að
klæðast og afklæðast.
Þorlákur lést 23. desember 1193
eftir þriggja mánaða veikindi.
Hann var tekinn í dýrlingatölu á
Íslandi og áheit á hann leyfð árið
1198. Messudagar hans eru tveir:
dánardagurinn og 20. júlí.
Heilagur Þorlákur þótti vera
dýrlingur alls almennings og
bera hag snauðra fyrir brjósti
ekki síður en efnaðra. Hann
„lagði mikla stund á að elska
fátæka menn. Klæddi hann kalna
en fæddi hugraða …,“ var um
hann sagt.
Jóhannes Páll páfi II. útnefndi
Þorlák verndardýrling Íslands
árið 1984 og er hann verndari
Kristskirkju í Reykjavík. Í kaþ-
ólskum sið voru yfir 50 kirkjur
helgaðar honum á Íslandi.
Þorlákshöfn er að líkindum við
hann kennd.
Samantekt af umfjöllun um Þorlák
helga á Wikipediu. Helstu heimildir
þar eru Þorláks saga hin yngri og
Þorláks saga hin elsta.
„Lagði mikla stund á
að elska fátæka menn“
KRISTSKIRKJA Þorlákur helgi er verndari kirkju kalþólskra í Reykjavík.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kristjana Hrund Bárðardóttir og Guðmundur Daðason
báðu Vísindavefinn um að svara hvers vegna skata er
borðuð á Þorláksmessu. Árni Björnsson svaraði.
Í kaþólskum sið var fasta fyrir jólin og átti þá ekki að
borða mikið góðgæti og einna síst á Þorláksmessu. Það
átti að vera sem mestur munur á föstumat og jólakræs-
ingum, auk þess sem ekki þótti við hæfi að borða kjöt
á dánardegi heilags Þorláks. Þessir matsiðir héldust í
stórum dráttum þótt hætt væri að tilbiðja Þorlák sem
dýrling. Þó var fólki stundum leyft að bragða aðeins á
jólahangikjötinu ef það var soðið á Þorláksmessu.
Aðalreglan var samt sú að borða lélegt fiskmeti á
þessum degi, en misjafnt var hvað hentaði best á hverj-
um stað. Á Suðurlandi var sumstaðar soðinn horaðasti
harðfiskurinn og frá Vopnafirði er þessi vísa til marks um
mataræðið:
Á Þorláksdag í matinn minn
morkinn fékk ég hákarlinn
harðan fiskinn hálfbarinn
og hákarlsgrútarbræðinginn.
Um þetta leyti árs veiddist skata einkum á Vestfjarða-
miðum. Hún þótti enginn herramannsmatur ótilhöfð og
var því algengur Þorláksmessumatur á þeim slóðum. Í
aldanna rás tókst Vestfirðingum á hinn bóginn að tilreiða
úr skötunni mikið ljúfmeti eins og skötustöppuna, og
mörgum þótti það óbrigðult merki þess að jólin væru í
nánd þegar lykt tók að berast af skötustöppu.
Eftir því sem leið á 20. öld flykktist fólk úr öllum
byggðarlögum á suðvesturhorn landsins, Vestfirðingar
ekki síður en aðrir. Þeir söknuðu Þorláksmessuskötunnar
og margir reyndu að útvega sér hana úr heimahögum.
Smám saman smitaði þessi venja þeirra út frá sér og eftir
miðja öldina fóru margar fiskbúðir á höfuðborgarsvæð-
inu að hafa skötu á boðstólum í desember. Fyrir um
aldarfjórðungi fóru svo nokkur veitingahús að bjóða til
skötuveislu á Þorláksmessu og þar með varð þetta tíska.
Þorláksmessuskata er með öðrum orðum ævagömul
á Vestfjörðum en ekki nema nokkurra áratuga gömul á
Reykjavíkursvæðinu.
Alþekkt er í heiminum að matréttir sem upphaflega
urðu til vegna fátæktar eða skorts á framboði þykja
seinna lostæti. Ástæðan er oft það nostur sem hafa
þurfti við matreiðsluna til að gera hráefnið gómsætt.
Þetta á til dæmis við um ýmsa franska skelfisks- og
sniglarétti. Fyrir utan skötuna má á Íslandi nefna laufa-
brauðið sem þurfti að vera örþunnt vegna mjölskorts á
17. og 18. öld, og rjúpuna sem upphaflega var jólamatur
þeirra sem ekki höfðu efni á að slátra kind.
Heimild: Vísindavefurinn
Sem mestur munur á föstumat og jólakræsingum
FRÉTTASKÝRING: Hver var þessi Þorlákur og af hverju borðar fólk skötu í dag?