Fréttablaðið - 23.12.2010, Page 16

Fréttablaðið - 23.12.2010, Page 16
16 23. desember 2010 FIMMTUDAGUR Ýmsar breytingar verða gerðar í sorphirðu í höfuð- borginni á komandi árum. Tvenns konar tunnur verða við hvert heimili og þær verða tæmdar á tíu daga fresti í stað sjö. Borgarráð hefur samþykkt breyt- ingartillögur á sorphirðu í Reykja- vík í hagræðingarskyni og til sam- ræmis við stefnu borgarinnar um að draga úr úrgangi og auka flokk- un til endurvinnslu úrgangs. Meðal breytinga er að á næsta ári verður hafin söfnun á flokkuðu sorpi við heimili í Reykjavík og verða tvenns konar tunnur settar við hvert heimili. Það eru ílát fyrir sorp til endurvinnslu auk núver- andi íláts fyrir blandað heimilis- sorp. Strangari lengdartakmarkan- ir frá sorpbíl til öskutunnu verða settar, þá að hámarki 15 metrar. Áætlað er að um helmingur vinnu- tíma starfsmanna við sorphirðu í Reykjavík fari í það að ganga inn á lóðir íbúa. Nú eru sorpílát víða tugi metra inni á lóðum og sums staðar bak við húsin. Telur borgar- ráð það valda töluverðum töfum á sorphirðu og því eru breytingarn- ar gerðar. Magn heimilissorps í Reykjavík hefur minnkað um 20 prósent á síð- ustu árum og því telur borgarráð að breytingarnar muni hafa óveru- leg áhrif á íbúa. Með breytingun- um er einnig verið að samræma höfuðborgarsvæðið við sorphirðu- tíðni í nágrannasveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu, þar sem tíu daga millibil er algengasti biðtím- inn. sunna@frettabladid.is 16 hagur heimilanna Væntanlegar breytingar á sorphirðu í Reykjavík Frá og með 1. janúar, 2011 Heimilissorp verður sótt á 10 daga fresti í stað 7 daga fresti. Frá og með 1. apríl, 2011 Sorpílát verða sótt að hámarki 15 metra frá sorpbíl. Hægt er að kaupa viðbótarþjónustu fyrir 4.800 krónur á ári ef sækja þarf ílát lengra en 15 metra. Annar möguleiki er að færa sorpílátin á losunardögum eða flytja tunnurnar þar sem það er hægt. Mitt ár 2011 Söfnun á sorpi til endurvinnslu hefst. Reykjavikurborg mun bæta við endurvinnslutunnum við hvert heimili í áföngum og er áætlað að því ljúki árið 2012. Sorphirðugjöld munu ekki hækka. Síðar meir mun Reykja- víkurborg kynna hvaða úrgangsflokka skuli setja í hvora tunnu fyrir sig. Árið 2013 Áætlanir eru um að hafin verði söfnun og vinnsla á lífræn- um eldhúsúrgangi árið 2013. Sú söfnun kallar ekki á viðbótar- tunnu heldur verður sérstakt ílát hengt inn í sorpílátið. Friðrik Þór Friðriksson kvikmynda- gerðarmaður segist ekki í vafa um hver séu hans bestu kaup. „Það var orgel sem ég keypti á sínum tíma og skrifaði til þess undir fyrstu víxlana á lífsleið- inni. Á því varð til dæmis til alveg stórbrotið orgelverk sem ég sendi inn í samkeppni norrænna ungtónskálda.“ Friðrik segir þennan kostagrip enn vera til og hann taki enn í það þó að það hafi verið minna um slíkt í seinni tíð. „Verstu kaupin eru svo hluta- bréf í spænsku símafyrirtæki. Það endaði með því að allir stjórnendur voru hand- teknir og settir í 40 ára fangelsi fyrir glæpastarfsemi.“ Friðrik sagði að þegar illa gekk hjá fram- leiðslufyrirtækinu Hugrenningi hafi þeir farið út í að tippa á fótbolta, en 20 árum síðar hafi Íslenska kvikmyndasamsteypan leitað á hlutabréfamarkaðinn í sama tilgangi. „Mark- aðurinn var reyndar mjög góður á þeim tíma. Það var verið að gefa símamarkaðinn frjáls- an þannig að þarna var hagnaðarvon. Svo reyndust þetta bara vera glæpamenn.“ Neytandinn: Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri Orgel bestu kaupin Tvenns konar tunnur verða við hvert hús URÐUNARSTAÐUR Á ÁLFSNESI Heimilissorp íbúa á höfuðborgarsvæðinu hefur minnkað um 20 prósent á síðustu árum, sam- kvæmt umhverfissviði Reykjavíkurborgar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Neytendastofu hafa borist ábendingar undanfarið um bönd sem eru hættuleg börnum. Annars vegar er um að ræða bönd á blöðrum, en ábending barst um barn sem var hætt komið vegna þess blaðra hafði verið bundin við rúm þess og barnið náði að vefja bandið utan um hálsinn á sér. Á blöðrum sem seldar eru á skemmtunum og hátíðum er stundum áföst snúra sem er sterk og erfitt að slíta. Oft eru böndin fest við úlnliði barna eða kerrur og getur það gerst að börnin vefji þeim um hálsinn á sér. Neytendastofa bendir foreldrum og forráðamönn- um barna á að blöðrur ætti alls ekki binda við vöggu, rúm eða handleggi barna eða þar sem börn eru að leik án eftirlits. Hin tegund varasamra banda eru svokallaðar snuðkeðjur, en Neytendastofu hefur borist ábending frá eftirlitsstofnun í Danmörku sem lét prófa 28 snuðkeðjur þar sem einungis ein tegund uppfyllti öryggiskröfur. Helsta ástæðan fyrir því að snuðkeðjur uppfylltu ekki allar kröfur var sú að bandið var of langt og því hætta á að barnið vefji því um hálsinn á sér og getur það valdið köfnunarhættu. ■ Öryggismál Hættuleg bönd fyrir börn 78.029 KRÓNUR er sú upphæð sem meðalheimili eyddi í sykur, súkkulaði og annað sælgæti á síðasta ári samkvæmt vef Hagstofu Íslands. Flugfélög bæta aðeins fyrir sumar skemmdir sem verða á innrituð- um ferðatöskum og farangri. Icelandair axlar ekki ábyrgð á minni háttar skurðum, rispum eða dældum. Né á hlutum sem standa út úr ferðatöskum eins og útdraganlegum hand- föngum, hjólum, ólum og töskukerrum. Einungis er tekin ábyrgð á því ef töskurnar sjálfar skemmast; brotna eða rifna, og þá við óvarlega meðferð starfsfólks. Flugfélagið tekur enga ábyrgð á verðmætum hlutum í innrituðum farangri. Ef farþegi flugfélaga tekur eftir skemmdum á ferðatösku sinni skal hann þó fara á þjónustuborð og fylla út tjónaskýrslu eða hringja í þjónustueftirlitið á milli klukkan 14.00 og 16.00 virka daga í síma 505 0676. ■ Ferðalög Fæstar skemmdir á farangri bættar Fagfjárfestasjóðurinn LFEST1 Borgartún, kt. 610510-9810, hefur birt lýsingu vegna töku skuldabréfa til viðskipta í NASDAQ OMX Iceland hf. Rekstraraðili útgefanda er Stefnir hf. Skuldabréfin eru að nafnvirði 2.830.000.000 kr. og voru gefin út 29. júní 2010. Auðkenni flokksins í NASDAQ OMX Iceland hf. verður LFEST1 10 1. Skuldabréfin verða tekin til viðskipta í NASDAQ OMX Iceland hf. þann 27. desember 2010. Skuldabréfin eru verðtryggð miðað við vísitölu neysluverðs með grunnvísitölu 363,8 í júní 2010 og bera 4,70% vexti. Höfuðstóll skuldarinar og vextir greiðast með 136 jöfnum greiðslum (annuity) í fyrsta sinn 20. september. 2010 og á þriggja mánaða fresti þar á eftir. Vextir greiðast fjórum sinnum á ári á sömu dögum og afborganir, 20. mars, 20. júní, 20. september og 20. desember. Fyrst 20. september 2010 og síðast þann 20. júní 2044. Útgefanda er heimilt að greiða skuldina upp hraðar eða að fullu frá og með 20. júní 2015 til 20. mars 2020 á gjalddögum útgáfunnar. Útgefandi skal greiða sérstakt uppgreiðslugjald sem nemur 1,5% af uppreiknaðri fjárhæð þeirrar afborgunar, sem greidd er umfram hina samnings- bundnu afborgun á viðkomandi gjalddaga. Frá og með 20. júní 2020 hefur útgefandi heimild til uppgreiðslu án greiðslu uppgreiðslugjalds. Lýsinguna er hægt að nálgast á skrifstofu útgefanda í Borgartúni 19, 105 Reykjavík í eitt ár frá birtingu hennar. Umsjónaraðili töku skuldabréfanna til viðskipta er Lögfræðisvið Arion banka hf. Reykjavík, 23. desember 2010 Allt að 122 prósenta verðmunur var á hamborgarahrygg með beini þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í sjö lágvöruverðsverslunum og stórmörkuðum í Reykjavík og Akureyri á mánudaginn síð- astliðinn. Kannað var verð á 46 algengum matvörum sem eru til í eldhúsum lands- manna yfir hátíðarnar. Bónus var oftast með lægsta verðið í 27 tilvikum af 46 en í 15 tilfellum var um eða undir 2 krónu verðmunur á Bónus og Krónunni. Nóatún var með hæsta verðið í 19 tilvikum, en Samkaup-Úrval var næst oftast með hæsta verðið í 15 tilvikum. ■ Verðkönnun Allt að 122 prósenta verðmunur á hrygg

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.