Fréttablaðið - 23.12.2010, Page 18
18 23. desember 2010 FIMMTUDAGUR
Ég verð að koma heim um
jólin, segir Kristinn Sig-
mundsson söngvari sem
stærstan hluta vetrarins
býr og starfar erlendis.
Íslendingar njóta góðs af
því í ár því Kristinn og Mót-
ettukórinn halda tónleika
saman í næstu viku þar sem
jólalögin hljóma.
Kaupmannahöfn, Flórens og Los
Angeles hafa undanfarna mánuði
verið dvalarstaðir Kristins Sig-
mundssonar, hins ástæla bassa-
söngvara. Eins og undanfarin sextán
ár pakkaði hann niður í ferðatösku
í byrjun hausts, þegar óperuvertíð-
in hófst og eins og undanfarin ár er
það ekki fyrr en í sumarbyrjun sem
hann sér fram á að dveljast í lengri
tíma á Íslandi.
„Ég er samt heppinn í ár, ég kom
snemma og verð hér fram í janúar,
stundum hef ég þurft að fara utan
milli jóla og nýárs,“ segir Krist-
inn sem ætlar að nota tímann vel í
jólafríinu. Milli jóla og nýárs verða
tónleikar hans og Mótettukórs Hall-
grímskirkju, þar sem meðal annars
verða rifjuð upp jólalög sem Krist-
inn og kórinn sungu saman á jóla-
plötunni Ég held glaður jól sem
kom út árið 1985. „Það er virki-
lega gaman að fá að syngja jóla-
lögin aftur með kórnum, við höfum
ekki gert það síðan platan kom
út, þó að við höfum sungið saman
á tónleikum síðan,“ segir Krist-
inn sem heldur til Berlínar á nýju
ári til að syngja í Tristan og Ísold.
Áður hyggst hann þó taka upp tón-
list með Guðnýju Einarsdóttur org-
anista, verk eftir Mussorgskíj sem
hún hefur umskrifað fyrir orgel.
„Þetta er spennandi verkefni, ég
mun meðal annars syngja ljóða-
flokkinn Söngvar og dansar dauð-
ans sem mig hefur alltaf langað
til að syngja,“ segir Kristinn sem
hefur getið sér gott orð fyrir ljóða-
söng í gegnum tíðina. „Ef ég gæti
unnið fyrir mér og haft sömu tekjur
þá myndi ég frekar kjósa ljóðasöng-
inn en óperurnar,“ játar hann fyrir
blaðamanni. „Þar ræð ég meiru en
í óperunni þar sem maður er alltaf
lítið tannhjól í vél.“
Skemmtilegasta bassahlutverkið
Árið 2010 hefur verið gott hjá
Kristni, hlutverk hans sem barón-
inn Ochs í Rósariddaranum eftir
Richard Strauss sem hann söng í
Metropolitan-óperunni í New York
í upphafi árs er eitt af hans upp-
áhaldshlutverkum á ferlinum. „Þetta
er eitt stærsta og flóknasta hlutverk
sem hefur verið samið fyrir bassa
og það er mjög skemmtilegt, þetta
er kómískt hlutverk, hann er hálf-
gerður vitleysingur,“ segir Krist-
inn. „Svo var sýningin sýnd beint
í kvikmyndahúsum um allan heim,
reyndar í 47 löndum og var afar vel
sótt. Mér er sagt að Metropolitan
hafi meiri tekjur af þessum beinu
útsendingum en sýningunum sjálf-
um.“
Kristinn talar hér af reynslu.
Hann hefur lifað af óperusöngn-
um síðan á níunda áratugnum og
sungið í ótal uppfærslum í Evrópu
og Bandaríkjunum. Kristinn sá þó
ekki fyrir sér líf á faraldsfæti þegar
hann hóf nám í söng. „Ég stefndi að
því að gera sönginn að lifibrauði, en
alveg eins á Íslandi og í útlöndum.
Og þegar ég var að læra til dæmis
í Vín þá datt mér ekki í hug að sá
draumur að syngja í Vínaróper-
unni myndi rætast. Á þessum ferli
mínum hefur allt gengið hægt og
sígandi, þannig að þegar ég söng
í Vínaróperunni í fyrsta sinn, þá
kom það bara í framhaldi af því sem
hafði gerst áður og var ekkert gríð-
arlegt stökk.“
Langt í vinnuna
Kristinn lærði fyrst söng hjá Guð-
mundi Jónssyni hér á landi en nam
svo í Vínarborg. Hann var samn-
ingsbundinn í Wiesbaden í Þýska-
landi í nokkur ár en flutti heim
með fjölskyldunni, eiginkonunni
Ásgerði Þórisdóttur og sonunum
tveimur árið 1993. „Ég var farinn
að syngja svo mikið úti um allt og
vera svo mikið að heiman að það
var í rauninni rökrétt að fjölskyld-
an flytti heim og hefði þá baklandið
hér. En síðan 1993 má segja að það
hafi verið lengra í vinnuna hjá mér
en hjá flestum,“ segir Kristinn og
bætir við að hann reyni að koma sér
sæmilega fyrir á hverjum stað. „Ég
helst nú ekki við á hóteli mikið leng-
ur en viku og reyni frekar að vera í
íbúð. Svo nota ég tímann vel, vinn
mikið, er bæði með tónlist og bækur
og stúdera gjarnan næstu hlutverk
meðfram því sem ég er að undirbúa
á staðnum. Ég reyni að gera heimil-
islegt hjá mér en maður venst þessu
líferni nú aldrei alveg.“
Stundum skýst Kristinn til
Íslands yfir veturinn en hann
dvelst hér einkum langdvölum yfir
sumartímann. „Ég tek sumrin allt-
af frá fyrir Ísland,“ segir Krist-
inn sem meðal annars notar þau
vel til að sinna aðaláhugamálinu:
„Ég er einn af þessum stangveiði-
vit leysingum, hef sinnt fluguveið-
inni af áhuga í fimmtán til tuttugu
ár. Konan mín er með í þessu áhuga-
máli, hún er mjög öflug. Hún hnýtir
að vísu ekki,“ tekur Kristinn fram
sem stundum tekur fluguveiðikittið
með sér til útlanda og situr og hnýt-
ir á kvöldin. „Ég er löngu orðinn for-
fallinn.“
Reynir að vera heima um jólin
Þrátt fyrir annir reynir Kristinn
alltaf að koma heim yfir jólin. „Ég
reyni alltaf að vera hér á jólunum
og það hefur eiginlega alltaf tekist,
ég hef stundum komið heim á Þor-
láksmessu og einu sinni á aðfanga-
dag. Ég afþakkaði meira að segja
einu sinni boð um að syngja í Metro-
politan-óperunni til þess að geta
verið hér,“ segir Kristinn og rifj-
ar upp jól sem haldin voru annars
staðar en á Íslandi. „Einu sinni var
ég að syngja í La Bohème í óper-
unni í París og þá kom fjölskyldan
út. Ég var meira að segja að syngja
á aðfangadagskvöld. Frakkar halda
jólin 25. desember þannig að það
var hálfgerð Þorláksmessustemm-
ing þegar við gengum út af sýn-
ingunni, svo fórum við út að borða
og vorum ekki komin heim fyrr en
klukkan tvö. Þá opnuðum við pakk-
ana.“
Kristinn var einn vetur í námi
í Washington í Bandaríkjunum og
segir kennara sinn þar, John Bull-
ock, hafa gert hann endanlega að
sjálfstæðum söngvara. „Ég fór
til hans fyrir milligöngu barit-
ónsöngvara sem ég kynntist hér,
Williams Parker, sem var einstak-
ur maður og sterkur ljóðatúlkandi.
Hann bauðst til að koma mér í sam-
band við fyrrum kennara sinn,
Bullock, sem má segja að hafi gjör-
breytt mörgu hjá mér. Hann kenndi
mér að túlka tilfinningu í texta og
tónlist, sagði oft við mig: „Þú ert
ekki bara að syngja falleg lög og
tóna, þú ert að syngja eitthvað sem
er svo tilfinningalega sterkt að það
verður að brjótast út.“ Þessi aðferð
hefur síðan haft áhrif á allt sem ég
hef gert og nú er hún mér alveg eðl-
islæg. Ég tek aldrei texta án þess
að hugsa hvernig skáldið hefði sagt
hann og hvaða orð skipta meira
máli en önnur, eru tilfinninga-
bæru orðin í textanum. Ég reyni að
vinna eins og leikari myndi vinna
með texta,“ segir Kristinn. Þess
má geta að John Bullock er faðir
Söndru Bullock sem var að hasla
sér völl sem leikari þegar Kristinn
var í Bandaríkjunum.
Vinnusemi skiptir höfuðmáli
Kristni vefst tunga um tönn þegar
hann er spurður hverju hann þakki
sinn frama:
„Ég hef verið heppinn, verið rétt-
ur maður á réttum stað. En svo er
snýst árangur fyrst og fremst um
vinnusemi og vera trúr sjálfum sér
og viðfangsefninu. Það er í raun
ekkert til sem heitir fullkomnun,
það er alltaf hægt að gera betur. Ég
reyni að keppa ekki við aðra söngv-
ara, heldur einungis við sjálfan mig.
Stundum er sagt að maður sé aldrei
betri en síðustu tónleikar segja til
um og ég hef lifað samkvæmt því.
Maður verður alltaf að leggja sig
allan fram, því það er bara síðasta
sýning sem gildir.“
VIÐTAL: Kristinn Sigmundsson söngvari
Réttur maður á réttum stað
KRISTINN SIGMUNDSSON Það venst aldrei alveg að vera á faraldsfæti allan veturinn, segir Kristinn sem tekur sumrin frá fyrir Ísland, og jólin sömuleiðis. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Árið 1985 var gefin út jólaplatan Ég held
glaður jól með Kristni Sigmundssyni og Mót-
ettukór Hallgrímskirkju. Platan hitti í mark hjá
þjóðinni og varð metsöluplata. Nú 25 árum
síðar rifja Kristinn og kórinn upp jólalögin á
tónleikum í Hallgrímskirkju sem bera sama
heiti og platan góða. Björn Steinar Sólbergs-
son leikur á orgel og Hörður Áskelsson stjórn-
ar kórnum á tónleikunum sem haldnir verða
29. og 30 desember.
Ég held glaður jól
Sigríður Björg
Tómasdóttir
sigridur@frettabladid.is