Fréttablaðið - 23.12.2010, Síða 18

Fréttablaðið - 23.12.2010, Síða 18
18 23. desember 2010 FIMMTUDAGUR Ég verð að koma heim um jólin, segir Kristinn Sig- mundsson söngvari sem stærstan hluta vetrarins býr og starfar erlendis. Íslendingar njóta góðs af því í ár því Kristinn og Mót- ettukórinn halda tónleika saman í næstu viku þar sem jólalögin hljóma. Kaupmannahöfn, Flórens og Los Angeles hafa undanfarna mánuði verið dvalarstaðir Kristins Sig- mundssonar, hins ástæla bassa- söngvara. Eins og undanfarin sextán ár pakkaði hann niður í ferðatösku í byrjun hausts, þegar óperuvertíð- in hófst og eins og undanfarin ár er það ekki fyrr en í sumarbyrjun sem hann sér fram á að dveljast í lengri tíma á Íslandi. „Ég er samt heppinn í ár, ég kom snemma og verð hér fram í janúar, stundum hef ég þurft að fara utan milli jóla og nýárs,“ segir Krist- inn sem ætlar að nota tímann vel í jólafríinu. Milli jóla og nýárs verða tónleikar hans og Mótettukórs Hall- grímskirkju, þar sem meðal annars verða rifjuð upp jólalög sem Krist- inn og kórinn sungu saman á jóla- plötunni Ég held glaður jól sem kom út árið 1985. „Það er virki- lega gaman að fá að syngja jóla- lögin aftur með kórnum, við höfum ekki gert það síðan platan kom út, þó að við höfum sungið saman á tónleikum síðan,“ segir Krist- inn sem heldur til Berlínar á nýju ári til að syngja í Tristan og Ísold. Áður hyggst hann þó taka upp tón- list með Guðnýju Einarsdóttur org- anista, verk eftir Mussorgskíj sem hún hefur umskrifað fyrir orgel. „Þetta er spennandi verkefni, ég mun meðal annars syngja ljóða- flokkinn Söngvar og dansar dauð- ans sem mig hefur alltaf langað til að syngja,“ segir Kristinn sem hefur getið sér gott orð fyrir ljóða- söng í gegnum tíðina. „Ef ég gæti unnið fyrir mér og haft sömu tekjur þá myndi ég frekar kjósa ljóðasöng- inn en óperurnar,“ játar hann fyrir blaðamanni. „Þar ræð ég meiru en í óperunni þar sem maður er alltaf lítið tannhjól í vél.“ Skemmtilegasta bassahlutverkið Árið 2010 hefur verið gott hjá Kristni, hlutverk hans sem barón- inn Ochs í Rósariddaranum eftir Richard Strauss sem hann söng í Metropolitan-óperunni í New York í upphafi árs er eitt af hans upp- áhaldshlutverkum á ferlinum. „Þetta er eitt stærsta og flóknasta hlutverk sem hefur verið samið fyrir bassa og það er mjög skemmtilegt, þetta er kómískt hlutverk, hann er hálf- gerður vitleysingur,“ segir Krist- inn. „Svo var sýningin sýnd beint í kvikmyndahúsum um allan heim, reyndar í 47 löndum og var afar vel sótt. Mér er sagt að Metropolitan hafi meiri tekjur af þessum beinu útsendingum en sýningunum sjálf- um.“ Kristinn talar hér af reynslu. Hann hefur lifað af óperusöngn- um síðan á níunda áratugnum og sungið í ótal uppfærslum í Evrópu og Bandaríkjunum. Kristinn sá þó ekki fyrir sér líf á faraldsfæti þegar hann hóf nám í söng. „Ég stefndi að því að gera sönginn að lifibrauði, en alveg eins á Íslandi og í útlöndum. Og þegar ég var að læra til dæmis í Vín þá datt mér ekki í hug að sá draumur að syngja í Vínaróper- unni myndi rætast. Á þessum ferli mínum hefur allt gengið hægt og sígandi, þannig að þegar ég söng í Vínaróperunni í fyrsta sinn, þá kom það bara í framhaldi af því sem hafði gerst áður og var ekkert gríð- arlegt stökk.“ Langt í vinnuna Kristinn lærði fyrst söng hjá Guð- mundi Jónssyni hér á landi en nam svo í Vínarborg. Hann var samn- ingsbundinn í Wiesbaden í Þýska- landi í nokkur ár en flutti heim með fjölskyldunni, eiginkonunni Ásgerði Þórisdóttur og sonunum tveimur árið 1993. „Ég var farinn að syngja svo mikið úti um allt og vera svo mikið að heiman að það var í rauninni rökrétt að fjölskyld- an flytti heim og hefði þá baklandið hér. En síðan 1993 má segja að það hafi verið lengra í vinnuna hjá mér en hjá flestum,“ segir Kristinn og bætir við að hann reyni að koma sér sæmilega fyrir á hverjum stað. „Ég helst nú ekki við á hóteli mikið leng- ur en viku og reyni frekar að vera í íbúð. Svo nota ég tímann vel, vinn mikið, er bæði með tónlist og bækur og stúdera gjarnan næstu hlutverk meðfram því sem ég er að undirbúa á staðnum. Ég reyni að gera heimil- islegt hjá mér en maður venst þessu líferni nú aldrei alveg.“ Stundum skýst Kristinn til Íslands yfir veturinn en hann dvelst hér einkum langdvölum yfir sumartímann. „Ég tek sumrin allt- af frá fyrir Ísland,“ segir Krist- inn sem meðal annars notar þau vel til að sinna aðaláhugamálinu: „Ég er einn af þessum stangveiði- vit leysingum, hef sinnt fluguveið- inni af áhuga í fimmtán til tuttugu ár. Konan mín er með í þessu áhuga- máli, hún er mjög öflug. Hún hnýtir að vísu ekki,“ tekur Kristinn fram sem stundum tekur fluguveiðikittið með sér til útlanda og situr og hnýt- ir á kvöldin. „Ég er löngu orðinn for- fallinn.“ Reynir að vera heima um jólin Þrátt fyrir annir reynir Kristinn alltaf að koma heim yfir jólin. „Ég reyni alltaf að vera hér á jólunum og það hefur eiginlega alltaf tekist, ég hef stundum komið heim á Þor- láksmessu og einu sinni á aðfanga- dag. Ég afþakkaði meira að segja einu sinni boð um að syngja í Metro- politan-óperunni til þess að geta verið hér,“ segir Kristinn og rifj- ar upp jól sem haldin voru annars staðar en á Íslandi. „Einu sinni var ég að syngja í La Bohème í óper- unni í París og þá kom fjölskyldan út. Ég var meira að segja að syngja á aðfangadagskvöld. Frakkar halda jólin 25. desember þannig að það var hálfgerð Þorláksmessustemm- ing þegar við gengum út af sýn- ingunni, svo fórum við út að borða og vorum ekki komin heim fyrr en klukkan tvö. Þá opnuðum við pakk- ana.“ Kristinn var einn vetur í námi í Washington í Bandaríkjunum og segir kennara sinn þar, John Bull- ock, hafa gert hann endanlega að sjálfstæðum söngvara. „Ég fór til hans fyrir milligöngu barit- ónsöngvara sem ég kynntist hér, Williams Parker, sem var einstak- ur maður og sterkur ljóðatúlkandi. Hann bauðst til að koma mér í sam- band við fyrrum kennara sinn, Bullock, sem má segja að hafi gjör- breytt mörgu hjá mér. Hann kenndi mér að túlka tilfinningu í texta og tónlist, sagði oft við mig: „Þú ert ekki bara að syngja falleg lög og tóna, þú ert að syngja eitthvað sem er svo tilfinningalega sterkt að það verður að brjótast út.“ Þessi aðferð hefur síðan haft áhrif á allt sem ég hef gert og nú er hún mér alveg eðl- islæg. Ég tek aldrei texta án þess að hugsa hvernig skáldið hefði sagt hann og hvaða orð skipta meira máli en önnur, eru tilfinninga- bæru orðin í textanum. Ég reyni að vinna eins og leikari myndi vinna með texta,“ segir Kristinn. Þess má geta að John Bullock er faðir Söndru Bullock sem var að hasla sér völl sem leikari þegar Kristinn var í Bandaríkjunum. Vinnusemi skiptir höfuðmáli Kristni vefst tunga um tönn þegar hann er spurður hverju hann þakki sinn frama: „Ég hef verið heppinn, verið rétt- ur maður á réttum stað. En svo er snýst árangur fyrst og fremst um vinnusemi og vera trúr sjálfum sér og viðfangsefninu. Það er í raun ekkert til sem heitir fullkomnun, það er alltaf hægt að gera betur. Ég reyni að keppa ekki við aðra söngv- ara, heldur einungis við sjálfan mig. Stundum er sagt að maður sé aldrei betri en síðustu tónleikar segja til um og ég hef lifað samkvæmt því. Maður verður alltaf að leggja sig allan fram, því það er bara síðasta sýning sem gildir.“ VIÐTAL: Kristinn Sigmundsson söngvari Réttur maður á réttum stað KRISTINN SIGMUNDSSON Það venst aldrei alveg að vera á faraldsfæti allan veturinn, segir Kristinn sem tekur sumrin frá fyrir Ísland, og jólin sömuleiðis. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Árið 1985 var gefin út jólaplatan Ég held glaður jól með Kristni Sigmundssyni og Mót- ettukór Hallgrímskirkju. Platan hitti í mark hjá þjóðinni og varð metsöluplata. Nú 25 árum síðar rifja Kristinn og kórinn upp jólalögin á tónleikum í Hallgrímskirkju sem bera sama heiti og platan góða. Björn Steinar Sólbergs- son leikur á orgel og Hörður Áskelsson stjórn- ar kórnum á tónleikunum sem haldnir verða 29. og 30 desember. Ég held glaður jól Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.