Fréttablaðið - 23.12.2010, Page 28
Tíu ferðaþjónustubæir hlutu
viðurkenningar eftir hulduheim-
sókn.
Á uppskeruhátíð Ferðaþjónustu
bænda sem haldin var nýverið
voru veittar viðurkenningar til tíu
ferðaþjónustubæja sem tóku þátt
í samstarfsverkefni Ferðaþjón-
ustu bænda og Better Busi ness
síðastliðið sumar. Samstarfið
fólst í svokölluðu hulduheimsókn-
um eða Mystery Shopper, á vegum
ráðgjafarfyrirtækisins Better
Business.
Hulduheimsóknin fer þannig
fram að ákveðinn aðili, sem er
eins og hver annar gestur, metur
staðinn eftir dvölina og er þá farið
yfir hvern þátt dvalarinnar eins og
þjónustu, aðbúnað og upplifun.
Gefnar eru einkunnir og
umsagnir bæði fyrir einstaka
þætti og heildareinkunn. Að þessu
sinni fengu tíu bæir mjög góða
heildareinkunn.
● Ensku húsin í Borgarfirði
● Hótel Núpur í Dýrafirði
● Heydalur í Mjóafirði
● Dæli í Víðidal
● Engimýri í Öxnadal
● Skjaldarvík í Eyjafirði
● Öngulsstaðir í Eyjafjarðarsveit
● Brunnhóll á Mýrum
● Hestheimar í Rangárþingi
● Smáratún í Fljótshlíð
Hulduheimsóknir á
íslenska bæi
Frá Hestheimum.
Anna Dröfn frá Ensku húsunum, Lea Helga og Marteinn frá Hestheimum, Stella í
Heydal, Guðmundur á Hótel Núpi í Dýrafirði, Sigurlaug á Brunnhóli og Sigrún á Dæli
í Víðidal. Aðrir bæir sem fengu viðurkenningu eru Engimýri, Skjaldarvík, Öngulsstaðir
og Smáratún.
Frakkland er vinsælasta ferðamannalandið annað árið í röð samkvæmt
vefsíðunni turisti.is. Hátt í áttatíu milljónir manns komu þangað í ár. Í öðru
sæti eru Bandaríkin og Spánn í því þriðja.
Hápunktur gleðinnar er heimsókn tenóranna þriggja í Jólabænum á
Hljómalindarreit þegar þeir Jóhann Friðgeir, Garðar Thor og Gissur
Páll stíga á svið Jólabæjarins klukkan 21 á eftir Retro Stefson sem
hefur leik klukkan 20. Þrír kórar Margrétar Pálmadóttur söng stjóra,
Cantabile, Stúlknakór Reykjavíkur og Vox Feminae, munu syngja
saman frá klukkan 16 til 18.30 á Ingólfstorgi, Lækjartorgi,
í Bankastræti, Jólabænum, Kjörgarði, efst á Laugavegi og
nokkrum stöðum við Skólavörðustíg. Þá mun trúbador-
inn Svavar Knútur leika á sömu stöðum frá klukkan 16 og
Ástvaldur Traustason þenur harmóníkuna milli klukkan
14 og 16 við Geysi á Skólavörðustíg.
Grýla og Randur mæta í Jólabæinn klukkan 16.30 og
Hurðaskellir og bræður hans verða þar hrókar alls fagn-
aðar og taka mót gestum á milli þess sem þeir heilsa
vegfarendum.
Dagskránni lýkur klukkan 23, en þá loka flestar verslanir
miðborgarinnar og Jólabæjarins á Hljómalindarreit.
Hátíðarstemning í miðborg Reykjavíkur
MIKIÐ VERÐUR UM AÐ VERA Í GAMLA MIÐBÆ REYKJAVÍKUR Á ÞORLÁKSMESSU
ÞEGAR KÓRAR, HLJÓMSVEITIR, JÓLASVEINAR, TÖFRAMENN, HARMÓNÍKULEIKAR-
AR OG FLEIRI SETJA SVIP SINN Á ÞENNAN FJÖLSKRÚÐUGA DAG FYRIR JÓL.
Þótt ekki sé hún frýnileg ásýndar er Grýla örlát á knús við hugrakkar barnssálir
í Jólabænum á Hljómalindarreitnum, þar sem svífa um jólafígúrur sem alla
gleðja. Hér er hún í félagi við Rand úr Leitinni að jólunum sem Þjóðleikhúsið
sýnir og einn af jólasveinum sínum úr fjöllunum. MYND/TOMASZ VERUSON
20% afsláttur
af öllum sóttum pizzum
Sími: 577-3333
Dalvegur 2, 201 Kóp.
Dalshrauni 13, Hafnarfjörður
Óskar öllum landsmönnum
Gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári og þakkar um leið
viðskiptin á árinu sem er að líða.
Opnunartími yfir hátíðarnar
24. – 25. des Lokað
26.–30. des Opið
31. des–1. jan Lokað