Fréttablaðið - 23.12.2010, Page 32
23. DESEMBER 2010 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● þorláksmessa
Kampavín er
konungleg
gjöf og tilvalið
að grípa með
sér eina
flösku handa
þeim sem á
allt.
Blóm eru alltaf viðeigandi gjöf. Maður
getur alltaf á sig blómum bætt, sagði
skáldið og það eru orð að sönnu.
Heimagert konfekt er góð gjöf og auð-
velt að raða nokkrum af molunum sem
þú gerðir um síðustu helgi í flotta öskju.
Heimabakaðar kökur
eru lúxusgjöf og búbót
fyrir þá sem ekki
hafa tíma eða getu
til að baka sjálfir.
NORDICPHOTOS/GETTY
Minnisbækur eru tilvaldar gjafir. Það er
ekki bara jólasveinninn sem þarf á því að
halda að skrá niður hlutina.
Það er óþarfi að fara á taugum og hlaupa milli búða í stresskasti
á Þorláksmessukvöld þótt það uppgötvist að gleymst hafi að
kaupa gjöf handa einhverjum ættingjanum. Það er hugurinn á
bak við gjöfina sem skiptir máli. Hér eru hugmyndir að nokkr-
um gjöfum sem örugglega gleðja, þótt ekki hafi tekið margra
klukkutíma búðarráp að velja þær. - fsb
Undir lok nítjándu aldar komst
það til siðs að halda veislur og
samsæti á Þorláksmessu, og
gengu þessir mannfögnuðir
ýmist undir nöfnunum jólagleði,
samsæti eða Þorláksmessugildi.
Var það til siðs að sýna heima-
gerða leikþætti og fara með ný
kvæði af ýmsum toga, oft glettin
enda mikið um veisluhöld.
Í Sögu daganna eftir Árna
Björnsson er þess getið að Stúd-
entafélagið í Reykjavík hafi
tekið þennan sið upp árið 1894 og
haldið „samsæti á Þorláksvöku“.
Á þessum tíma var barátta fyrir
áfengisbanni í algleymingi.
Stúdentar virðast hafa verið á
öndverðum meiði við bindind-
ismenn í þessum efnum og sést
það glögglega á vísum sem varð-
veist hafa frá samsætinu.
Í næsta samsæti, 1895, keyrði
svo um þverbak er Hallgrímur
Sveinsson biskup neitaði að sitja
þeim til samlætis í samsæt-
inu eftir að hafa fengið handrit
kvöldsins undir hendur. Handrit-
ið fékk hann frá Birni Jónssyni,
eiganda Ísafoldarprentsmiðj-
unnar, en þar var á blaði vísa er
henti gamni að viðhorfum bæði
Hallgríms, sem var annálað-
ur bindindismaður, og Þorláks
helga til brennivínsins. Biskup
heimtaði að vísan yrði fjarlægð
úr dagskránni en stúdentar sátu
við sinn keip. Svo fór sem fór,
vísan var flutt og olli það nokkru
hneyksli.
Fyrsta vers vísunnar er svo-
hljóðandi (eins og hún kemur
fyrir í Sögu daganna):
Þorlákur biskup var blessaður kall
þótt bindindi stofnsetti eigi.
Hræddist ei skikkanlegt samdrykkju-
svall
né svolítið kátínubrall.
- tg
Móðgaðist þá biskup mjög
Dómkirkjan eins og hún leit út um aldamótin 1900. Þar messaði Hallgrímur og
barðist fyrir bindindi, mörgum stúdentum til ómældrar óánægju.
MYND/SIGFÚS EYMUNDSSON
Gjafir til að grípa til
Falleg jólaskreyting er alltaf vel
þegin og ekki spillir fyrir ef gefand-
inn hefur gert hana sjálfur.
●JÓLASVEINAR Í GRINDAVÍK
Lionsklúbbur Grindavíkur hefur tekið að
sér umboð fyrir jólasveinana í dag og
aðstoðar þá við að koma jólapökkum
til bæjarbúa í Grindavík. Klúbbfélagar
taka við pökkum milli klukkan 17 og
21 í Verkalýðshúsinu, Víkurbraut 46,
gegn vægu gjaldi. Pakkarnir þurfa
að vera vel merktir en jólasveinarn-
ir munu svo bera pakkana í hús á
morgun milli klukkan 10 og 13.
Lækjargata 2a 101 R. sími 511-5001 opið alla daga 9.00 - 22.00
★Gjafabréf frá IÐU á alltaf erindi★
Við óskum landsmönnum
gleðilegra jóla og þökkum fyrir
viðskiptin á árinu sem er að líða.
Opið frá 9 til 16 á aðfangadag
Kemur út 29. desember
Áramót
Auglýsendur vinsamlegast hafið samband
Benedikt Freyr • benediktj@365.is • Sími 512 5411
Hlynur Þór • hlynurs@365.is • Sími 512 5439
Sigríður Hallgrímsdóttir • sigridurh@365.is • Sími 512 5432