Fréttablaðið - 23.12.2010, Blaðsíða 33
þorláksmessa ● fréttablaðið ●FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2010 5
Íslenskir friðarsinnar efna til blys-
farar niður Laugaveg á Þorláks-
messu, eins og undanfarna þrjá
áratugi. Í hugum margra er frið-
argangan ómissandi þáttur í und-
irbúningi jólanna og æ fleiri taka
sér hlé frá jólatiltekt og innkaup-
um til að styðja kröfuna um frið í
heiminum.
Safnast verður saman á Hlemmi,
þaðan sem lagt verður af stað stund-
víslega klukkan 18. Fólk er hvatt til
að mæta tímanlega og kyndlar seld-
ir á Hlemmi áður en gangan legg-
ur af stað. Í lok göngunnar verð-
ur stuttur fundur á Ingólfstorgi,
þar sem farið verður með ávörp og
söngfólk Hamrahlíðarkórsins og
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð
syngur, eins og í göngunni sjálfri.
Friðargöngur eru einnig gengnar
á Akureyri og Ísafirði. Á Akureyri
verður gengið frá Samkomuhúsinu
í Hafnarstræti og út á Ráðhústorg
klukkan 20 og á Ísafirði lagt af stað
frá Ísafjarðarkirkju klukkan 18 og
gengið niður á Silfurtorg þar sem
hefðbundin dagskrá verður með
tónlist, ljóðum og mæltu máli.
Alls staðar minna friðarsinnar á
að stöðugt berast fregnir af ofbeld-
isverkum þjóða á milli og innan
samfélaga, og að óheyrilegum fjár-
hæðum er enn sóað í vígvæðingu.
- þlg
● ÞORLÁKSTÓNLEIKAR
ÁRSTÍÐA fara fram í Fríkirkj-
unni í kvöld klukkan 22. Með-
limir hljómsveitarinnar spila
jólalög sem þeim eru kær, auk
valinna laga af frumburði sveit-
arinnar sem kom út á síðasta ári.
Aðgangseyrir er 1.500 krónur.
Meðlimir Árstíða hafa ekki
setið auðum höndum á árinu.
Þeir fóru í tónleikaferð til
Svíþjóðar og bættu svo í og
fóru til Rússlands. Önnur plata
sveitarinner er einnig langt
komin og hugsanlega frumflyt-
ur hún einhver lög af henni í
kvöld. Hverju sem því líður lofa
Árstíðir ósvikinni jólastemningu
í Fríkirkjunni í kvöld.
Það færir notalega ró í hjörtu fólks að taka þátt í friðargöngum Þorláksmessu og eru
þær ómissandi þáttur í jólahaldi margra.
Gengið inn í ljós og frið
Rokkkóngurinn Bubbi Morthens
bregður ekki út af jólavenjum
sínum þessa Þorláksmessu frekar
en undanfarin tuttugu ár, þegar
hann spilar af fingrum fram og
lætur móðan mása fyrir áheyrend-
ur árlegra Þorláksmessutónleika
sinna. Tónleikarnir voru lengst af
á Hótel Borg og þar á eftir á Nasa,
en verða nú haldnir í annað sinn í
Háskólabíói við Hagatorg.
Árið 2010 skipar veglegan sess
á ferli Bubba því á árinu sem senn
líður í aldanna skaut fagnaði Bubbi
þrjátíu ára starfsafmæli sínu.
Tónleikarnir verða í beinni út-
sendingu á Bylgjunni og hefjast
stundvíslega klukkan 22 á Þorláks-
messukvöld. - þlg
Í hátíðarskap
með Bubba
Bubbi er ómissandi hluti af jólaskapinu
hjá þúsundum aðdáenda hans og ávallt
gaman að hlusta á hann í útvarpinu á
Þorláksmessukvöld.
Lækjargata 2a 101 R.sími 5115001 opiða alla daga 9 til 22
kr. 4.590
kr. 2.490
kr. 4.695
kr. 6.995
kr. 4.290
kr. 3.990
kr. 3.990 kr. 2.590
kr. 1.999
kr. 3.690
þessi kynningarverð gilda til 24. des.
Allar
JÓLABÆKUR
á kynningarverði
í IÐU
Hinn árlegi jólamarkaður Sólheima er hjá okkur í IÐU húsinu
Ellen Kristjánsdóttir og Pétur Hallgrímsson kynna nýja diskinn sinn
"Let me be there" í dag kl. 14.00 og aftur kl. 17.00
Opið frá 9 til 16 á aðfangadag,
23 á Þorláksmessu
kr. 2.495
nýjasta bókin frá Stephenie Meyer