Fréttablaðið - 23.12.2010, Side 44
28 23. desember 2010 FIMMTUDAGUR
BAKÞANKAR
Charlotte
Böving
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
Jólin eru að koma og það er meira en nóg annað að gera hjá mér en að skrifa pistil
í blað. T.d. að pakka inn gjöfum, sem er það
sem við dóttir mín erum einmitt að gera.
HÚN vill hafa þetta kósí stund og spjallar
um allt milli himins og jarðar, en ég er hálf
utan við mig. Það er að svo mörgu að huga;
Gjafir, matur, tiltekt og þessi pistill sem
þarf að skrifa fyrir morgundaginn.
SVO spyr dóttirin allt í einu: Mamma, hvað
þykir þér mikilvægast við jólin?
LEYFÐU mér að hugsa, svara ég og
dettur strax í hug að þetta yrði gott
efni í pistil.
SAMVERAN og gjafirnar, jólatréð,
skrautið, maturinn, smákökurnar og
svo þykir mér gott að fara í kirkju.
Er eitthvað af þessu mikilvægara
en annað? Jú, ég myndi heldur
vilja sleppa smákökunum en
matnum og frekar skrautinu
en trénu. En ég myndi ekki
vilja vera án gjafanna og sam-
verunnar. Og mig langar ekki
að velja, vegna þess að saman
gera þessir hlutir einmitt jólin
að jólum. Og jólin koma bara
einu sinni á ári, sem er það
sem gerir þau svo einstök.
TÖKUM gjafirnar sem dæmi. Ég veit vel
að það er mikil vinna að velja og kaupa
gjafir – og að við gætum trúlega verið án
stórs hluta þess sem við fáum, eða þurf-
um að fara út að skipta eftir jólin. En þetta
eina skipti á ári gefum við öll hvert öðru
gjafir, við bæði gefum og þiggjum og í því
felst fegurð.
MATURINN er alveg sérstakur. Heima
hjá mér borðum við alltaf kalkún. Öllum
þykir hann góður og það er alltaf nógur
afgangur til að borða í hádeginu á jóla-
dag. Í eftirrétt fáum við rísalamand, með
möndlum og rjóma. Við útbúum meira en
nóg af því, til að eiga daginn eftir.
ÉG elska líka hefðina fyrir jólatré: Græna
tréð með lifandi ljósum, sem minnir okkur
á vorið og birtuna, sem bráðum kemur
aftur.
ÉG gæti haldið áfram: Sagan um litla
Jesúbarnið… en heyrðu nú mig, hvað varð
af dóttur minni? Ég var svo upptekin að
velta fyrir mér svarinu (og þar með pistl-
inum) að ég tók ekkert eftir því að hún
var farin. Ég finn hana liggjandi í rúminu
sínu.
Elsku ástin mín, hvað þykir þér mikilvæg-
ast við jólin?
Að vera með mömmu minni og pabba!
Þar hef ég það!
Hvað er mikilvægast?
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Þarna nota ég sjálfan
mig aftur! Hoppa inn
og út úr minni eigin
teiknimyndasögu og
droppa vondu stöffi,
aðeins vopnaður
blýantinum!
Hm!
Snið-
ugt?
Geðveikt!
Geturðu ekki
græjað svona
fyrir mig? Veru-
leikinn hefði
gott af smá
útstrikunum!
Ég skil þetta
sem svo að ég
ætti ekki að
spyrja hvernig
gekk að
versla föt á
drenginn.
Alla vega
ekki fyrr
en þetta
glas er
orðið
tómt.
Maður
lifandi!
Það sem hann
breyttist!!
Ókei, ókei!
Ég baðst
afsökunar!
Ef þú vilt
fá gott
ráð, þegar
mamma
réttir þér skál
af haframjöli
skaltu ekki
horfa á hana
og segja „Ha!
Einmitt!“
Ég skal hafa það
í huga.
Rosalegt
strokleður!
Roger!
Ó Roger!
Tími sárs-
aukans er
runninn upp!
GARGLH!
LÁRÉTT
2. létu, 6. hola, 8. nafar, 9. kvk. nafn,
11. tveir eins, 12. flatfótur, 14. kvk
nafn, 16. skóli, 17. eyja í Írlandshafi,
18. andi, 20. skóli, 21. staðarnafn.
LÓÐRÉTT
1. ungur hestur, 3. í röð, 4. forskot, 5.
dýrahljóð, 7. land í Evrópu, 10. írafár,
13. angan, 15. ilmur, 16. skammst.,
19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gáfu, 6. op, 8. bor, 9. lóa,
11. rr, 12. ilsig, 14. lilja, 16. ma, 17.
mön, 18. önd, 20. fg, 21. oddi.
LÓÐRÉTT: 1. foli, 3. áb, 4. forgjöf, 5.
urr, 7. pólland, 10. asi, 13. ilm, 15.
angi, 16. möo, 19. dd.
Oooh Jekyll læknir,
þú ert nú svo sætur!
Af hverju ferðu
nú ekki og skiptir
aðeins yfir í eitthvað
þægilegra …