Fréttablaðið - 23.12.2010, Síða 46

Fréttablaðið - 23.12.2010, Síða 46
30 23. desember 2010 FIMMTUDAGUR30 menning@frettabladid.is Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á upp- færslu á Ofviðrinu eftir Shakespeare í leikstjórn hins litháíska Oskaras Kor- šunovas. Fréttablaðið leit við í Borgarleikhúsinu og tók Kristínu Þóru Haralds- dóttur tali en hún fer með hlutverk loftandans Ariel. „Það er mjög áhugavert að fást við Shakespeare,“ segir Kristín Þóra Haraldsdóttir þegar hún fær síð- búna hádegispásu frá æfingum á Ofviðrinu eftir Shakespeare. Þegar litið er inn í sal má sjá leik- myndina á sviðinu, dansarar stíga á svið þegar leikarar taka hlé, allir eru á lokasprettinum enda stutt í frumsýningu. „Leikstjórinn er líka mjög fróður um Shakespeare, verkið og karakterana í því, sem er mjög gefandi. Ég hafði auðvitað lært minn Shakespeare í Leiklist- arskólanum en ekkert lagst í nein- ar sérstakar rannsóknir þannig að þetta hefur verið mjög lærdóms- ríkt æfingatímabil,“ segir Krist- ín Þóra. Koršunovas inspírerandi Leikstjórinn Oskaras Koršun- ovas hefur verið í hópi fremstu leikstjóra Evrópu síðustu ár og er auk þess leikhússtjóri Borgar- leikhússins í Vilníus. Kristín segir sérlega áhugavert að vinna með erlendum leikstjóra: „Það er mjög inspírerandi og hvetjandi þegar leikstjórar koma að utan. Koršun- ovas er mikill snillingur og ég er bara að reyna að læra eins mikið og ég get á meðan á þessu stend- ur,“ segir Kristín Þóra, sem fer með hlutverk loftandans Ariel í verkinu, andans sem Prosperó leysir úr læðingi og lætur fram- kvæma óskir sínar. Prosperó er leikinn af Ingvari E. Sigurðssyni, en auk hans eru fleiri þrautreynd- ir leikarar í uppfærslunni, Hilm- ir Snær Guðnason, Jóhann Sigurð- arson og Sigrún Edda Björnsdóttir svo fáeinir séu nefndir. „Ég álít mig mjög heppna að fá að vinna með þeim, ég fylgist vel með þessum reyndu leikurum til að sjá hvernig þeir gera þetta. Svo deili ég búningsherbergi með Sig- rúnu Eddu og er sífellt að spyrja hana ráða,“ segir Kristín Þóra kímin. Sjálf hefur hún orðið æði mikla leikreynslu þrátt fyrir að vera aðeins 28 ára gömul. Kristín Þóra útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2007 og hefur verið fastráðin síðan, fyrst hjá Leikfé- lagi Akureyrar og síðan hjá Borg- arleikhúsinu. Einbeitt að loknu fæðingarorlofi Á þessu leikári hefur hún farið með stór hlutverk í Gauragangi og Fólk- inu í kjallaranum. Í Gauragangi, sem var frumsýndur síðasta vor en tekinn aftur upp í haust, lék hún Ástu, þroskahefta systur aðalsögu- hetjunnar Orms Óðinssonar, og í Fólkinu í kjallaranum lék hún bæði Emblu, systur aðalsöguhetjunnar Klöru, og dóttur hennar Nönnu. „Það var dásamlegt að leika Ástu, ég undirbjó mig afar vel fyrir það hlutverk. Mér var svo mikið í mun að gera það vel, ég vildi alls ekki að það kæmi út eins og ég væri að gera grín að henni, ef hún væri fyndin þá væri það á henn- ar forsendum. Sömuleiðis fannst mér afar gaman að leika í Fólkinu í kjallaranum og ekki spillti fyrir að það var alltaf fullt hús. Leik- hús verður auðvitað fyrst til þegar áhorfendur koma til sögunnar,“ segir Kristín Þóra, sem þarf ekki að kvarta yfir áhugaleysi áhorf- enda því mjög góð aðsókn var á bæði þessi leikrit og Fólkið í kjall- aranum hætti reyndar fyrir fullu húsi fyrir skömmu. Þess má einn- ig geta að Kristín Þóra var tilnefnd til Grímuverðlaunanna fyrir túlk- un sína á Ástu. „Ég naut þess mjög að leika hana, ég fór beint í það hlutverk eftir fæðingarorlof og ég kom mjög ein- beitt til verks að því loknu,“ segir Kristín Þóra. „Mér fannst ég bæði öðlast nýja vídd sem leikari við það að eignast barn og svo fór ég að nýta tímann betur,“ segir Kristín Þóra og bætir því við að það hljóti að vera þess vegna sem hún er búin að kaupa allar jólagjafirnar mörg- um dögum fyrir jól. „Ég hef stefnt að þessu í ansi mörg ár og aldrei tekist. Núna er brjálæðislega mikið að gera og í fyrsta sinn á ævinni er ég búin að gera allt í tíma,“ segir Kristín Þóra og er þar með farin aftur á æfingu á Ofviðrinu. LÆRIR AF REYNSLUNNI KRISTÍN ÞÓRA HARALDSDÓTTIR Fer með hlutverk loftandans Ariel í Ofviðrinu eftir Shakespeare sem frumsýnt verður í næstu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ÁRIÐ HJÁ KRISTÍNU Hlutverk Kristínar Þóru í Ofviðrinu er það þriðja sem hún leikur á árinu en hún lék einnig í Gauragangi og Fólkinu í kjallaran- um. Myndirnar eru úr verkunum. SÍÐASTA VERK SHAKESPEARES Ofviðrið er síðasta leikrit Shakespeares og skrifað um svipað leyti og Vetrarævintýri og Cymbeline. Það var frumflutt 1. nóvember 1611 í Whitehall-höllinni fyrir James 1. konung af leikhópi skáldsins, The King’s Men. Hefðin hefur verið sú að líta á verkið sem eins konar uppgjör höfundarins við fortíðina, tregablandna og rómantíska kveðju til leikhússins og listalífsins. Eyjuna þar sem leikurinn á sér stað er ekki að finna á neinu landakorti. Hún er leikhúsið. Allt getur gerst á þessari leikhúseyju. Leikurinn gerist á þeim tíma sem sýningin á sér stað, þeim tíma sem tekur leikarana að flytja verkið. Það er hlaðið meiri dulúð og torræðari merkingum en við eigum að venjast í leikritum Shakespeares. Kristín Þóra Haraldsdóttir leikur loftandann Aríel sem miðpunktur verksins, Prosperó, vekur til lífsins. Ingvar Sigurðsson leikur Prosperó en önnur aðalhlutverk eru í höndum Láru Jóhönnu Jónsdóttur sem leikur Míröndu dóttur Prosperós, Hilmis Snæs Guðnasonar sem leikur Kalíban, þræl Prosperós, og Jóhanns Sigurðarsonar sem leikur Alonsó, kóng í Napólí. Leikstjóri verksins er Oskaras Koršunovas. 12 Tónar og rekstrarfélagið Ago ehf. undirrituðu rekstrarleyfis- samning til sjö ára í dag. Samningurinn felur í sér að 12 Tónar verða með tónlistarverslun í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi. Lárus Jóhannesson stjórnarformaður undirritaði samninginn fyrir hönd 12 Tóna og Höskuldur Ásgeirsson framkvæmdastjóri fyrir hönd Ago ehf. Verslunin 12 Tónar var stofnuð árið 1998 á Skólavörðustíg. 12 Tónar hafa einnig gefið út tónlist fjölmargra íslenskra tónlistar- manna undir eigin merkjum. 12 Tónar í Hörpu GRIPLA KOMIN ÚT Nýtt tölublað Griplu, alþjóðlegs fræðitímarits Árnastofnunar á sviði íslenskra og norrænna fræða, er komið út. Gripla hefur komið út síðan 1971. Að þessu sinni birtast 11 ritrýndar greinar í Griplu, auk stuttgreinar eftir Ólaf Halldórsson um Landnám Þórólfs Mostrarskeggs og Auðar djúpúðgu Með greinum á öðrum málum en íslensku fylgir íslensk samantekt. Ritstjóri Griplu er Gísli Sigurðsson. 1 3 5 7 9 2 4 6 8 10 Ég man þig Yrsa Sigurðardóttir Svar við bréfi Helgu Bergsveinn Birgisson Gunnar Thoroddsen Guðni Th. Jóhannesson Ljósa Kristín Steinsdóttir Furðustrandir Arnaldur Indriðason Hreinsun Sofi Oksanen METSÖLULISTI EYMUNDSSON SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT 15.12.10 - 21.12.10 Lífsleikni Gillz Egill Einarsson Eldað með Jóa Fel Jóhannes Felixson Sovét-Ísland, óskalandið Þór Whitehead Þóra biskups Sigrún Pálsdóttir

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.