Fréttablaðið - 23.12.2010, Page 50
34 23. desember 2010 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Helgi Björnsson og Just-
in Bieber eiga söluhæstu
plötur ársins hér á landi
í innlenda og erlenda
geiranum. 36 ár skilja að
þessa ólíku en áhrifa-
miklu söngvara.
Þrátt fyrir að 36 ár
skilji að popparana
Helga Björnsson og
Justin Bieber eiga
þeir það sam-
eiginlegt að eiga
vinsælustu plötur
ársins í innlenda
og erlenda geir-
anum hér á landi
með samanlagt um
fjórtán þúsund ein-
taka sölu.
Helgi og Reið-
menn vindanna
eiga la ngsölu-
hæstu plötu ársins,
Þú komst í hlað-
ið, sem hefur selst
í um ellefu þúsund
eintökum. Söluhæsta
erlenda platan er síðan
My World 2.0 úr smiðju
sextán ára ungstirnis-
ins Biebers. Hún hefur
farið í um þrjú þúsund
eintökum og er sú tala
í takt við hrapandi sölu
á erlendum plötum und-
anfarin tíu ár.
Aðspurður segir Eiður
Arnarsson, útgáfustjóri
Senu, að velgengni Helga
Björns hafi að hluta til
komið honum á óvart. „Við
gerðum svipaða plötu með
honum í hittiðfyrra, Ríðum
sem fjandinn. Henni gekk
gríðarlega vel og er komin
í kringum tíu þúsund ein-
tök. Það má segja að það hafi
komið á óvart að þessi skyldi
gera betur,“ segir Eiður og
bætir við að sér finnist nýjan
platan betri en sú gamla.
Samkvæmt nýjasta Tónlist-
anum er plata Justins Bieber í
níunda sæti yfir þær vinsælustu
hér á landi og er þar með fyrsta
erlenda platan í manna minnum
til að komast inn á topp tíu list-
ann. „Hún stefnir í þrjú þúsund og
það er lang, langsöluhæsta erlenda
plata ársins. Bieber er svakalega
vinsæll og er fyrst og fremst að
höfða til unglinga og jafnvel barna.
Þessum hópi er kannski ekkert allt
of mikið sinnt á plötumark-
aðnum,“ segir Eiður.
Næstmest selda plata árs-
ins og sú langsöluhæsta fyrir
jólin er Næstu jól með gröllur-
unum í Baggalúti. Hún mun að
öllum líkindum enda í um átta
þúsund eintökum eftir að
jólavertíðinni lýkur,
miðað við ágisk-
un Eiðs. Síð-
asta jólaplata
Bagga lúts,
Jól og blíða,
seldist einnig
eins og heitar
lummur fyrir
fjórum árum,
í níu þúsund
eintökum.
Um þús -
und eintök
hafa bæst við
síðan þá.
Á e f t i r
Baggalúti eru
nokkrar plötur
í kringum fimm
þúsund eintök, en
það eru safnplötur
Bubba, Ellýjar Vil-
hjálms og Manna-
korna, auk þess sem
plötur Blazroca, Sig-
urðar Guðmundsson-
ar, Diskóeyjunnar,
Hjálma og Björg-
vins Halldórssonar
eru á meðal þeirra
sem eru skammt
undan.
Ef litið er á sölu-
lista vekur athygli
að nýjasta plata
Sálarinnar, Upp
og niður stigann,
og tónleikaplata
Hjaltalín og Sinfó,
Alpanon, hafa ekki náð
flugi fyrir jólin. Báðar
hafa þær selst í um tvö
þúsund eintökum. Síðasta
plata Hjaltalín, sem reyndar var
hljóðversplata, hefur selst í hátt
í sjö þúsund eintökum, og síðasta
hljóðversplata Sálarinnar, Undir
þínum áhrifum, sem kom út fyrir
fimm árum, seldist í yfir fimm
þúsund eintökum. Síðan
þá hefur safnpakki
Sálarinnar selst
í á sjöunda þús-
und eintaka og
gospel-tón-
leikaplata
sveitarinn-
ar er komin
langleiðina
í tíu þúsund
stykki.
freyr@fretta-
bladid.is
ÞJÓÐIN ELSKAR HELGA
BJÖRNS OG JUSTIN BIEBER
Árið sem
Justin
Bieber
fæddist kom út síðasta
hljóðversplata Síðan skein
sól, Blóð. Þar söng Helgi af
mikilli innlifun lög á borð
við Lof mér að lifa,
Einmana, Saklaus og
Sleiktu mig upp.
Sex flytjendur fengu Kraums-
verðlaunin afhent við hátíðlega
athöfn í gær, en það voru App-
arat Organ Quartet, Ég, Nolo,
Ólöf Arnalds, Daníel Bjarnason
og Jónas Sigurðsson. Alls voru
tuttugu plötur sem gefnar voru
út á þessu ári í pottinum.
Þetta var þriðja árið í röð
sem Kraumsverðlaunin voru
afhent. Þau eru veitt þeim verk-
um í íslenskri plötuútgáfu sem
þótt hafa framúrskarandi og
spennandi á árinu. Þeir sem fá
verðlaunin hljóta stuðning frá
Kraumi í formi plötukaupa og
kynningu á verðlaunaplötunum
á erlendum vettvangi. Á meðal
þeirra sem hlutu ekki náð fyrir
augum dómnefndarinnar í ár
voru Agent Fresco, Amiina,
Retro Stefson og Seabear.
Öll þrjú árin sem Kraums-
verðlaunin hafa verið afhent
hafa plöturnar verið sex í stað-
inn fyrir fimm, eins og lagt
var upp með til að byrja með.
Samkvæmt reglum Kraumslist-
ans hefur dómnefnd leyfi til að
fjölga verðlaunaplötum ef sér-
stakt tilefni þykir til.
Þær sex plötur sem urðu
fyrir valinu í fyrra voru með
þeim Önnu Guðnýju Guðmunds-
dóttur, Bloodgroup, Helga
Hrafni Jónssyni, Hildi Guðna-
dóttur, Hjaltalín og
Morðingjunum.
Kraumur gaf
sex verðlaun
VERÐLAUNAHAFAR Sex flytjendur hlutu
Kraumsverðlaunin árið 2010 fyrir plötur
sínar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Apparat Organ Quartet - Pólýfónía
Daníel Bjarnason - Processions
Ég - Lúxus upplifun
Jónas Sigurðsson - Allt er eitthvað
Nolo - No-Lo-Fi
Ólöf Arnalds - Innundir skinni
KRAUMSVERÐ-
LAUNAHAFAR 2010
1994
HELGI BJÖRNSSON
Helgi Björnsson
hefur slegið í gegn
með hestamanna-
plötum sínum
tveimur.
JUSTIN BIEBER
Ungstirnið á söluhæstu
erlendu plötuna á þessu ári.
ÞÆTTIR hafa komið út um hina geysivinsælu Simpson-fjölskyldu,
en fyrsti þátturinn fór í loftið hinn 17. desember 1989.473
www.ring.is / m.ring.is www.facebook.com/ringjarar
Jólakaupauki
Flottur hátalari fylgir GSM
tilboði á meðan birgðir endast.
Vertu með bindis-
hnútinn í símanum
Jólainneign 1.000 kr. á mánuði í 12 mánuði fylgir.
Samsung Galaxy 5
0 kr. útborgun
m.v. 12 mánaða greiðsludreifingu eða 12x3.325 kr.*
*Dreifingargjald 250 kr. á mánuði.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
4
7
8
7