Fréttablaðið - 23.12.2010, Side 52
36 23. desember 2010 FIMMTUDAGUR
Leikkonan Nicole Kidman á erf-
itt með að sætta sig við að börnin
tvö sem hún ættleiddi með Tom
Cruise kjósi frekar að búa með
föður sínum
og konu hans
Katie Holmes.
Kidman og
Cruise ólu upp
hina átján ára
Isabellu og
hinn fimmt-
án ára Conn-
or þangað til
þau skildu árið
2001. Þá ákváðu
börnin að búa með Cruise og gera
enn. „Þau búa hjá Tom en það var
þeirra ákvörðun. Það yrði frá-
bært ef þau myndu búa hjá okkur
en hvað getur maður gert?“ sagði
Kidman, sem býr með eigin-
manni sínum, sveitasöngvaranum
Keith Urban. „Þau eru heilbrigð
og geta verið saman. Þau eru frá-
bærar manneskjur.“
Kidman á einnig dótturina
Sunday Rose með eiginmanni
sínum. „Það er yndislegt að vera
43 ára og eiga eina tveggja og
hálfs árs,“ sagði hún.
Vill fá
börnin heim
NICOLE KIDMAN
Leikkonan Reese Witherspoon
stendur í stórræðum þessa dag-
ana en hún er að byggja skýli við
húsið sitt. With-
erspoon er for-
fallinn dýraað-
dáandi og var
í raun knúin
til að byggja
yfir skepnurn-
ar sínar, geitur,
asna, svín og
hænur. „Mér
finnst mjög töff
að vera með
hlöðu í garðin-
um enda eru dýrin vinir mínir og
eiga skilið almennilegt húsnæði,“
segir Witherspoon í viðtali.
Hún á tvö börn með leikaran-
um Ryan Philippe en er nú í sam-
bandi með umboðsmanninum Jim
Toth og ætla þau að eyða sínum
fyrstu jólum saman.
Byggir hlöðu
fyrir svín
REESE
WITHERSPOON
„Það eru komnar hátt í 600 húfur
og svo fékk ég líka sjö teppi og eitt-
hvað af sokkapörum,“ segir Hafdís
Priscilla Magnúsdóttir, sem ætlar
að afhenda vökudeild Barnaspítala
Hringsins handprjónaðar húfur
handa fyrirburum deildarinnar á
morgun, aðfangadag.
Fréttablaðið sagði frá því í byrj-
un nóvember að Hafdís Priscilla
hefði í hyggju að prjóna húfur
fyrir vökudeildina. Hún setti
prjónaviðburðinn inn á sam-
skiptasíðuna Facebook, fyrir vini
og vandamenn, en átakið vatt upp
á sig og um 850 manns skráðu sig
á síðuna. Hún segir hins vegar að
fleiri hafi haft samband eftir að
fréttin birtist. „Það eru ekki allir
á Facebook og eldri konur sem
lásu fréttina höfðu samband og
vildu endilega vera með,“ segir
Hafdís, en hún er sjálf búin að
prjóna fjórar húfur og sú fimmta
er á leiðinni. Hafdís segir misjafnt
hversu margar húfur hver og einn
geti prjónað. „Sumar prjóna eina
húfu en aðrar kannski fimm. Það
var ein sem prjónaði 35 húfur. En
að halda utan um allar þessar 600
húfur var aðeins meira en ég bjóst
við,“ segir Hafdís og hlær. Húfurn-
ar verða afhentar á morgun, en þá
ætlar hún að ferja þær frá heimili
sínu og niður á Barnaspítala. „Við
keyptum plastkassa í Rúmfatala-
gernum og röðuðum húfunum ofan
í eftir stærð, og þannig ætlum við
að ferja þetta allt saman,“ segir
Hafdís, en hún vill þakka öllum
þeim sem lögðu hönd á plóg við
prjónaskapinn. - ka
Vökudeildin fær hundruð húfa
BJÓST EKKI VIÐ 600 HÚFUM Hafdís
Priscilla afhendir vökudeild Barnaspítala
Hringsins um 600 prjónaðar fyrirbura-
húfur á aðfangadag, mun fleiri húfur en
hún bjóst við að fá. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Mér fannst vanta hressandi spil
þar sem enginn þarf að svara sér-
hæfðum spurningum, ráða í orð
eða leika hlutverk,“ segir Arn-
aldur Gauti Johnson, sem gefur
út spilið Fjör til enda nú fyrir jól.
Fréttablaðið fjallaði um helg-
ina um aragrúa íslenskra spila
sem koma út í ár en gleymdi að
minnast á spil Arnaldar. Spilið
segir hann að sé í anda Hættu-
spilsins sem kom út fyrir rúmum
tólf árum, en það spil sló ræki-
lega í gegn hjá landanum. „Mitt
markmið var að búa til fjörugt
spil fullt af húmor og óvæntum
uppákomum.“ Arnaldur segir það
mikilvægt að þeir sem spili þurfi
ekki að eyða miklum tíma í leið-
beiningar og þess vegna sé spilið
ekki mjög flókið. - ka
Enn bætir í
borðspilin
SVIPAÐ HÆTTUSPILINU Arnaldur Gauti
samdi spilið Fjör til enda nú fyrir jólin en
það er í anda Hættuspilsins sem kom út
1998. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Leikararnir Ryan Reynolds og
Scarlett Johansson tilkynntu í
byrjun mánaðarins að þau væru
að skilja eftir rúmlega tveggja
ára hjónaband. Samkvæmt tíma-
ritinu US Weekly var það Johans-
son sem átti frumkvæðið að
skilnaðinum og situr Reynolds
því eftir með sárt ennið.
Samkvæmt heimildarmönn-
um var Reynolds ófeiminn við að
deila hjónabandsvandræðunum
með mótleikurum sínum í kvik-
myndinni The Green Lantern.
„Hann var mjög opinn
um vandræði þeirra
og sagði að hann
og Scarlett væru
að glíma við ýmis
vandamál,“ sagði
heimildarmað-
urinn. „Hann
sagði meðal
annars að
hún kæmi illa
fram við hann
og að hún
hefði aldrei
tíma aflögu til
að eyða með
honum.“
Kvartaði und-
an Scarlett
SORG Ryan Reyn-
olds var ófeiminn
við að tala um
vandræði þeirra
Scarlett.
Þrjú ár eru liðin síðan
skemmtistaðnum Sirkus var
lokað á Klapparstíg þar eð
rífa átti húsið. Nú dúkkar
þar upp verslun með tölvu-
vörur.
„Ég sagði upp vinnunni þremur
vikum fyrir jól og hófst þá handa
við að gera húsnæðið upp. Það
var annað hvort að hrökkva eða
stökkva,“ segir Hörður Ágústson,
framkvæmdastjóri Macland, en
hann er búinn að opna verslun á
Klapparstíg 30 þar sem skemmti-
staðurinn sálugi var til húsa.
Tæp þrjú ár eru síðan skemmti-
staðnum var lokað vegna þess
að til stóð að rífa húsið og hafa
eflaust margir velt framtíð litla
hússins á Klapparstíg fyrir sér,
enda hefur það verið heldur grátt
og guggið ásýndar. „Húsnæðið
kom fyrir stuttu aftur á leigu-
markaðinn og þá höfðu Hemmi
og Valdi sem reka kaffihúsið hér
fyrir ofan samband við mig en við
eigum búðina til helminga.“
Macland er, eins og nafn-
ið gefur til kynna, verslun sem
sérhæfir sig í tölvum og tækj-
um tengdum Apple ásamt því
að bjóða upp á viðgerðarþjón-
ustu og sérfræðiaðstoð. „Ég er
örugglega Apple-lúði aldarinnar
og hef verið í um tíu ár svo það
má kannski segja að ég hafi tekið
að mér að breiða út boðskapinn,“
segir Hörður. Hann hefur rekið
verslunina á netinu í tæp ár og
var í raun ekki með neina stóra
drauma varðandi fyrir tækið en
ákvað að taka stökkið þegar hús-
næðið bauðst.
Hörður skrifaði undir leigu-
samning í byrjun desember og
hafði þá hraðar hendur við endur-
bætur á húsnæðinu enda var tak-
markið að opna fyrir jól. „Þetta
er búið að vera mikið stress og
við höfum átt margar svefnlausar
nætur til að koma þessu heim og
saman,“ segir Hörður en verslun-
in var opnuð í fyrradag og hefur
verið reynt að tapa ekki tenging-
unni við Sirkusbarinn með endur-
bótunum.
„Við erum eina verslunin með
raftæki í miðbænum og sérhæf-
um okkur í að gefa góða og per-
sónulega þjónustu,“ segir Hörður
og hlakkar til að takast á við versl-
unarbransann í miðbænum.
alfrun@frettabladid.is
Aftur líf í Sirkushúsinu
Holtagörðum 2. hæð • Sími 512 6800 • www.dorma.is • dorma@dorma.is
OPIÐ
Þorláksmessa frá kl. 10-23
Aðfangadag frá kl. 10-13
Frábærar jólagjafir!
6.980,-
2 pör
He
ils
ui
nn
is
kó
r s
em
lag
ar sig
að fætinum - einstök þæ
gindi
3.900,-
1 par
9.990,-
3 pör
Memory Foam
heilsuinniskór.
Heilsusamleg jólagjöf á frábæru verði!
sængurverasett
- einbreið og tvíbreið
3.900,-
20-30%
afsláttur
af jóla-
fylgihlutum
MAC-AÐDÁANDI NÚMER EITT Hörður Ágústsson telur sig vera að breiða út Mac-boðskapinn en Macland er eina verslunin í mið-
bænum sem sérhæfir sig í raftækjum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM