Fréttablaðið - 23.12.2010, Qupperneq 54
23. desember 2010 FIMMTUDAGUR
Við afborgunarverð á farsímum bætist 250 kr. greiðslugjald á mánuði.
vodafone.is
Meiri jól,
meiri jól,
meiri jól
Einn ódýrasti snertiskjásíminn á
Íslandi í dag. Nettur sími með 2 mega-
pixla myndavél og tónlistarspilara.
Vodafone 547
Staðgreitt:
11.990 kr.
0 kr. útborgun og 999 kr. á
mán. í 12 mán.
Netið í símann, 100 MB, fylgir
með í 1 mánuð.
Partý Alias er nú uppselt hjá okkur. Við
þökkum frábærar viðtökur og hvetjum
þá sem eiga spil hjá okkur að sækja
þau sem fyrst í næstu verslun
Vodafone. Við bjóðum áfram frábær
kjör á flottum símum.
Tónlist ★★★
Næstu jól
Baggalútur
Það er löngu orðinn fastur hluti
af jólaundirbúningnum að hlusta
á Baggalút klæða gömul dægur-
lög í jólabúning. Lengi vel létu
Baggalútar sér nægja að skella
einu og einu lagi í spilun, en árið
2006 kom fyrsta jólaplatan, Jól
og blíða. Nú er plata númer tvö
komin: Næstu jól.
Formúlan hjá Baggalútsmönn-
um er einföld. Finna lög sem hafa
slegið í gegn, láta Braga Valdi-
mar Skúlason semja húmoríska
jólatexta við þau og fá Kidda í
Hjálmum og hans lið til að útsetja
og spila inn. Oft tekst þetta frá-
bærlega. Kreppujólasmellurinn
Það koma vonandi jól við Bee
Gees lagið I Am a Woman in Love
er til dæmis algjör snilld, textinn
frábær og útsetningin upp á tíu.
Á nýju plötunni eru nokkur fleiri
lög í sama gæðaflokki. Leppa lúði
(Somewhere Down the Crazy
River) er eitt af þeim, Ég kemst í
jólafíling (You‘ve Lost That Lov-
ing Feeling) er annað og Wings-
smellurinn Silly Love Songs sem
Baggalútur kallar Jólaleg jóla-
lög er það þriðja. Textinn í því
er reyndar ekkert sérstakur, en
flutningurinn flottur og þetta er
fyndið og skemmtilegt lag. Og
svo er það lagið sem toppar allt:
Saddur (Je t’aime... moi non plus).
Viðsnúningur Baggalúts á þessu
andstutta ástarbrímameistara-
verki Serge Gainsbourg er stór-
kostlegur. Karlinn glottir örugg-
lega í gröfinni.
Inni á milli eru svo lög sem
virka ekki jafn vel. Yazoo-lagið
Only You er dæmi um það. Er
einhvern veginn bara pirrandi
hér. Á heildina litið er þetta
samt stórskemmtilegur jóladisk-
ur. Er hægt að ímynda sér jól án
Baggalúts?
Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Jólasending Baggalúts
klikkar ekki frekar en fyrri daginn.
Baggalútur kemur með jólin
Mikill styr stendur þessa dag-
ana um eina af uppáhaldsbúðum
Íslendinga, Hennes & Mauritz.
Sænska dagblaðið Expressen sakar
verslanakeðjuna um að ljúga að
viðskiptavinum sínum. Málið snýst
um fatnað sem stenst ekki gæða-
kröfur fyrirtækisins. Það hefur
verið yfirlýst stefna H&M að flík-
urnar séu gefnar til hjálparstofn-
ana en Expressen segir að það sé
rangt, fyrirtækið eyðileggi í raun
fatnaðinn og hendi honum.
Myndbrot sem sýnir starfsmann
í einni af fjölmörgum búðum versl-
anakeðjunnar klippa og rífa fatnað
á meðan hann afgreiðir viðskipta-
vin hefur gengið eins og eldur um
sinu á netmiðlum. Myndbandið er
tekið upp á síma og hafði sá sem
tók það upp orð á því að starfs-
stúlkan klippti niður boli og buxur
með æfðum handtökum og henti í
svartan ruslapoka. Í kjölfarið tók
Expressen viðtöl við tíu starfs-
menn í búðum víðs vegar í Sví-
þjóð sem staðfesta að þeim sé sagt
að ljúga að viðskiptavinum ef þeir
séu spurðir út í þetta. „Við höfum
aldrei heyrt um neinar gjafir til
góðgerðarmála og klippum niður
allt að tuttugu flíkur á dag sem
koma inn með smávægilega galla,“
hefur blaðið eftir starfsmönnum
verslanakeðjunnar.
Hennes & Mauritz hefur ávallt
gefið sig út fyrir að gefa fatnað til
hjálparstofnana og þvertekur fyrir
að farga fatnaði. Þetta er óneitan-
lega svartur blettur á annars til-
tölulega flekklausri fortíð sænska
verslunarrisans, sem hefur skapar
sér fastan sess í hjörtum verslun-
arglaðra Íslendinga. - áp
Skandall skekur H&M
LOGIÐ AÐ VIÐSKIPTAVINUM? Sænski
verslunarrisinn H&M eyðileggur og
hendir fatnaði í stað þess að gefa til
hjálparstofnana samkvæmt yfirlýstri
stefnu fyrirtækisins.
Þjóðlagahljómsveitin Árs-
tíðir hefur ráðið rússneska
umboðskonu sem bókar nú
hvert giggið á fætur öðru í
Austur-Evrópu.
Þjóðlagahljómsveitin Árstíð-
ir hefur ráðið til sín rússnesku
umboðskonuna Mariu Chelnok-
ovu. Hún sér um að bóka tónleika
fyrir sveitina í Austur-Evrópu og
víðar og koma henni á framfæri í
fjölmiðlum.
„Hún vinnur fyrir rússnesk-
an menningarsjóð og fann okkur
í gegnum IMX [Iceland Music
Export],“ segir söngvarinn Ragn-
ar Ólafsson. „Hún hafði samband
síðasta vor og vildi fá okkur á tón-
leika í Rússlandi.“ Árstíðir tóku
boðinu fagnandi og drifu sig í tíu
daga túr til Finnlands og Rúss-
lands. „Þetta var alveg frábært.
Það var þvílík mæting, 250 manns
að jafnaði á tónleikum og stofnað-
ur aðdáendaklúbbur í St. Péturs-
borg. Við spiluðum í aðalmenn-
ingarhúsinu í Moskvu og rússnesk
sjónvarpsstöð tók upp tónleikana
og við fórum í viðtal á nokkrum
útvarpsstöðvum. Síðan höfum við
verið að dúkka upp í alls konar
tímaritum,“ segir Ragnar, sem
er gríðarlega ánægður með störf
Mariu. „Þessi túr sem við fórum
á sýnir hvers hún er megnug. Við
erum í skýjunum með að hafa
fundið þessa manneskju.“
En hvers vegna eru Árstíð-
ir svona vinsælt band í Rúss-
landi? „Ísland hefur gott orð á sér
þarna og íslensk tónlist er spenn-
andi, enda eru Sigur Rós og múm
dáðar þarna úti,“ útskýrir Ragn-
ar. „Síðan er líka mjög mikil þjóð-
lagahefð í Austur-Evrópu og það
sem Árstíðir eru að gera hittir
beint í mark. Við lentum meira
að segja í því að unglingsstúlk-
ur voru að bresta í grát þegar við
árituðum plötuna okkar.“
Hljómsveitin ætlar í tvær tón-
leikaferðir um Rússland og víðar
um Austur-Evrópu í ágúst á
næsta ári sem standa alls yfir í
tvo mánuði. Ný plata verður tekin
upp næsta sumar og vilja Ragn-
ar og félagar tryggja sér dreif-
ingarsamning í Rússlandi áður
en farið verður út. „Flest bönd á
Íslandi reyna við Bandaríkja- og
Bretlandsmarkað en það er mjög
erfiður markaður. Við ætlum að
bíða með það og hamra járnið í
Austur-Evrópu og Rússlandi á
meðan það er svona funheitt,“
segir Ragnar.
Næstu tónleikar Árstíða hér
heima verða í Fríkirkjunni á Þor-
láksmessu þar sem hljómsveit-
in spilar sín eigin lög í bland við
jólalög í nýjum útsetningum.
freyr@frettabladid.is
Ungmeyjar grétu þegar
meðlimir Árstíða árituðu
ÁRSTÍÐIR Þjóðlagahljómsveitin Árstíðir nýtur aðstoðar umboðskonunnar Mariu
Chelnokovu.