Fréttablaðið - 23.12.2010, Side 56
40 23. desember 2010 FIMMTUDAGUR
Jól og áramót eru yfirleitt
ágætis tími til að skella sér
í kvikmyndahús. Íslensk-
ar unglingaraunir, tækni-
brelluskrímsli og dansk-
ir grínistar eru meðal þess
sem rekur á fjörurnar.
Kvikmyndin Gauragangur var
frumsýnd í gær í Smárabíói en hún
fer í almennar sýningar á annan
í jólum. Þetta er önnur kvikmynd
Gunnars Björns Guðmundssonar í
fullri lengd, sú fyrsta hét Astrópía
og sló eftirminnilega í gegn.
Myndin er byggð á samnefndri
skáldsögu Ólafs Hauks Símon-
arsonar og segir frá raunum
og ævintýrum hins unga Orms
Óðinssonar og pælingum hans um
lífið og tilveruna. Hópur ungra
og upprennandi leikara fer með
aðalhlutverkin í myndinni, þar
fremst í flokki eru þau Alexand-
er Briem sem leikur Orm, Hildur
Berglind Arndal og Eygló Hilm-
arsdóttir. Þau eru dyggilega studd
af reynslu boltum á borð við Stein
Ármann, Þorstein Bachman og
Þrúði Vilhjálmsdóttur.
Jeff Bridges leikur eitt aðalhlut-
verkanna í tæknibrellurisanum
Tron: Legacy sem verður frum-
sýndur í kvikmyndahúsum um
helgina. Bridges lék einmitt einnig
aðalhlutverkið í samnefndri mynd
sem Disney-fyrirtækið frumsýndi
fyrir næstum þrjátíu árum. Tron
segir frá hinum unga og rótlausa
Sam Flynn, sem á erfitt með að
sætta sig við hvarf föður síns
fyrir tuttugu árum. Sá var einn
fremsti stafræni hönnuður heims
og hafði hannað heim sem hann
taldi geta breytt vitundarstigi
jarðarbúa. Flynn kemst á snoðir
um hvar þessi heimur er geymd-
ur og fyrr en varir er hann kom-
inn á slóð síns horfna föður. Auk
Bridges leika þau Garret Hedlund
og Olivia Wilde aðalhlutverkin í
fyrstu mynd leikstjórans Joseph
Kosinski.
Gamanmyndin Little Fockers
verður frumsýnd á annan í jólum
en hún er þriðja myndin um ansi
skrautleg samskipti Gaylord Fock-
er og tengdapabba hans Jacks. Að
þessu sinni er það barnaafmæli
sem er sögusviðið og Jack hefur
eðlilega miklar áhyggjur af því að
Gaylord sé ekki vandanum vax-
inn. Aðalhlutverkin eru sem fyrr
í höndum Bens Stiller og Roberts
De Niro en meðal annarra leik-
ara má nefna Jessicu Alba, Bar-
böru Streisand, Dustin Hoffman
og Owen Wilson.
Og svo eru það dönsku trúð-
arnir í Klovn, þeir Frank Hvam
og Casper Christensen. Mynd-
in hefur slegið rækilega í gegn í
Danmörku og hennar er beðið með
mikilli eftirvæntingu hér á landi
enda nutu þættirnir gríðarlegra
vinsælda. Myndin er vegasaga og
segir frá því þegar Frank ákveður
að taka á sig rögg og hyggst keppa
í kanósiglingum ásamt ellefu ára
gömlum frænda sínum. Því miður,
fyrir Frank og frændann er Cas-
per með í för og eins og áhorfend-
um Klovn ætti að vera kunnugt
nær heili Caspers aðeins utan um
eitt atriði þegar hann er sloppinn
frá frúnni; að eiga náin kynni við
hitt kynið. Myndin verður frum-
sýnd 1. janúar.
freyrgigja@frettabladid.is
Ágætis bíójól fram undan
Ævintýramyndinni Avatar
var oftast stolið á netinu árið
2010, samkvæmt upplýsingum
frá skráaskiptabloggsíðunni
Torr entFreak. Alls var mynd-
inni halað niður 16,6 milljón
sinnum. Í öðru sæti var hasar-
myndin Kick-Ass með 11,4 millj-
ónir niðurhala og í því þriðja
lenti Inception með 9,7 milljón-
ir. Sú mynd sem lenti í efsta sæti
á síðasta ári var Star Trek sem
var stolið ellefu milljón sinn-
um. James Cameron, leikstjóri
Avatar, hefur sagt að þrívíddar-
myndir geti helst komið í veg
fyrir ólöglegt niðurhal. Það kom
þó ekki í veg fyrir að milljónir
næðu sér í Avatar á netinu.
Avatar oftast
stolið 2010
AVATAR Ævintýramyndinni Avatar var
oftast stolið á netinu á þessu ári.
Tónlist ★★★
Lúxus upplifun
Hljómsveitin Ég
Enginn brosir líkt og Ég
Lúxus upplifun er þriðja plata
Hljómsveitarinnar Ég, sem er
Róbert Örn Hjálmtýsson ásamt
aðstoðarmönnum, og sú fyrsta
síðan hin stórskemmtilega
Plata ársins kom út fyrir heil-
um fimm árum. Ekki er hægt
að segja að hljómsveitin Ég
hafi tekið róttækum breyting-
um á þeim tíma. Róbert fetar
kunnuglegar slóðir í áheyri-
legu furðupoppi og helst að
stórskemmtilegir textarnir hafi
þokast í eilítið persónulegri
og einlægari átt, sem er vel.
Einnig er engu líkara en Róbert
hafi öðlast meira sjálfstraust í
söngnum. Hann skrúfar betur
frá en áður, en þó hættir enn
til að gæta einhæfni í raddbeitingu. Erfitt er að verjast þeirri hugsun að hlust-
endur eigi enn eftir að heyra það besta frá Róberti í þeim efnum.
Sjálfur leikur Róbert á langflest hljóðfæri. Þegar best lætur virkar það fínt
og skilar sér í afar auðþekkjanlegum og notalegum stíl sem er vissulega
hans eigin. Á einstaka stað virkar þó hljóðfæraleikurinn, og þá sérstaklega
trommurnar sem eiga til að grautast áfram, heftandi fyrir lagasmíðar sem lofa
góðu en eiga í erfiðleikum með að hefja sig til flugs. Góðu heilli er þau tilfelli
þó undantekningin sem sannar regluna. Þá má ætla að litríkar lagasmíðarnar,
sem fylgja fáum formúlum. byðu upp á örlítið meiri hugmyndaauðgi í útsetn-
ingum, en þær dansa á mörkum þess að vera full keimlíkar frá lagi til lags.
Að því sögðu er hér á ferð hin fínasta plata með listamanni sem fer sínar
eigin leiðir í flestu sem hann tekur sér fyrir hendur. Þeir sem hingað til hafa
kunnað að meta Hljómsveitina Ég verða fráleitt sviknir af Lúxus upplifun, en
Róbert færi líka létt með að bæta fleiri aðdáendum í hópinn með fjölbreyttari
áherslum. Kjartan Guðmundsson
Niðurstaða: Hljómsveitin Ég á kunnuglegum slóðum með sitt fína furðu-
popp og sérstaka stíl. Frábær textagerð en einhæfni gætir á stöku stað í
raddbeitingu og útsetningum.
Kvikmyndin Tron þykir
mikið augnakonfekt
en hún skartar Óskars-
verðlaunahafanum Jeff
Bridges í aðalhlutverki.
Kvikmyndin Gauragangur
verður frumsýnd á annan
í jólum eins og Little
Fockers. Á nýársdag taka
síðan trúðarnir Casper og
Frank öll völd í íslenskum
kvikmyndahúsum þegar
Klovn: The Movie verður
frumsýnd.
SJÓNRÆNT EÐA ÍSLENSKT
GLEÐILEG BÍÓJÓL
SAMBÍÓIN ERU LOKUÐ Í DAG ,
ÞORLÁKSMESSU, OPNUM AFTUR 2. Í JÓLUM
sýnd með íslensku og ensku tali
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
SHREK OG KUNG FU PANDA
- BOXOFFICE MAGAZINE
- HOLLYWOOD REPORTER
ZENTROPA ENTERTAINMENTS10 APS OG JA-HATTEN PRÆSENTERER KLOVN THE MOVIE FRANK HVAM CASPER CHRISTENSEN MARCUZ JESS PETERSEN MIA LYHNE IBEN HJEJLE LARS HJORTSHØJ
BØRNECASTER JETTE TERMANN CASTER ANDERS NYGAARD FOTOGRAF JACOB BANKE OLESEN, DFF KLIPPERE MARTIN SCHADE MORTEN EGHOLM PRODUKTIONSLEDER SILLE STERLL JAWORSKI
SCENOGRAF RASMUS THJELLESEN STYLIST LOUISE HAUBERG MUSIK OG LYDDESIGN KRISTIAN EIDNES ANDERSEN TITELMELODI BENT FABRICIUS-BJERRE TONEMESTRE KASPER RASMUSSEN HENNING ZOLON MORTENSEN
MANUSKRIPTFORFATTERE CASPER CHRISTENSEN FRANK HVAM PRODUCER LOUISE VESTH INSTRUKTØR MIKKEL NØRGAARD
PRODUCERET AF ZENTROPA ENTERTAINMENTS10 APS OG JA - HATTEN I SAMARBEJDE MED TV2 OG MED STØTTE FRA DET DANSKE FILMINSTITUT VED 60/40 ORDNINGEN DISTRIBUERES AF NORDISK FILM BIOGRAFDISTRIBUTION A/S ET EGMONT SELSKAB. SALGSAGENT TRUST FILM SALES6 APS.
ZENTROPA
ENTERTAINMENTS10
© Copyright 2010 ZENTROPA ENTERTAINMENTS10 ApS
Opið fyrir sölu á gjafabréfum í
Álfabakka kl. 13-17 og
í kringlunni 13-23
TR
YG
GIÐ
YK
KU
R M
IÐA
Á
WW
W.S
AM
BIO
.IS
TR
YG
GIÐ
YK
KU
R M
IÐA
Á
WW
W.S
AM
BIO
.IS
TR
YG
GIÐ
YK
KU
R M
IÐA
Á
WW
W.S
AM
BIO
.IS
TR
YG
GIÐ
YK
KU
R M
IÐA
Á
WW
W.S
AM
BIO
.IS
SMÁRABÍÓ Nánar á Miði.isNánar á Miði.is
MEGAMIND 3D ÍSL. TAL KL. 3.30 - 5.50
MEGAMIND 3D ENSKT TAL KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
NARNIA 3 3D KL. 3 - 5.30 - 8 - 10.30
NARNIA 3 3D LÚXUS KL. 3 - 5.30 - 8 - 10.30
FASTER KL. 8 - 10.10
PARANORMAL ACTIVITY 2 KL. 10.10
JACKASS 3D ÓTEXTAÐ KL. 8
NIKO OG LEIÐIN TIL STJARNANNA KL.4 - 6
L
L
7
7
16
16
12
L
NARNIA 3 3D kl. 6 - 9
FASTER kl. 8 - 10.10
AGORA KL. 6 - 9
NIKO OG LEIÐIN TIL STJARNANNA KL. 6
UNSTOPPABLE KL. 10.10
EASY A KL. 6
YOU WILL MEET A TALL DARK STRANGER KL. 8
7
16
14
L
L
L
L
HÁSKÓLABÍÓGLERAUGU SELD SÉR
OPIÐ Í DAG ÞORLÁKSMESSU!
ÍSL. TALT.V. - KVIKMYNDIR.IS
MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Í 3-D Í 3-D
5%
NÝTT Í BÍÓ - bara lúxusSími: 553 2075