Fréttablaðið - 23.12.2010, Síða 58
23. desember 2010 FIMMTUDAGUR42
sport@frettabladid.is
21
DAGUR
ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ hefur aðeins einu sinni náð bestum árangri Norðurlandaþjóða á HM í handbolta en
það var þegar liðið náði 7. sætinu á HM í Portúgal 2003. Strákarnir voru þá ofar en bæði Danir (9. sæti) og Svíar (13.
sæti). Svíar hafa tólf sinnum verið efstir, Danir sjö sinnum og Norðmenn einu sinni.
ALEXANDER PETERSSON 30 ára handknattleiksmaður.
HRAFNHILDUR LÚTHERSDÓTTIR
19 ára sundkona.
HLYNUR BÆRINGSSON
28 ára körfuknattleiksmaður.
ARON PÁLMARSSON
20 ára handknattleiksmaður.
ARNÓR ATLASON 26 ára handknattleiksmaður.
GYLFI SIGURÐSSON
20 ára knattspyrnumaður.
ÍÞRÓTTIR Framtíðarfólk íslenskra
íþrótta er áberandi meðal tíu efstu
í kjörinu á Íþróttamanni ársins
fyrir árið 2010. Fjórir af íþrótta-
mönnunum eru 21 árs eða yngri,
sex þeirra hafa aldrei komist svona
ofarlega í kjörinu áður, aðeins tveir
eru orðnir þrítugir og meðalaldur
listans er „bara“ 24,9 ár.
Þetta er í fyrsta sinn í tólf ár
sem fjórir íþróttamenn sem eru 21
árs eða yngri eru á topp tíu. Árið
1998 voru einnig fjórir íþrótta-
menn á listanum sem höfðu ekki
náð 22 ára aldri en þar á meðal var
sundmaðurinn Örn Arnarson sem
var þá kosinn Íþróttamaður ársins
aðeins 17 ára gamall.
Atkvæðagreiðsla félagsmanna í
Samtökum íþróttafréttamanna
er leynileg og fer þannig
fram að hver félagsmaður SÍ
setur saman lista með nöfn-
um tíu íþróttamanna sem
honum þykja hafa
skarað fram úr á
árinu. 21 félags-
maður er í Samtök-
um íþróttafrétta-
manna og nýttu
allir þeirra atkvæð-
isrétt sinn í kjörinu.
26 íþróttamenn fengu
atkvæði í kjörinu að
þessu sinni.
Handboltamenn
eru fjölmennastir
á listanum að þessu
sinni en fjórir liðs-
menn úr bronsliði
Íslands frá EM eru á
listanum. Hópíþrótta-
menn eru áfram í
aðalhlutverki en
aðeins tveir ein-
staklingsíþrótta-
menn komast inn
á topp tíu listann
að þessu sinni,
frjálsíþróttakonan
Helga Margrét Þorsteins-
dóttir og sundkonan Hrafnhildur
Lúthersdóttir. Hópfimleikakonan
Íris Mist Magnúsdóttir er fyrsta
fimleikakonan á topp tíu í fjögur
ár og fyrsta fimleikakona Gerplu
sem kemst inn á topp tíu listann
síðan 1983.
Ólafur Stefánsson, íþróttamað-
ur ársins tvö síðustu ár, er sá eini
á listanum sem hefur verið kosinn
íþróttamaður ársins. Ólafur er nú
meðal tíu efstu í tólfta sinn en hann
hefur verið á listanum allar götur
frá og með árinu 1997 að árunum
1998 og 2005 undanskildum. Ólaf-
ur er þriðji íþróttamaðurinn í sögu
kjörsins sem nær að komast meðal
tíu efstu í tólf skipti eða fleiri en
hinir eru sundmaðurinn Guðmund-
ur Gíslason (15) og júdómaðurinn
Bjarni Friðriksson (12.)
Auk Ólafs hafa þau Alex-
ander Petersson, Helga Mar-
grét Þorsteinsdóttir og Hólm-
fríður Magnúsdóttir komist
áður inn á topp tíu
listann. Helga Mar-
grét og Hólmfríður
eru meðal tíu efstu
annað árið í röð og
Alexander var líka á
listanum árið 2008.
Hinir sex íþróttamenn-
irnir í tíu efstu sætun-
um eru nýir á listan-
um.
Þetta kjör markar
líka ákveðin tímamót
hjá knattspyrnumann-
inum Eiði Smára Guð-
johnsen, sem hafði
verið meðal tíu efstu í
kjörinu tíu ár í röð (frá
og með árinu 2000)
en kemst ekki á list-
ann að þessu sinni.
Kjörinu verður
lýst á Grand Hóteli í
Reykjavík hinn 5. jan-
úar næstkomandi.
ooj@frettabladid.is
Ný andlit á listanum
SÍ hefur gefið út hvaða íþróttamenn eru í tíu efstu sætunum í kjörinu á Íþrótta-
manni ársins 2010. Sex af tíu efstu hafa ekki verið á topp tíu listanum áður.
ÓLAFUR STEFÁNSSON
37 ára handknattleiksmaður.
HÓLMFRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR
26 ára knattspyrnukona.
ÍRIS MIST MAGNÚSDÓTTIR
23 ára fimleikakona.
HELGA MARGRÉT ÞORSTEINSDÓTTIR
19 ára frjálsíþróttakona.
Ert þú á leiðinni til
Abu Dhabi?
Fótboltamót áhugamanna, Vodafone Cup,
verður haldið 7.-8. jan. í Fífunni. Sigurliðið
vinnur ferð til Abu Dhabi og VIP miða á
verðlaunahátíð Laureus samtakanna.
Skráning og nánari upplýsingar um
mótið eru á vodafone.is