Fréttablaðið - 23.12.2010, Side 62
46 23. desember 2010 FIMMTUDAGUR
„Jú, ég er orðinn svolítið lúinn
á aðfangadag. Ég reyni yfirleitt
að leggja mig með börnunum í
klukkutíma en ef það tekst ekki
er ég orðinn eilítið þreyttur um
kvöldið,“ segir Bubbi Morthens,
sem hefur verið á þönum fyrir
hver jól síðustu 26 ár.
Í kvöld spilar Bubbi á sínum
árlegu Þorláksmessutónleikum í
Háskólabíói og í fyrramálið legg-
ur hann af stað austur fyrir fjall
og spilar fyrir fangana á Litla-
Hrauni ásamt nokkrum vel völd-
um listamönnum. Bubbi hefur
farið á Hraunið síðan 1984 og
hefur margoft lýst því yfir að
jólin komi ekki fyrr en græna
hliðið á Litla-Hrauni lokist fyrir
aftan hann. „Þá fer maður heim,
fullur þakklætis. Það er því
bæði gott fyrir mig og gott fyrir
fangana að við hittumst þarna á
aðfangadag.“
Bubbi, sem varð 54 ára í ár,
segist vera í góðu líkamlegu
standi fyrir jólatörnina. „Ég verð
að vera í góðu formi til að geta
sungið, það er algjört lykilatriði,“
segir Bubbi, sem byrjaði í helj-
arinnar átaki í september þegar
hann var orðinn yfir hundrað
kíló. Og fannst sú þyngd vera
farin að bitna á röddinni. „Ég á
það til að sleppa mér alveg en nú
er ég kominn í 89, búinn að missa
tólf kíló.“ Hann breytti mataræð-
inu, tók út brauðmeti og byrjaði
að gæða sér á ávaxtadrykkjum,
eplum og döðlum. „Og svo vakna
ég eldsnemma til að æfa á fast-
andi maga, sem er síður en svo
auðvelt. Brennslan verður hins
vegar skilvirkari.“
Bubbi boxar þrisvar í viku og
hefur þá hljóðbók í eyrunum,
annað hvort Egilssögu eða Góða
dátann Svejk, og svo horfir hann á
heimildarmyndir á meðan hann
hjólar í einn og hálfan tíma.
Hann er með góða æfingaað-
stöðu heima hjá sér, bílskúr
og heilt fjall. „Ég er í sér-
stökum hitagalla, hettupeysu
yfir hann og svo húfu þannig
að ég steiki mig alveg.“
Bubbi segist því líkamlega
vera fertugur og finnst lítið mál
að koma sér aftur í form. „Þetta
snýst allt um aga. Ef maður á
mínum aldri hreyfir sig ekki þá
fitnar hann bara. Maður veit auð-
vitað aldrei hvenær stóra kallið
kemur en ég held að maður ráði
helvíti miklu um hvað maður verð-
ur gamall.“
freyrgigja@frettabladid.is
„Við höfum verið saman í fjögur ár
en þetta verða fyrstu jólin okkar
saman,“ segir söngvarinn Friðrik
Ómar. Hann var á leiðinni norð-
ur þegar Fréttablaðið hafði uppi á
honum og ætlaði að leigja sér bíl
til að keyra. Friðrik Ómar og kær-
asti hans, Ármann Skæringsson,
ætla að eyða jólunum saman fyrir
norðan hjá fjölskyldu Friðriks
en söngvarinn hefur verið á ferð
og flugi undanfarnar vikur með
Frostrósum. „Ég er búinn að vera
hérna á Íslandi í mánuð þannig að
þetta er búin að vera ágætis törn,“
segir Friðrik en eins og margoft
hefur komið fram eru þeir Friðrik
og Ármann búsettir í Stokkhólmi.
Friðrik eyðir jólunum yfirleitt
fyrir norðan og hefur sína jóla-
siði. Hann hyggst hitta sína dyggu
aðdáendur í höfuðstað Norður-
lands á Glerártorgi á Þorláks-
messu og árita geisladiskinn sinn
með Elvis-ábreiðunum sem nutu
töluverðra vinsælda á árinu sem
er að líða. „Við förum síðan út
aftur eftir áramótin og slökum á,
ætli við reynum ekki bara að fara
í einhverja utanlandsferð.“ Friðrik
verður síðan með tónleika í mars í
Stokkhólmi í samvinnu við sendi-
herra Íslands, Guðmund Árna Stef-
ánsson. - fgg
ÞORLÁKSMESSUSKATAN
„Ég fór alltaf í skötu til lang-
ömmu minnar en hún er ekki
á lífi lengur þannig að amma
hefur tekið við. Þetta er orðin
pínu hefð því öll fjölskyldan er
saman. Þetta er alltaf jafn-
gaman.“
Sylvía Briem Friðjónsdóttir,
fegurðardrottning.
SAMAN Friðrik Ómar og Ármann ætla
að eyða jólunum saman fyrir norðan hjá
fjölskyldu Friðriks. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Íslenska merkið E-label hefur hafið samstarf
við vefverslunina Asos.com og verður fáan-
legt á síðunni frá og með janúarmánuði. Asos
er stærsta vefverslun Bretlands og á hverjum
mánuði heimsækja yfir átta milljónir manna
síðuna. „Þeir eru búnir að taka inn pöntun frá
okkur sem ætti að vera komin í sölu einhvern
tímann í janúar. Þeir byrja á því að taka inn
línurnar sem komu út á þessu ári og svo bæt-
ist vonandi við það í framtíðinni,“ útskýrir
Ásta Kristjánsdóttir, sem rekur E-label ásamt
Hebu Hallgrímsdóttur. Undanfarið hafa þær
unnið markvisst að því að koma merkinu að í
verslunum í Bretlandi og Þýskalandi og virð-
ist sú vinna vera að skila sér núna.
„Netsala hefur aukist gífurlega alls staðar
í heiminum og við erum því mjög ánægðar að
hafa komist inn hjá Asos. Í gegnum þá náum
við til markhóps sem við myndum kannski
ekki hafa náð til annars, auk þess er það mjög
góð auglýsing og kynning fyrir merkið að hafa
fengið að tengjast Asos-síðunni.“
Ásta segir þær stöllur þó fara sér hægt
þegar kemur að auknum markaðsyfirráðum.
„Við tökum bara eitt spor í einu þegar kemur
að því að stækka við okkur. Við höfum farið
varlega og passað upp á að fara að engu óðs-
lega, ætli það megi ekki segja að við séum
mjög íhaldssamar þegar kemur að þessum
málum,“ segir Ásta og hlær. Auk þess að sölsa
Bretlandsmarkað undir sig hafa stúlkurnar
haldið innreið sína á Þýskalandsmarkað, sem
Ásta segir vera engu minna spennandi verk-
efni. „Það eru spennandi tímar fram undan
en í bili ætlum við að einbeita okkur að því að
sinna þessu verkefni eins vel og við getum.“ - sm
E-label selt í stærstu vefverslun Bretlands
GÓÐUR ÁRANGUR Heba Hallgrímsdóttir og Ásta Kristj-
ánsdóttir gerðu nýverið samning við stærstu vefverslun
Bretlands, Asos.com, um að taka inn vörur E-label.
BUBBI MORTHENS: VERÐ AÐ VERA Í GÓÐU FORMI TIL AÐ GETA SUNGIÐ
Tólf kíló fokin af kónginum
Loksins saman um jólin
Bubbi hefur tekið
góða listamenn með
sér á Litla-Hraun til
að lesa upp úr verk-
um sínum, spila og
annað slíkt. Að
þessu sinni
fara þeir Ari
Eldjárn,
Jónas Sig-
urðsson og
Einar Kára-
son á Litla-
Hraun með
Bubba.
GESTIR BUBBA Á
AÐFANGADEGI
Á ÞÖNUM Jólin eru mikill annatími hjá Bubba Morthens, hann spilar á þorláksmessutónleikum í kvöld og svo á Litla-Hrauni á
aðfangadag. Hann er búinn að missa tólf kíló síðan í september en honum fannst þyngdin þá vera farin að há sér í söngnum.
STRÁKAR!
JÓLAGJÖFIN HENNAR FÆST HJÁ EMAMI
Verslanir EMAMI Kringlunni s: 5717070 Laugavegi 66 s: 5111880
Þar að auki fær hún aukapakka því
frír bolur eða leggings fylgir með
öllum kjólum til jóla.
w
w
w
.e
m
am
i.i
s
Fim 30.12. Kl. 19:00
Fös 7.1. Kl. 19:00
Lau 15.1. Kl. 19:00
Sun 16.1. Kl. 19:00
Lau 22.1. Kl. 19:00
Sun 23.1. Kl. 19:00
Lau 15.1. Kl. 20:00
Sun 16.1. Kl. 20:00
Fim 20.1. Kl. 20:00
Lau 22.1. Kl. 20:00
Þri 28.12. Kl. 16:00
Mið 29.12. Kl. 16:00
Fim 30.12. Kl. 16:00
Sun 2.1. Kl. 13:00
Sun 2.1. Kl. 15:00
Lau 8.1. Kl. 13:00
Lau 8.1. Kl. 15:00
Sun 9.1. Kl. 13:00
Sun 9.1. Kl. 15:00
U
Fíasól (Kúlan)
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Gerpla (Stóra sviðið)
Leitin að jólunum
Þri 28.12. Kl. 14:00
Þri 28.12. Kl. 16:00
Mið 29.12. Kl. 14:00
Mið 29.12. Kl. 16:00U
U
Ö
Ö
Fim 30.12. Kl. 20:00 Frums.
Mið 5.1. Kl. 20:00
Fim 6.1. Kl. 20:00
Fös 7.1. Kl. 20:00
Lau 8.1. Kl. 20:00
Kandíland (Kassinn)
Ö Fim 6.1. Kl. 20:00
Mið 12.1. Kl. 20:00
Fim 20.1. Kl. 20:00
Sun 30.1. Kl. 20:00
Lér konungur (Stóra sviðið)
Sun 26.12. Kl. 20:00 Frums.
Þri 28.12. Kl. 20:00 2. sýn
Mið 29.12. Kl. 20:00 3. sýn
Lau 8.1. Kl. 20:00 4. sýn
Sun 9.1. Kl. 20:00 5. sýn
Fim 13.1. Kl. 20:00 6. sýn
Fös 14.1. Kl. 20:00 7. sýn
Fös 21.1. Kl. 20:00 8. sýn
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Fim 3.2. Kl. 18:00
Sun 6.2. Kl. 14:00
Sun 6.2. Kl. 17:00
Sun 13.2. Kl. 14:00
Sun 13.2. Kl. 17:00
Sun 20.2. Kl. 14:00
Sun 20.2. Kl. 17:00
Sun 27.2. Kl. 14:00
Sun 27.2. Kl. 17:00
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
U
Ö
Ö
Hænuungarnir (Kassinn)
U
U
U
Ö
U
Ö
Ö
Ö Ö
U
Ö
Ö
GEFÐU GÓÐAR STUNDIR
Gjafakort Þjóðleikhússins á hátíðartilboði!
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI ÍÞRÓTTIR
Meiri Vísir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
I