Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.11.1902, Page 2

Sameiningin - 01.11.1902, Page 2
i 30 Lýsi þér sannleikr líknar braut, leiði þig náðin í sannleiks skaut. 4. Hver gefr sannleika ? hver gefr náð ? hver gefr lífið hið sanna? Varmann og birtuna breiðir um láð blessaði frelsarinn manna. Fylling guðs sannleika flytr hann, fylling guðs náðar við sérhvern mann. Hvernig stóð á því, að múrar Jeríkó- borgar hrundu? Eftir dr. H. Clay Trumbull, ritstjóra blaðsins Sunday School Ttmes. Kraftaverk þau, sem frá er sagt í biblíunni, hafa það sér- kenni við sig, að þótt þau sé yfirnáttúrleg, eru þau þó ekki ónáttúrleg. í því tilliti stingr þeim algjörlega í stúf við töfra- undr þau, sem fyrir koma í austrlenzkum æfintýrum. Guð notar náttúruöflin, þótt hann við notkan og stjórn þeirra beiti krafti þeim, sem er óvanalegr og sérstaks eðlis. Hann gjörir það þá er honum gott þykir til þess að hafa það fram, er hann vill. Þannig er það í sögu þeirri, sem nú er um að rœða. Að hrun Jeríkóborgar-múra hafi verið guðlegt krafta- verk er ekki að efa. Engu að síðr er eðlilegt, að spurt sé : Stendr ekki hrun múranna og það að borgin svo var unnin af ísraelsmönnum í sambandi við það, hvernig á stóð þar á staðnum, og fyrirmæli þau, sem þeir fengu um það, hvað þeir skyldi gjöra meðan á umsát borgarinnar stóð ? í sex daga hvern eftir annan gekk hinn fjölmenni her Israelslýðs hringinn í kring um borgina í samfelldri, reglu- bundinni fylking. Og á sjöunda deginum var slík hringganga marg-endrtekin af gjörvöllum fólksskaranum. Og tafarlaust þar á eftir œptu hermennirnir allir eins og með einum munni óp mikið. Hvort myndi það, að múrar hinnar dœmdu borg- ar tóku að riða og hrundu síðan niðr, ekki að einhverju leyti

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.