Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1902, Blaðsíða 12

Sameiningin - 01.11.1902, Blaðsíða 12
ráðvönd ogguShrædd. Maörinn heitir Elkana, en konan Anna. Arlega koma þau til Síló til a5 fœra guöi fórnir. Á öllu sést,að þau þau eru einkar bœnrœkin; en þau búa yfir mikilli sorg : þau eiga ekkert barn. Anna tók sér þaö svo nærri, aö hún grét oftog sinntiekki fœöu. Hennihefir, ef til vill, veriö storkaö ogskap- raunaö af öörum konum, því meöal ísraelsfólks þótti þaö van- viröa mikil aö vera óbyrja. Hún bar samt harm sinn í hljóöi. En þegar hún var á bœn í guðs húsi, tjáði hún guði sorg sína. Eitt sinn, er hún kom til Síló með fórnir sínar, fann Elí prestr hana á bœn í bústaö drottins. Hún baðst fyrir á þessa leið : , .Drottinn allsherjar ! ef þú lítr á eymd þinnar ambáttar og minnist mín og gleymir ekki þinni ambátt, og gefr þinni am- bátt son, þávileggefahann drottni alla hanslíf- daga. “ Elí hughreysti hana og fullvissaði hana um, að guö Israels myndi heyra bœn hennar. Og guð bœnheyrði hana. Næsta ár kom Elkana einn að foera fórnir, en Anna var heima, því nú hafði hún nýfœtt barn á brjósti, og kvaðst eigi mundu fara til Síló fyrr en hún hefði vanið það af. Hún nefndi son sinn Samúel, sem þýðir ,,guð heyrir“,—,,því frá drottni hefi eg fengið hann með bœn“, sagði hún. Og er hún síðar hafði vanið sveininn af brjósti, fór hún með hann til Síló, að bera þar fram þakkarfórn sína. Hún fœrði Elí sveininn og mælti: ,,Um þennan svein bað eg, og drottinn veitti mér bœn mína, sem eg bað hann um; líka vil eg ljá hann drottni; svo lengi sem hann lifir sé hann guði léðr. “ Og svo söng hún hinn fagra lofsöng sinn. — Þetta er frásagan um fœðing Samúels, þessa ágæta manns. Hann var bœnarbarn. Hann fœddist í heirni bœn- arinnar og ólst upp í þeim heimi frá fyrstu œsku. — En hvílík móðir, hún Anna ! Hve marga presta, hve marga drottins þjóna myndum vér hafa vor á meðal, ef margar væri mœðrnar hjá oss Önnu líkar, guðelskandi og bœnheitar sem hún ! Samúel átti góða foreldra, en svo fékk hann líka gott uppeldi. Þegar í œsku var sveinninn látinn þjóna í ,,bústað drottins“. Þar var hann látinn gjöra smávik þau, er drengir geta gjört. Gæfa Samúels á rót sína að rekja til þessa upp-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.