Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1902, Síða 15

Sameiningin - 01.11.1902, Síða 15
gjörír manninn sælan?“ Var séra Hans enn aöal-rœöumaör, og auk hans töluSu þrír aðrir. Sunnudaginn, sem á eftir fór (24. e. trín.), prédikaöi séra Hans í tveim kirkjum, nfl. kirkju Vestrheimssafnaöar og kirkjunni í Minneota. Að kvöldi mánudagsins var trúmálafundr haldinn í Marshall. Voru þar rétt allir safnaöarmenn saman komnir og aö auk nokkrir menn úr öllum hinurn söfnuðunum. Umtalsefni á þeim fundi var : ,,Vor kirkjulegi arfr. “ Auk séra Hans tóku þar fjórir menn til máls. — Nokkru eftir miönætti þá sörnu nótt lagði séra Hans á stað heimleiðis, með kæru þakklæti frá söfnuðunum í Minnesota fyrir komuna. B. Nú er hin nýja þýðing Jóhannesar guðspjalls komin út í Reykjavík frá nefndinni, sem þar er að eiga við yfirskoðan og endrbót íslenzku biblíunnar. Guðspjöllunum öllum er þar með lokið. Eftir því, sem formaðr nefndarinnar, Hallgrímr bisk- up Sveinsson, hefir áðr auglýst, mun séra Jón Helgason hafa verið aðalmaðrinn við þýðing þessa síðasta guðspjallarits. Verð þess er 12 aurar. Sama má segja um þýðing þessa guðspjalls eins og hinna guðspjallanna, að kostað hefir verið kapps um að láta hana vera nákvæma eftir frum’textanum gríska. En víða í guðspjallaþýðingum þessurn eru óþarfa-breytingar frá því, er áðr var í nýja testamentinu íslenzka. Og á stöku stöðum hefir nýja þýðingin orðið ónákvæmari en hin garnla. í því tilliti skal bent á Jóh. 1, 23 : ,,Eg er rödd manns, er hrópar í óbyggðinni. “ En í nýja testamentinu, sem nú er almennt notað af Islendingum, stendr þar: ,,Eg em rödd þess, sem hrópar“ o. s. frv. Alveg eins á samsvarandi stöðurn í hinum guðspjöllunum (Matt. 3, 3 — Mark. 1, 3 —Lúk. 3, 4). Hér er ónákvæmni, þótt að eins virðist vera í smáu, og sú óná- kvæmni getr haft trúarlega þýðing. A hina ónákvæmu þýðing skírnar-innsetningarorðanna Matt 28, 19 í hinni nýju útlegging hefir verið bent af hr. Öst- lund, aðventista-trúboða: ,,Farið og gjörið allar þjóðirnar að lærisveinum með því að skíra þá“ o.s.frv. — í staðinn fyrir ,,sk í r a n di þá“.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.