Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1905, Síða 3

Sameiningin - 01.08.1905, Síða 3
83 og ritgjörðir snertandi biblíuírœði og fleira eftir ýmsa aðra höfunda. I síðustu heftunum (fyrir Júlí og Ágúst) eru þannig tvær greinir eftir dr. Geo. H. Schodde, þar sem skýrt og skil- merkilega er gengið á móti staðhœfingum nokkrum af hálfu biblíu-,kritíkarinnar‘, nýju. Greinin eftir hann í Júlí-heftinu iheldr því fram, að alls engin gild rök sé komin fram fyrir því, sem , kritík‘ sú fullyrðir, að Esajas sé ekki höfundr 17 síðustu kapítula (40.—66.) í spádómsbókinni, er ber hans nafn, heldr einhver ónefndr maðr, sem löngu seinna hafi verið uppi. Þá er það og ein megin-kenning ,,kritíkar“-manna, að lögbókin, sem fannst í Jerúsalems-musteri á dögum Jósía konungs (2. Kron. 34, 15), hafi ekki, eins og það ávallt hefir verið skilið, verið lögmál Mósesar í heild sinni, heldr að eins rit það, er nú er nefnt fimmta Mósesbók; það rit sé og ekki eftir Móses, heldr miklu miklu yngra, hafi sett verið saman undir hans nafni til þess að gefa gildi prestakreddum nokkr- um, sem þar sé haldið fram, og því svo á sviksamlegan hátt smeygt inn, þegar svo gott tœkifœri bauðst. Um þessa kenn- ing talar Schodde í Ágúst-heftinu, gjörir grein fyrir því, af hve illri rót hér sé runnin, og hrekr hana algjörlega. Theodore M. Davis, frægr Egyptalandsfrœðingr, upp- runninn hér í Vestrheimi (í Bandaríkjunum), fann snemma á þessu ári í nágrenni rústanna af Þebu, hinni merku höfuðborg Efra-Egyptalands í fornöld, grafarhvelfing eina í jörðu niðri, enn þá merkilegri en allt þeirrar tegundar, sem áðr hefir fundizt í því landi. Þegar hvelfing sú var opnuð, var við- staddr prófessor Maspero, sem öllum mönnum er lærðari í forn-egypzkum írœðum, einnig hertoginn af Connaught, bróðir Edwards Bretlandskonungs. Tvær miklar líkkistur fundust þar, og höföu þær inni að halda líkami hjóna einna, að nafni Júa og Þúa, sem ekki voru konungbornar persónur, þótt þau væri foreldrar drottningar einnar, er mikla frægð hefir getið sér í fornaldarsögu Egyptalands. Sá drottning nefndist Taí, en konungr sá, er var eiginmaður hennar, er nefndr Amen- hótep (eða Amenófis) hinn 3., og sonr þeirra Amenhótep hinn 4. — Líkkisturnar voru tvöfaldar, að utan og innan fóðraðar

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.